Morgunblaðið - 29.05.2020, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2020
Atvinnuauglýsingar
Blaðberar
Upplýsingar veitir í síma
Morgunblaðið óskar eftir
blaðbera
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur
Loðnuvinnslunnar hf.
verður haldinn í Wathneshúsinu á
Fáskrúðsfirði
1
.
Dagskrá venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórn Loðnuvinnslunnar hf.
Tilboð/útboð
Reykjavíkurborg óskar eftir áhugasömum aðila til
að sjá um veitingarekstur í Iðnó 16. júní – 31. ágúst
2020, í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík. Miðað er
við að Iðnó verði opið almenningi fimmtudaga – sun-
nudaga í hverri viku frá hádegi og fram á kvöld, en
opnunartími mun taka mið af viðburðum Listahátíðar.
Sá sem kemur til greina þarf að:
- Bjóða upp á veitingar sem henta starfsemi Iðnó
í sumar. Ekki er gert ráð fyrir stórum matseðli og
engu veisluhaldi.
- Hafa reynslu og hæfni til að sinna veitingarekstri og
tilbúinn til að takast á við óvenjulegar aðstæður.
- Búa yfir sérlega góðri samskiptahæfni, samstarfs-
vilja og þjónustulund.
- Vera tilbúinn til að þróa veitingahald í takt við
opnunartíma og þarfir Listahátíðar í Reykjavík.
Í umsókn skulu koma fram hugmyndir að útfærslu
veitingaþjónustu í Iðnó í sumar og verður samnings-
aðili valinn út frá ofangreindum forsendum. Fulltrúar
menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar og
Listahátíðar í Reykjavík velja samningsaðila.
Samið verður um leigugreiðslur sem samræmast
umfangi reksturs.
Umsóknum skal skila fyrir kl. 12:00 5. júní
á netfangið menning@reykjavik.is með heitinu
„Veitingarekstur í Iðnó“
Nánari upplýsingar veitir
Ása Dýradóttir í gegnum
netfangið asa@artfest.is
„Pop up“ veitingarekstur
í Iðnó sumarið 2020
Félagsstarf eldri borgara
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi kl. 8.50-11. Hádegismat-
ur kl. 11.30-12.30. Myndlistarnámskeið kl. 12.30. Síðdegiskaffi kl.
14.30. Að svo stöddu verður ekki tekið við reiðufé, aðeins debetkort-
um eða kreditkortum. Við erum öll Almannavarnir. Höldum áfram
með handþvott og sprittun. Virðum 2 metra regluna við þá sem það
vilja. Nánari upplýsingar í síma 411-2790.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8.30-10.30. Útvarpsleik-
fimi kl. 9.45. BÍÓDAGUR Í Hvassaleiti kl. 13.15, sýnd verður hin sívin-
sæla og óborganlega íslenska kvikmynd ,,Stella í orlofi". Gönguferð
kl. 13.30.
Korpúlfar Förum af stað með hádegisverð af mikilli varkárni, matar-
gestum er skipt niður á tíma, því nauðsynlegt að skrá sig fyrirfram og
virða 2. metra regluna og hvetjum alla til að kynna sér vel Samfélags-
sáttmála Covid. Spritta hendur og fara varlega. Gönguhópar kl. 10.
mánudaga frá Borgum og Grafarvogskirkju kl. 10, miðvikudaga
föstudaga frá Borgum. Petan Gufunesbæ fyrir Korpúlfa mánudaga kl.
13. Velkomin.
Seltjarnarnes Kafispjall í króknum kl. 10.30. Leikfimi með Evu í saln-
um kl. 11. Spilað í króknum kl. 13.30 og brids í Eiðismýri kl. 13.30.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
NETVERSLUN gina.is
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
Verð 4.990
Sími 588 8050.
- vertu vinur
Bílar
Toyota Landcruiser 1/2018
33” breyttur með snorkel. Loftdæla -
krómgrind ofl. Sjálfskiptur. Ek. 76 þ.
Km. Ný yfirfarinn og þjónustaður.
Verð: 8.890 þús.
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
Smá- og raðauglýsingar
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
✝ Sigríður Magn-úsdóttir fædd-
ist á Sauðárkróki
20. júlí 1925. Hún
lést á Heilbrigð-
isstofnun Norður-
lands á Sauðár-
króki 9. maí 2020.
Foreldrar hennar
voru Hólmfríður
Elín Helgadóttir
frá Ánastöðum, f.
14.1. 1900, d. 22.6.
2000, og Magnús Halldórsson
frá Sauðárkróki, f. 30.5. 1891, d.
13.12. 1932. Systkini: Regína, f.
14. mars 1927; Dóra Ingibjörg, f.
7. júní 1928, d. 4. júní 2019; Mar-
grét Helena, f. 1. janúar 1930, d.
3. apríl 2014; Jón Ósmann, f. 28.
júní 1931; Magnús H., f. 6. nóv-
ember 1932, d. 4. janúar 2015.
Sigríður giftist 20. september
1947 Friðriki Ingólfssyni, f. 26.
júní 1924 á Lýtingsstöðum, d.
11. janúar 2004. Börn þeirra
eru:
Magnús Halldór Erling Jó-
hannesson, f. 27. okt. 1943. Fað-
ir hans var Jóhannes Jónsson.
Maki: Hulda Garðarsdóttir, f. 9.
maí 1943. Börn þeirra: a) Ellý
Erlings, f. 15. janúar 1962, b) Jó-
hannes Garðar, f. 28. október
1964, c) Helena, f. 27. maí 1970,
d) Davíð Halldór, f. 22. febrúar
f. 7. maí 1980, e) Dagný, f. 18.
mars 1982. Barnabörn eru 16,
eitt þeirra er látið.
Sólveig Inga f. 5. janúar 1952,
maki Kolbeinn Erlendsson, f. 2.
júlí 1948. Þeirra synir eru Er-
lendur Ingi, f. 28. júní 1970, og
Einar, f. 5. september 1973.
Barnabörn eru fimm.
Friðrik Rúnar, f. 14. nóvem-
ber 1956, maki Jóhanna Sigurð-
ardóttir, f. 27. febrúar 1964.
Börn Friðriks Rúnars og Lovísu
Sveinsdóttur eru a) Sveinn
Brynjar, f. 27. nóvember 1977,
b) Jóhanna Heiða, f. 8. maí 1979,
c) Eðvarð Ingi, f. 23. nóvember
1982, d) Elvar Logi, f. 30. ágúst
1984. Sonur Friðriks Rúnars og
Þórdísar Hjálmarsdóttur er e)
Júlíus Þór, f. 6. mars 1995.
Barnabörn eru átta. Börn Jó-
hönnu eru Eva Ósk og Sigurður
Pétursbörn.
Sigríður og Friðrik hófu bú-
skap 1948 í Laugarhvammi í
Lýtingsstaðahreppi. Þau bjuggu
með blandað bú og byggðu upp
myndarlega garðyrkjustöð. Síð-
astliðinn áratug hefur Sigríður
dvalið á ellideild HSN á Sauð-
árkróki.
Útförin verður gerð frá Sauð-
árkrókskirkju 29. maí klukkan
14. Hægt verður að hlusta á út-
sendingu í útvarpi í nágrenni
kirkjunnar á FM 107,2 og
streymt verður frá athöfninni á
facebooksíðu Sauðárkróks-
kirkju, www.facebook.com/
saudarkrokskirkja. Einnig má
nálgast slóðina á www.mbl.is/
andlat.
1979. Barnabörnin
eru 10 og
barnabarnabörnin
sjö.
Magnús Helgi, f.
24. apríl 1947.
Kona hans er Sig-
ríður Viggósdóttir,
f. 16. mars 1940.
Börn þeirra: Frið-
rik Ingólfur, f. 6.
júlí 1969, b) Sigríð-
ur Jónína, f. 21.
febrúar 1971, c) Margrét Guð-
rún, f. 26. apríl 1973, d) Ingi-
björg Klara, f. 24. maí 1975.
Barnabörn Helga og Sigríðar
eru 15 og barnabarnabörnin
þrjú. Fyrir átti Sigríður Eirík,
Sigurjón, Viggó, Sigmund og
Öldu Jónsbörn, Alda er uppeld-
isdóttir Helga.
Sigurður Hörður, f. 1. apríl
1949, maki Klara Sólveig Jóns-
dóttir, f. 2. september 1952.
Börn þeirra: a) Unnur, f. 17. maí
1978, b) Signý, 5. ágúst 1980, c)
Finnur, f. 25. febrúar 1988.
Barnabörn eru sex.
Jónína Hólmfríður, f. 9. des-
ember 1950. Maki Stefán Sig-
urðsson, f. 8. júní 1941. Þeirra
börn: Sigurður Villi, f. 23. jan-
úar 1972, b) Friðrik Smári, f. 12.
júní 1973, c) Halldór Þorleifs, f.
1. janúar 1975, d) Stefán Eiríks,
Ó sveit minnar bernsku
sumarstöðvarnar grænu.
segir skáldið Hannes Péturs-
son í ljóði sínu Á bökkum Svartár
þar sem Sigga í Laugarhvammi
eignaðist annasamt líf ásamt
Friðriki bónda sínum. Hann var
Steinsstaðamaður þar sem for-
feður hans bjuggu en Sigurður
langafi hans á Víðivöllum eignað-
ist Steinsstaði 1839, eins og sjá
má í Byggðasögu Skagafjarðar
III og þar á bls. 157 segir Friðrik
sjálfur frá frumbýlingsárum
þeirra hjónanna í Laugar-
hvammi.
Sigríður Magnúsdóttir átti
sjálf stutt að rekja ættir heim í
Tungusveitina og bæina við
Svartána, Helgi afi hennar var
kenndur við Ánastaði og frænkur
og frændur áttu mörg óðul þar
nærlendis og í nánd við jarðhit-
ann kringum Steinsstaði.
Þau hjónin í Laugarhvammi
skipuðu stóra sess í samfélagi
Lýtinga um og eftir miðja öldina.
Gestkvæmt var á heimili þeirra,
vinabönd lágu víða og frænda-
hópurinn stór heima í héraði og
syðra í borginni. Í Laugar-
hvammi var mikil rófuræktun og
tómata-, gúrku- og rósahús. Þau
hjónin urðu líka umsvifamikil í
sumarblómaræktun þegar fram í
sótti og frostnætur í sumarbyrj-
un kölluðu á mikið annríki, yfir-
breiðslur og hitapössun. Garðeig-
endur og blómaunnendur komu
að norðan og vestan til að kaupa
sér sumarblóm og þiggja ráð-
leggingar um hvernig fara skyldi
með. Blómaskreytingar fylgdu
jarðarfarardögum þar í framfirð-
inum, hringt var að biðja um
blóm og þá kom sér vel að ým-
islegt var að finna í búrinu hjá
hagleikskonunni Sigríði, blómin
þurftu sinn umbúnað og tíminn
vildi verða naumur þegar stundin
var komin.
Sigga hafði bjarta sópranrödd,
tók þátt í kirkjusöngnum og ten-
órinn Kristján á kirkjustaðnum
Reykjum var einn nágrannanna
sem litu inn og röbbuðu við eld-
húsborðið í Laugarhvammi. Þau
mundu marga presta og söng-
menn og þá fór að styttast í sög-
urnar.
Í Barnaskólanum út á Sauðár-
króki hafði Sigga sungið í kór hjá
Eyþóri tónskáldi og hún fylgdist
vel með kórsöng og söngstarfi í
nágrenni sínu. Hún var líka
mögnuð handavinnukona og var
stundum kölluð til þar sem konur
söfnuðust til sauma eða hann-
yrða.
Sigga var einlægt í tímaþröng
að sinna garðinum sínum vikurn-
ar sem hann kallaði mest á
umönnun, en viðskiptin, sumar-
blómin og gestakomur gengu fyr-
ir mestallt vorið og stundum
langt fram á sumar.
Ljóðið Talað við laufgað tré er
eitt snjallra ljóða frá hendi Hann-
esar skálds Péturssonar, ná-
granna þeirra. Kveðjuorð verða
það til Siggu í Laugarhvammi:
Talað við laufgað tré
Skáld verð ég ekki fyrr en ég finn að þú
ert fólgið í mínu blóði, ég orðinn þú:
laufgræn harpa í höndum myrkurs og
birtu
himins og jarðar; samur þér, sem ert
brú
er sól og moldir millum sín hafa reist
orðinn máttugt hljóðfæri í höndum lífs-
ins
harpa lifandi strengja – eins og þú.
(HP)
Ingi Heiðmar Jónsson.
Elsku amma okkar, Sigga í
Laugarhvammi, hefur nú kvatt
hinstu kveðju.
Með hjartað fullt af góðum
minningum viljum við þakka
henni samfylgdina. Amma var
skemmtileg kona, hún kom til
dyranna eins og hún var klædd
og lá ekki á skoðunum sínum.
Grænir fingur voru hennar aðals-
merki, garðurinn og skógrækt í
Laugarhvammslandinu voru
hennar líf og yndi. Blómaskreyt-
ingarnar hennar fóru víða og
glöddu marga bæði á gleði- og
sorgarstundum. Fleira var henni
til lista lagt, hún var mikil handa-
vinnukona og á efri árum fór hún
á námskeið í list- og glermálun og
eftir hana liggur myndarlegt safn
fallegra muna.
Sem börn og unglingar urðum
við þeirrar gæfu aðnjótandi að fá
að vera í sveit hjá ömmu og afa á
sumrin. Það voru skemmtilegir
tímar þar sem við lærðum til
verka og fengum tækifæri til að
umgangast stóran frændgarð.
Margir gerðu sér ferð í Laugar-
hvamm til að kaupa falleg sum-
arblóm, rósir og grænmeti.
Amma og afi voru góð heim að
sækja og ættingjar og vinir sótt-
ust eftir því að njóta heilsubótar í
heitu lauginni þeirra. Oft var
glatt á hjalla og setið lengi fram
eftir við spjall og þegar hagyrð-
inga bar að garði voru vísur látn-
ar flakka. Amma var á stundum
nýjungagjörn í matargerð, setti
salat í skyrið og bar fram hrá-
salat með rúsínum þrátt fyrir há-
vær mótmæli afa sem vildi sitt
grænmeti soðið. Hún gerði njóla-
súpu, tíndi fjallagrös og hafði
yndi af því að fara í berjamó og
gera saft og sultur.
Hin síðari ár bjó amma á
hjúkrunarheimilinu á Sauðár-
króki og naut þar góðrar umönn-
unar. Það gladdi hana mikið að
hitta fólkið sitt og laumaði hún
gjarnan sokkapari eða öðru
handverki eftir sig að gestkom-
andi.
Elsku amma, hjartans þakkir
fyrir allt. Minning þín mun lifa
með okkur um ókomna tíð.
Þín
Ellý, Jóhannes (Jói), Helena
(Lena), Davíð og fjölskyldur.
Sigríður
Magnúsdóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein-
ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við
síðuna.
Minningargreinar