Morgunblaðið - 29.05.2020, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 29.05.2020, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2020 29. maí 1963 Guðmundur Gíslason verður fjórfaldur Íslandsmeistari á fyrri degi Meistaramóts Ís- lands í sundi. Guðmundur vinnur 100 metra skriðsund á 59,7 sek- úndum, 200 metra baksund á 2:29,06 mín- útum og 200 metra fjórsund á 2:26,09 mín- útum auk þess að vera í sig- ursveit ÍR í 4x100 metra fjór- sundi. 29. maí 1990 Kristján Arason er Evrópu- meistari bikarhafa í hand- knattleik með spænska félag- inu Teka og verður þar með fyrstur Íslend- inga til að vinna Evrópumeistara- titil í flokka- íþrótt. Teka sigrar Drott frá Svíþjóð, 23:18, í seinni úrslitaleiknum á heimavelli sínum og vinnur einvígið með þremur mörkum samanlagt. Kristján skorar 4 mörk í leiknum. 29. maí 1999 Örn Arnarson er sigursælasti keppandi Smáþjóðaleikanna í Liechtenstein, en hann sigrar í öllum sjö greinum sínum í sundkeppni leikanna. Um leið tekur hann þátt í að setja þrjú Íslandsmet í boðsunds- greinunum með sveitum Ís- lands. 29. maí 2010 Kvennalandslið Íslands í handknattleik tryggir sér sæti í lokakeppni Evrópu- mótsins í fyrsta sinn. Liðið bíður lægri hlut í Austurríki, 26:23, en heima- liðið þurfti fimm marka sigur til að komast áfram á kostnað Íslands. Hrafnhildur Skúladóttir er markahæst með 8 mörk í leiknum. 29. maí 2014 Kvennalið Kristianstad í knattspyrnu er komið í úrslit sænsku bikarkeppninnar í fyrsta skipti í sögu félagsins eftir 2:0 sigur á Örebro í undanúrslitum. Elísabet Gunnarsdóttir stýrir liðinu og með því leika Guðný Björk Óðinsdóttir, Elísa Viðars- dóttir og Sif Atladóttir. 29. maí 2016 Jón Arnór Stefánsson leikur til undanúrslita um Spánar- meistaratitilinn í körfuknatt- leik með liði sínu Valencia. Liðið slær Unicaja Málaga út í 8-liða úrslitum 2:0 og skorar Jón 12 stig og gefur 3 stoð- sendingar í síðari leiknum, sem Valencia vann 88:59. Val- encia glímir við Evrópumeist- arana Real Madrid í undan- úrslitum. Á ÞESSUM DEGI KNATTSPYRNA Kristófer Kristjánsson kristoferk@mbl.is Skagamaðurinn Stefán Teitur Þórð- arson er af miklum knattspyrnuætt- um. Faðir hans er Þórður Þórðar- son, sem lék í marki ÍA um árabil og langafinn Þórður Þórðarson var í gullaldarliði Skagamanna á árum áður. Þá eru frændur Stefáns Teits meðal annars þeir Ólafur, Stefán og Teitur Þórðarsynir sem allir eru kunnir í knattspyrnuheiminum. Morgunblaðið heyrði í Stefáni Teiti í gær og bað hann um að rýna aðeins í Skagaliðið og komandi Ís- landsmót en Skagamenn höfnuðu í 10. sæti í fyrra eftir ótrúlega slitrótt tímabil. ÍA var á toppnum eftir sex umferðir og fimm sigra en vann að- eins tvo af næstu 16 leikjum og gat liðið hreinlega þakkað fyrir að hafa ekki sogast niður í fallbaráttuna af einhverju viti. Stefán, 21 árs, segist eiga von á talsvert meiri stöðugleika hjá liðinu í sumar. „Ég tel okkur vera að spila miklu betri fótbolta heldur en í fyrra. Þó að við höfum náð einhverjum smá árangri í byrjun, þá skulum við bara tala hreint út með það að við gátum ekkert. Þetta var bara ekki nógu gott tímabil en ég er hundrað pró- sent viss um að við munum geta sýnt meiri gæði og stöðugleika yfir allt tímabilið í sumar. Ég er mjög já- kvæður eins og allir í liðinu,“ segir Stefán sem vinnur alltaf hjá fjöl- skyldufyrirtækinu Bifreiðastöð ÞÞÞ á Akranesi á sumrin með fótbolt- anum. Hann segist ekki hafa verið í vandræðum með að halda sér í standi þrátt fyrir að liðið hafi ekki mátt koma saman til æfinga í rúma tvo mánuði. „Þegar allt fór í lás þá gátum við bróðir minn haldið okkur við út í bíl- skúr hjá mömmu og pabba, við héld- um okkur í góðu standi,“ segir hann og á þar við Þórð Þorstein Þórð- arson sem spilar með FH. Skaga- menn mættu ÍBV í æfingaleik á miðvikudaginn og spila svo aftur um helgina enda keppast nú öll lið við að koma sínum mönnum í leikform áður en mótið hefst 13. júní. „Svo er leikur um helgina við Víking Ó. Menn eru að taka nokkrar mínútur í þessum leikjum, ekki að spila allar 90. Allir eru auðvitað fullir tilhlökk- unar að fara að sparka í fótbolta og gera eitthvað.“ Ungir en samt reynslumiklir Stefán Teitur steig sín fyrstu skref í meistaraflokki ÍA sumarið 2016 og var í liðinu sem féll úr efstu deild haustið 2017. Það var svo í fyrstu deildinni ári síðar að Stefán blómstraði, skoraði tíu mörk í 22 leikjum. Í fyrra skoraði hann eitt mark í 20 leikjum af miðjunni og er því nokkuð reyndur leikmaður þrátt fyrir ungan aldur en það á við um fleiri í liðinu. Hann hefur allan sinn feril spilað með ÍA, alls 71 leik og skorað 15 mörk. „Við erum ungt lið en samt með mikla reynslu. Ég spilaði mitt fyrsta tímabil sem miðjumaður með meist- araflokki í fyrra og var ánægður með að spila alla þessa leiki og hafa staðið mig. Svo erum við með Tryggva, Óttar og Árna Snæ sem hafa allir spilað fullt af leikjum í efstu deild. Við erum með nógu mikla reynslu til að sýna hvað við getum. Svo erum við með stráka sem hafa orðið Íslandsmeistarar með öðrum flokki tvö ár í röð og ég er bjartsýnn á að einhverjir þeirra stígi upp og sýni hvað þeir geta,“ bætti hann við en lítið hefur verið um mannabreytingar hjá Skaga- mönnum, sem þó urðu fyrir áfalli í vikunni þegar bakvörðurinn Hörður Ingi Gunnarsson sneri aftur til upp- eldisfélagsins FH en þrálátur orð- rómur um þau félagaskipti hófst í byrjun árs. Viðurkenning að vera valinn Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálf- ari ÍA, hefur ekki viljað tala sér- staklega um markmið Skagamanna í samtölum sínum við fjölmiðla í að- draganda mótsins og það sama er upp á teningnum þegar blaðamaður biður Stefán um að spá í spilin. „Við höfum ekki skrifað neitt niður, það hefur ekki komið strax. Núna erum við aðeins að púsla okkur saman eft- ir þetta frí, koma forminu í stand og svo setjumst við niður.“ Hann tekur þó undir að á Skaganum séu alltaf gerðar miklar kröfur til knatt- spyrnuliðsins. Það er alltaf krafa hérna að þú gefir þig allan í leiki og ef þú gerir það ekki þá færðu að heyra þá frá körlunum.“ Skagamaðurinn vakti verðskuld- aða athygli fyrir frammistöðu sína á síðustu leiktíð, sérstaklega í upphafi móts, og uppskar árangur erfiðis síns snemma á árinu þegar hann spilaði sína fyrstu A-landsleiki fyrir Ísland, gegn Kanada og El Salvador, í Bandaríkjunum í janúar. Að þeirri ferð lokinni ferðaðist hann svo til Spánar þar sem hann var til reynslu hjá norska úrvalsdeildarliðinu Sarpsborg. Þó að atvinnumennskan sé vissulega langtímamarkmið, ein- beitir hann sér fyrst og fremst að Skagaliðinu nú um sinn. „Það er alltaf í stóra planinu en maður veit ekki hvernig þessi mark- aður verður núna eftir kórónuveir- una. Ég held áfram að einblína á það sem ég er að gera heima og ef eitt- hvað gerist úti þá skoða ég það, ef og þegar það kemur. Ég hugsa ekki of mikið um þetta,“ sagði hann og bætti við að það væri mikil viður- kenning að vera kallaður inn í hóp landsliðsins. „Það var bara við- urkenning fyrir það sem ég hef verið að gera og sýndi mér það að ég er á réttri leið. Núna held ég bara áfram, hvort ég fari út eða ekki – ég er ekk- ert að stressa mig á því.“ Stendur þig á Skaganum eða færð að heyra það  Stefán Teitur telur lið ÍA reynslunni ríkara eftir slitrótt tímabil í fyrra Morgunblaðið/Haraldur Jónasson Skagamaður Stefán Teitur Þórðarson er af miklum fótboltaættum og verður mikilvægur ÍA í sumar. Danmörk AGF – Randers......................................... 1:1  Jón Dagur Þorsteinsson spilaði fyrstu 67 mínúturnar hjá AGF. Færeyjar HB – Víkingur ...........................................3:0 Klaksvík – EB/Streymur..........................3:0 Skála – AB Argir .......................................1:1  Enska úrvalsdeildin í knattspyrnu mun hefja göngu sína á nýjan leik 17. júní, að því gefnu að heilbrigð- isyfirvöld á Bretlandi samþykki það en félögin tuttugu styðja tillöguna einróma. Deildin mun hefjast á tveimur leikjum, viðureign Aston Villa og Sheffield United annars vegar og Manchester City og Arsenal hins vegar en þá verða liðnir akkúrat eitt hundrað dagar frá því að keppni var aflýst tímabundið vegna kórónuveirunnar. Umferðin mun svo klárast helgina 20.-21. júní. Enski boltinn byrjar aftur AFP Loksins Kevin De Bruyne og meist- ararnir í Man. City snúa brátt aftur. Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í knatt- spyrnu, hefur verið orðuð við Spán- armeistara Barcelona í spænska miðlinum Marca. Sara Björk, sem er 29 ára gömul, hefur leikið með Wolfsburg í Þýskalandi frá árinu 2016 þar sem hún hefur þrívegis orðið Þýskalandsmeistari og bikar- meistari á þremur tímabilum. Hún verður samningslaus í sumar og var sterklega orðuð við Lyon í Frakk- landi í síðasta mánuði. Sara segist sjálf vera búin að taka ákvörðun um framtíð sína. Sara orðuð við Barcelona Morgunblaðið/Hari Eftirsótt Sara Björk hefur verið orðuð við tvö stór félög í Evrópu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.