Morgunblaðið - 29.05.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 29.05.2020, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ DonaldTrumpBanda- ríkjaforseti hefur ekki verið feiminn við að nýta sér samfélagsmiðla, þá sérstaklega Twitter, til þess að koma skilaboðum sínum á framfæri. Sjálfur hefur hann sagt Twitter öflugt tæki til þess að koma stuttum og hnit- miðuðum skilaboðum á fram- færi, og víst er að margir hafa áhuga á því sem forsetinn hefur fram að færa, því 80 milljónir manna eru sagðar fylgjast með skilaboðum Trumps á síðunni. Meðan kórónuveirufaraldur- inn stóð sem hæst tók Twitter hins vegar upp á því að leið- rétta ýmsar „rangfærslur“ sem notendur vefjarins hafa birt, í nafni þess að þörf sé á réttum og ábyrgum upplýsingum til varna vegna faraldursins. Veg- urinn til heljar er varðaður góðum ásetningi, því Twitter ákvað í vikunni að merkja tvær færslur Trumps sem „rang- færslur“, en þær tengdust ekki kórónuveirunni, heldur um- ræðu sem nú geisar í Banda- ríkjunum um hvort póstkosn- ingar leiði af sér kosningasvik eða ekki. Á sama tíma fengu tvær öllu umdeildari færslur forsetans að standa óhaggaðar, sem bendir til að Twitter hafi viljað slá sig til riddara á sem ódýrastan hátt á kostnað for- setans. Trump hefur, eins og við var að búast, tekið þessum aðgerð- um Twitter mjög illa, og sakar hann nú samskiptamiðilinn um að stunda sérstaka ritskoðun á skoð- unum þeirra sem eru til hægri í bandarískum stjórnmálum. Óháð því hvort sú afstaða er rétt hjá honum eða ekki – Twitter mun ef til vill úrskurða um það – er óneit- anlega skringilegt að hugsa til þess að Twitter setjist yfir- höfuð í dómarasæti yfir þeim skoðunum sem þar eru birtar, hvort sem þær eru til hægri eða vinstri. Vissulega eru til aðstæður, þar sem fyrirtæki eins og Twitter þarf að taka afstöðu til efnis, svo sem þegar um er að ræða hótanir eða hvatningar til ofbeldis, en þurfti það að setja sig í dómarasæti yfir „röngum“ skoðunum Trumps? Hafa skal í huga, að af þeim 80 milljónum sem fylgjast með skilaboðum hans, eru fjölmargir sem ekki deila skoðunum Trumps eða hafa mikið álit á forsetanum, og þeir hafa ekki verið feimnir við að svara honum fullum hálsi, meðal annars í póstkosninga- málinu. Twitter er komið á býsna hálan ís með því að ætla sér að úrskurða um rétt og rangt í umræðum fólks. Ætli fyrir- tækið að elta allt sem ein- hverjir telja vitleysu og birtist á síðum þess verður nóg við að vera hjá starfsmönnum þess. Það er hins vegar í meira lagi óvíst að sannleikanum sé gerð- ur sérstakur greiði með því að Twitter setjist í dómarasæti hinnar opinberu umræðu. Twitter hættir sér á hálan ís} Rangar skoðanir ekki leyfðar Greint var fráathyglisverðri skoðanakönnun í Morgunblaðinu í gær, þar sem spurt var um afstöðu Reykvíkinga til göngugatna í Reykjavík. Þar kom í ljós að meirihluti þeirra sem á annað borð sögðust vera hlynntir eða andvígir því sem spurt var um var mótfallinn því að Laugavegi og Banka- stræti ásamt öðrum götum miðborgarinnar yrði lokað allt árið. Ekki nóg með það, heldur voru fleiri sem töldu það ólík- legra en líklegra að þeir myndu heimsækja miðborg Reykjavíkur ef fyrrnefndar götur yrðu lokaðar árið um kring. Þessar niðurstöður varpa skýru ljósi á það öngstræti sem lokanastefna borgarmeiri- hlutans er komin í. Einmitt á þeim tímum, þegar verslanir í miðborg Reykja- víkur þurfa á því að halda að sem flestir leggi leið sína þangað, eru færri sem vilja eiga erindi þangað vegna þess hvernig bú- ið hefur verið um hnútana. Því miður er fátt sem bendir til þess að meirihlutinn muni taka tillit til þessara sjónar- miða, enda sagði formaður skipulagsráðs niðurstöðu könnunarinnar einungis sýna að það þurfi að kynna betur kosti göngugatna fyrir Reyk- víkingum. Þeir hafa þó fengið bæði reynslu og kynningu und- anfarin ár með þeim árangri að fleiri eru á móti lokununum en með. Er ekki hugsanlegt að vandinn sé frekar að meiri- hlutinn í borgarstjórn vill hvorki kynna sér sjónarmið borgarbúa né kaupmanna í miðborginni? Stefna meirihlutans fælir borgarbúa frá}Götulokanir í öngstræti Það eru kapítalistarnir sem komaóorði á kapítalismann“ hefur Hann-es H. Gissurarson eftir einhverjumspekingi. Þeir sem horfa á útgerð-ina á Íslandi gætu hallast að þessari kenningu. En ein af forsendum frjálsrar sam- keppni er opinn aðgangur að greininni og verð- myndun á markaði. Fiskimiðin eru aftur á móti harðlæst – með keðju og slagbrandi. Fyrir þann sem stendur fyrir utan er leiðin ekki þyrnum stráð, þangað liggur alls engin leið. Úthlutun fiskveiðiheimilda á Íslandi minnir á lénskerfið á öldum áður. Vildarvinir konunga voru gerðir að greifum, barónum eða lávörðum, yfirstétt sem átti þaðan í frá sitt lén sem gekk í arf. Inn í þennan hóp komst enginn nema eiga rétta foreldra. Kvótakerfið var sett á til þess að vernda fisk- inn í sjónum fyrir ofveiði Íslendinga. Þingmenn ætluðu sér að vernda náttúruauðlind þjóðarinnar. Þjóðarinnar, mun- um það. Kerfið virkaði vel, ýtti undir hagræðingu og efldi fiski- stofna í hafinu á ný. Það er gráglettni örlaganna að á sínum tíma var Morgunblaðið í fararbroddi þeirra sem vildu að útgerðirnar borguðu sanngjarnt auðlindagjald. Nú er blað- ið í eigu útgerðaraðalsins, því aðall er hann, aðall sem þigg- ur vernd frá ríkinu, lokaður hópur sem enginn kemst inn í sem ekki er til þess borinn. Ekki má minnast á að þjóðin njóti ávinnings af kerfinu með markaðstengdu gjaldi. Ekkert er út á það að setja að fólk auðgist á framtaki sínu, hyggjuviti og útsjónarsemi. Á opnum markaði verður slíkur hagnaður sjaldnast gríðarlegur. Á undanförnum áratug hafa aftur á móti safnast upp slík auðæfi í sjávar- útvegi að þess eru engin dæmi áður. Hagur greinarinnar batnar um 123 milljónir á dag, allan ársins hring. Arðurinn flæðir út, millj- arður á mánuði, og eigendurnir leggja undir sig eitt fyrirtækið af öðru í öllum atvinnugrein- um. Hannes H. Gissurarson benti mér um dag- inn á bókina Père Goriot eftir Balzac. Þar er þessi setning: „Á bak við mikil og illskýranleg auðæfi leynist jafnan óupplýstur glæpur og fimlega framinn.“ En útgerðin hefur fyrst og síðast nýtt sér reglurnar, reglur sem skapa dagvaxandi ójöfn- uð á milli útgerðaraðalsins og almennings. Ríkisstjórnarflokkarnir, hvort sem þeir kenna sig við hægri, vinstri eða miðju, eru fyrst og fremst varðmenn óbreytts ástands. Þeir ná saman í óbeit sinni á markaðslausnum. Aðlin- um allt! er hið leynda boðorð. Engu má breyta meðan örfáir auðjöfrar leggja landið undir sig í skjóli eilífðarkvóta. Auðjöfrar sem verja með kjafti og klóm ríkisforsjána sem malar þeim milljarða. Þeir fá aldrei nóg. Ég lærði eftirfarandi stöku Sigurðar Breiðfjörð af Ás- geiri Jónssyni sem skrifaði um kvótakerfið fyrir aldar- fjórðungi: Það er dauði og djöfuls nauð er dyggðasnauðir fantar, safna auð með augun rauð, en aðra brauðið vantar. Benedikt Jóhannesson Pistill Mikið vill meira – og meira – og meira Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Umhverfisráðherra er aðundirbúa frumvarp tillaga um umgjörð nýt-ingar vindorku í landinu. Ráðuneyti hans og ráðuneyti iðn- aðarmála hafa verið að vinna að því að móta viðmið um það hvar leyfa megi vindorkugarða og hvar ekki. Skipulagsstofnun vinnur í þessu sambandi að gerð viðauka við land- skipulagsstefnu þar sem sett verða viðmið fyrir skipulagsgerð sveitar- félaga um vindorku. Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra segir að litið hafi verið til viðmiða erlendis og nefnir að sums staðar hafi friðlýst svæði og svæði sem farleiðir fugla liggja um verið tekin út fyrir sviga. Mikil ásókn í orkukostinn Tveir vindorkugarðar fengu umfjöllun við starf þriðju verkefnis- stjórnar rammaáætlunar. Blöndu- lundur Landsvirkjunar var flokk- aður í nýtingarflokk en Búrfells- lundur sama fyrirtækis í biðflokk. Tillögur nefndarinnar hafa ekki fengið umfjöllun á Alþingi. Nú virð- ist mikill hugur vera í orkufyrir- tækjum, bæði nýjum og eldri, að virkja vindinn. Þannig tilkynnti Orkustofnun 34 vindorkukosti til fjórðu verkefnisstjórnar sem nú er að störfum. Ástæðan fyrir áhuga innlendra og erlendra orkufyrir- tækja er væntanlega sú að kostn- aður við að koma upp vindorku- görðum hefur farið lækkandi og þessi orkukostur er að verða sam- keppnisfær. Umræðan hér á landi hefur verið að þroskast samhliða aukinni ásókn. Margir virðast vera að vakna upp við vondan draum og að mann- virki við öflun þessarar endurnýj- anlegu orku séu kannski of mikið lýti á ásýnd landsins, sérstaklega ef vindmyllur rísa þétt og um allt land. Guðmundur Ingi er sammála því að sýnileiki vindrafstöðvanna sé stóri umhverfisþátturinn en bætir við áhrifum á fugla. „Ég tel gríðar- lega mikilvægt að við náum að vinna þær breytingar á lögunum sem boð- aðar hafa verið þannig að hægt verði að ákveða á hvaða svæðum vindorkugarðar verða ekki því þá verður miklu einfaldara að taka ákvarðanir um reglur á svæðum sem þar eru fyrir utan,“ segir ráð- herrann og bætir því við að þótt vindorkan sé að hans mati einn af þeim orkukostum sem komi til greina að nýta þurfi að fara varlega með hana, eins og aðra kosti. „Við þurfum að hafa vernd náttúrunnar í fyrirrúmi,“ segir hann. Vonast hann til að hægt verði að leggja frum- varpið fram í haust. Ekkert á framkvæmdastigi Engin vindorkuver eru komin á framkvæmdastig. Víða er verið að vinna að rannsóknum og umhverf- ismati og sums staðar eru skipu- lagsbreytingar í gangi. Fyrir utan vindlundi Landsvirkjunar eru einna lengst komin þrjú vindorkuver í Dalabyggð og Reykhólasveit. Hreppsnefnd Reykhólahrepps hefur ákveðið að auglýsa skipulagsbreyt- ingar vegna vindorkugarðs á Garps- dalsfjalli í Gilsfirði. Breytingar á að- alskipulagi vegna tveggja vera í Dalabyggð eru á lokastigi. Verk- efnin og tillögur að skipulagsbreyt- ingum vegna vindorkuvers á Sól- heimum í Laxárdal og Hróðnýjar- stöðum við Hvammsfjörð verða kynntar á íbúafundi nk. þriðjudag. Í kjölfarið ákveður hreppsnefnd hvort skipulagið verður auglýst. Ekkert vindorkuver er komið í gegnum nál- arauga rammaáætlunar og Alþingis. Setja viðmið við upp- byggingu vindorku Morgunblaðið/Árni Sæberg Búrfellslundur Vindmyllur sem Landsvirkjun reisti í tilraunaskyni við Búrfell hafa reynst vel og skila meiri orku en reiknað var með í upphafi. Stjórnvöld hér horfa til ná- grannalandanna varðandi mót- un viðmiða um þau svæði sem ekki er leyft að ráðstafa undir vindorkugarða. Reglurnar eru hins vegar nokkuð mismunandi milli landa, eins við ferða- mönnum blasir þegar farið er um Bretlandseyjar, Norðurlönd og aðra hluta Evrópu. Eins fara reglurnar eftir stærð mann- virkja. Í skýrslu sem Alta gerði fyrir Skipulagsstofnun sést að meiri kröfur voru gerðar í til- lögum að rammaáætlun vind- orku í Noregi en gert er í Skot- landi. Í skýrslu sem Efla verkfræði- stofa vann fyrir Dalabyggð á árinu 2018 um skilmála fyrir mannvirki til nýtingar vindorku er lagt til að vægari skilyrði gildi um stakar vindmyllur 30 metra háar eða lægri en þar sem reisa á fleiri og hærri myllur. Skýrsluna átti að nota við endurskoðun aðalskipulags sem ekki varð úr á þeim tíma. Mismunandi reglur gilda SKILYRÐI ERLENDIS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.