Morgunblaðið - 29.05.2020, Blaðsíða 15
15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2020
Hlaup Þessar fjórar hressu vinkonur voru í gær á harðaspretti framhjá Sjóminjasafninu við Reykjavíkurhöfn enda veður fallegt og hvetjandi til útivistar.
Eggert
Umræður um fram-
kvæmdir tengdar
varnarmálum vegna
hugmyndavinnu á
vettvangi ríkisstjórn-
arinnar um CO-
VID-19-efnahags- og
atvinnumálaaðgerðir á
Suðurnesjum beina at-
hygli að breytingum
frá því að Keflavík-
urstöðin laut stjórn og
forsjá Bandaríkjamanna.
Með brotthvarfi Bandaríkjahers
árið 2006 skuldbundu íslensk
stjórnvöld sig til að sjá um rekstur
og viðhald mannvirkja NATO hér á
landi. Mannvirkjasjóður NATO
stendur straum af kostnaði við gerð
mannvirkja og búnað í þágu varn-
arhagsmuna Atlantshafsbandalags-
ins í heild enda séu þær umfram
varnarþarfir hlutaðeigandi ríkis.
Hér hefur Bandaríkjaher átt hlut
að fjármögnun annarra varn-
arframkvæmda.
Þetta kemur fram í greinargerð
sem varnarmálastofnun tók saman
um varnarskuldbindingar Íslands í
ársbyrjun 2010. Þar sagði einnig að
þá ætti NATO 152 mannvirki í land-
inu. Þeim hefur fækkað síðan. Varn-
armálastofnun vísaði til skýrslu
mannvirkjanefndar NATO frá nóv-
ember 2007 um að frá upphafi til
2006 hefði NATO fjárfest sem sam-
svaraði 550 milljónum evra í varn-
artengdum mannvirkjum á Íslandi.
Af upphæðinni fóru 250 milljónir
evra í uppbyggingu íslenska loft-
varnakerfisins (IADS) og um 300
milljónir evra í önnur verkefni sem
nýtast ekki aðeins hernaðarlega.
Íslensk stjórnvöld gerðust aðilar
að mannvirkjasjóði NATO eftir
brottför varnarliðsins
2006 og tóku að sér
rekstur öryggissvæð-
isins á Keflavíkur-
flugvelli, ratsjáa mann-
virkjasjóðs auk annars
í eigu NATO á Íslandi.
Fer Landhelgisgæslan
þar með daglega stjórn
í umboði utanríkisráðu-
neytisins. Ber íslensk-
um stjórnvöldum að sjá
til þess að hér séu
öruggar byggingar til
að þjóna loftrýmiseftir-
liti á vegum NATO.
Í hlutverki Íslands sem gistiríkis
felst að taka á móti liðsafla og búnaði
á vegum NATO eða annarra ríkja
sem koma að aðgerðum á íslensku
yfirráðasvæði eða ferðast um Ísland.
Þá ber íslenskum yfirvöldum að
heimila að búnaður og stofnanir
NATO séu starfræktar hér og veita
þeim stuðning.
Varnarmannvirki hér eru ekki öll
eign NATO. Sum voru í eigu Banda-
ríkjamanna en í skilasamningi Ís-
lands og Bandaríkjanna við brottför
varnarliðsins var varnarsvæðum og
bandarískum mannvirkjum og bún-
aði skilað til íslenskra yfirvalda. Þau
skil höfðu engin áhrif á NATO-
mannvirki og búnað hérlendis að
öðru leyti en því að land undir þeim
rann úr samningsbundinni umsjá
Bandaríkjamanna til Íslendinga.
Tvíhliða varnarsamningur Íslands
og Bandaríkjanna frá 1951 er í gildi.
Í 7. gr. hans skuldbinda Íslendingar
sig til annast annaðhvort sjálfir
nauðsynlegt viðhald á mannvirkjum
og búnaði eða heimila Bandaríkja-
mönnum að gera það.
Tillaga um átaksverkefni
Í sjötta tölulið þingsályktunar um
þjóðaröryggisstefnu Íslands segir
að stjórnvöld skuli „tryggja að í
landinu séu til staðar varnarmann-
virki, búnaður, geta og sér-
fræðiþekking til að mæta þeim
áskorunum sem Ísland stendur
frammi fyrir í öryggis- og varn-
armálum og til að uppfylla alþjóð-
legar skuldbindingar Íslands.“
Guðlaugur Þór Þórðarson utan-
ríkisráðherra sendi 19. mars 2020
tillögur „um átaksverkefni í ljósi
efnahagslegra afleiðinga heimsfar-
aldurs“ til fjármálaráðuneytisins,
annars vegar um að íslensk stjórn-
völd legðu til 250 millj. kr. á ári á
tímabilinu 2021-2025 auk 125 millj.
kr. í ár, samtals 1.450 millj. kr., til
endurbóta á hafnaraðstöðunni í
Helguvík og hins vegar um að
framkvæmdum við gistirými á ör-
yggissvæðinu í Keflavík yrði flýtt.
Það hefði falið í sér 330 millj. kr.
aukningu framlaga til verkefnisins
á árunum 2021-2022 en heildar-
upphæðin hefði verið óbreytt.
Eftir að fréttir birtust hér í
blaðinu um að tillögurnar um átaks-
verkefnin hefðu ekki náð fram að
ganga sem hluti COVID-19-aðgerða
ríkisstjórnarinnar hafa umræður um
þær farið út og suður vegna þess að
það var fyrst í þingumræðum mánu-
daginn 25. maí sem skýrðist til fulls
um hvað þær snerust.
Í þingumræðum 18. maí sökuðu
formenn Miðflokksins og Viðreisnar
Katrínu Jakobsdóttur forsætisráð-
herra um að hafa snúist gegn þjóð-
aröryggisstefnunni með andstöðu við
tillögurnar. Forsætisráðherra skýrði
afstöðu sína og sagði meðal annars:
„Í fyrsta lagi hefur því verið hald-
ið fram að Vinstrihreyfingin – grænt
framboð standi gegn þjóðarörygg-
isstefnu fyrir Ísland. Ég hef ekki séð
nein rök færð fyrir þeirri staðhæf-
ingu og minni þar á að í kjölfar yf-
irlýsingar sem íslensk stjórnvöld
undirrituðu með bandarískum
stjórnvöldum árið 2016, þar sem boð-
uð var ákveðin uppbygging á Kefla-
víkurvelli og í kjölfar hennar sameig-
inlegur skilningur stjórnvalda á
árinu 2017 um það hvað sú uppbygg-
ing skyldi snúast um, hefur staðið yf-
ir á Keflavíkurvelli uppbygging fyrir
12 milljarða kr. Sýnir það ekki að
Vinstrihreyfingin – grænt framboð
stendur við þær ákvarðanir sem
teknar eru og byggjast á mati á
varnarhagsmunum sem fram fór í
kjölfar þeirrar yfirlýsingar sem gefin
var út 2016?“
Kjarninn í afstöðu forsætisráð-
herra er að þjóðaröryggisstefnunni
skuli fylgt. Hugmyndina um nýjar
framkvæmdir nú eigi ekki að skoða
„með miklum hraði“ við gerð fjár-
aukalaga vegna COVID-19.
Forsætisráðherra minnti á að við-
hald mannvirkja undanfarin þrjú ár
á varnarsvæðinu á Keflavíkurvelli
hefði verið meira en frá árinu 2002.
Ríkisstjórn hennar hefði „svo sann-
arlega“ fylgt þjóðaröryggisstefnunni
betur eftir en fyrri ríkisstjórnir.
Undir lok þingumræðu um málið
25. maí sagði utanríkisráðherra að
ekki mætti gleymast hvernig varn-
armannvirki nýttust þjóðinni og
nefndi flugbrautir, ratsjárkerfið, ljós-
leiðarann og Helguvíkurhöfn. Öll
þyrftu þessi mannvirki viðhald, frá-
leitt væri að gera það tortryggilegt.
Og hann sagði:
„Hér hefur verið gengið fram eft-
ir þjóðaröryggisstefnunni. Því verð-
ur haldið áfram. Ég mun hafa enn
meira frumkvæði að því að ræða
þessi mál því að það er full þörf á
því, hvort sem það er í þjóðarörygg-
isráði eða annars staðar.“
NATO og Norðurlöndin
Öll bandalagsríki Íslands innan
NATO efla nú viðbúnað sinn vegna
aukinna umsvifa Rússa á norður-
slóðum. Minna fréttir á níunda
áratuginn þegar varnarfram-
kvæmdir voru mestar hér á landi í
seinni tíð.
Nú í byrjun maí sigldu tvö
bandarísk herskip og eitt breskt
ásamt bandarísku birgðaskipi inn
á Barentshaf sem Rússar líta á
sem „sitt“ haf og kafbáta sinna.
Um miðjan níunda áratuginn
fylgdi John Lehman, flota-
málaráðherra í stjórn Ronalds
Regans Bandaríkjaforseta, fram
nýrri flotastefnu á norðurslóðum
og stuðlaði að falli Sovétríkjanna
með því að senda herskip inn á
Barentshaf.
Aðstaða Bandaríkjamanna og
NATO hér var að baki þessari
stefnu. Þunginn í framkvæmd
hennar minnkaði álagið á GIUK-
hliðið og þar með Ísland.
Á þeim tíma vildu Svíar og Finn-
ar að skil væru á milli sín og
NATO, að minnsta kosti á frið-
artímum. Nú taka herir þjóðanna á
hinn bóginn þátt í æfingum með
NATO. Fyrir rúmri viku efndi
sænski flugherinn í fyrsta sinn í
sögunni til æfinga með B-1-
sprengjuvélum frá Bandaríkjunum
yfir sænsku landi.
Öflug varnarmannvirki hér
þjóna öryggishagsmunum okkar í
NATO og nánustu samarfsþjóða
bandalagsins, Svía og Finna.
Eftir Björn
Bjarnason » Öll bandalagsríki
Íslands innan NATO
efla nú viðbúnað sinn
vegna aukinna umsvifa
Rússa á norðurslóðum.
Björn Bjarnason
Höfundur er fv. ráðherra.
Varnarmannvirki fyrir NATO og Norðurlöndin