Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2020, Síða 2
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.5. 2020
Drengirnir mínir tveir, að verða sextán og átján, virðast stundum ekkiskilja hvað þeir eiga töff mömmu. Ég er auðvitað mjög miðaldra oghallærisleg í þeirra augum; kannski skiljanlega. Við eigum auðvitað
oft í fínum samræðum en ég fæ reglulega að heyra frasa eins og: „Ó mæ god,
mamma, í alvöru?“
Svo rúlla þeir augunum.
Um páskana tók ég mig til og setti inn nokkur myndbönd af sjálfri mér að
spila á gítar og syngja. Nokkuð sem ég kann alls ekki. Til að kóróna allt var ég í
gervi, með hárkollu og hippaleg sólgleraugu. Ég samdi sjálf tónlistina og text-
ana og fannst ég alveg hreint nokkuð fyndin. Ég var ekki alveg viss um hvort
þeim væri skemmt.
Drengirnir vinna báðir með skóla í
Krónunni og hitta þar oft vini mína og
kunningja sem hafa verið að tjá sig
um frammistöðu mína á Facebook.
„Mamma, þú ert legend,“ sagði sá
yngri við mig í vikunni.
„Nú, það er aldeilis, ég er kannski
ekki svo hallærisleg eftir allt saman.
Legend?!“ sagði ég ánægð.
Svo droppaði ég bombu.
„Ég setti myndband inn á TikTok,“
sagði ég í sakleysi mínu.
Þeir fórnuðu höndum. Kölluðu upp
yfir sig: „NEI, mamma, ertu komin á
TikTok!? Ætlarðu að skemma TikTok? Miðaldra fólk á EKKI að vera á Tik-
Tok. Getið þið ekki bara haldið ykkur á Facebook? Plís?“
Ég sagðist nú ekki vera búin að fá eitt einasta læk þarna, sem ég skildi ekki,
kannski hefði ég ekkert gert þetta rétt.
Þeir spurðu mig hvort ég væri í ALVÖRU búin að stofna TikTok-reikning.
Ég hélt það nú.
„Ó MÆ GOD,“ sagði sá eldri. Augun rúlluðu. Þeir horfðu hvor á annan í
angist.
Þarna fór ég greinilega yfir strikið. Miðaldra fólk á semsagt að halda sig á
Facebook og ekki „eyðileggja“ nýja samfélagsmiðla með nærveru sinni. Ef þið
vissuð þetta ekki, þá vitið þið það hér með.
Ætlarðu að
skemma TikTok?
Pistill
Ásdís
Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
’ Þarna fór ég greini-lega yfir strikið. Mið-aldra fólk á semsagt aðhalda sig á Facebook og
ekki „eyðileggja“ nýja
samfélagsmiðla með
nærveru sinni.
Guðmundur Einarsson
Já, já. Er rólegri en samt
meðvitaður.
SPURNING
DAGSINS
Ertu
farin(n)
að slaka á
í kófinu?
Árnheiður Edda
Hermannsdóttir
Já, ég er orðin miklu rólegri og er
farin að knúsa mína allra nánustu.
Jóhann Bjarnason
Já, ég er farinn að gera það. Ég held
fjarlægð að mestu en er farinn að
róast.
Jóhanna Berndsen
Já aðeins. Ekki samt farin að knúsa
fólk ennþá.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Eggert
Fyrirlestraröð sem tekur á COVID-19-faraldrinum verður 18. maí
til 8. júní, milli 12 og 13, á opnum zoomfundum. Hægt er að fylgj-
ast með á https://eu01web.zoom.us/my/felagsfraedi
Segðu mér frá þessari fyrirlestraröð.
Við í Félagsfræðingafélagi Íslands og námsbraut í félagsfræði
settum á fót fyrirlestraröð til að sýna fram á hversu mikilvæg fé-
lagsfræðileg sýn og þekking er þegar við skoðum líffræðilegan
faraldur sem hefur heilsufarsleg áhrif en ekki síður félagsleg.
Við vildum nota þekkingu okkar til að skoða faraldurinn og
reyna að meta þau áhrif sem hann hefur á samfélagið og um
leið efla umræðuna.
Eruð þið strax farin að móta félagsfræðilegar
rannsóknir sem tengjast kórónuveirunni?
Já. Afskaplega margt fræðafólk úr ýmsum greinum er farið
að gera það. Það eru mörg rannsóknarverkefni að fara af stað.
Svona stórir viðburðir eru gullnáma fyrir okkur, án þess að gera
lítið úr alvöru veirunnar. Samfélagið umbyltist á einni nóttu.
Skoðið þið líka áhrif kórónuveirunnar á viðhorf
okkar?
Já, hvernig þetta hefur áhrif á viðhorf okkar gagnvart fjölskyldunni,
vinnunni, heilsunni og samskiptum í hjónabandi. Afleiðingarnar eiga
eftir að koma fram á næstu árum og jafnvel áratugum.
Þú ert með fyrirlesturinn Heima er best? Kynin og
Covid-19. Hvað ertu að fjalla um?
Ég er að skoða hvort heimilið sé griðastaður í þessum faraldri og er að
skoða kynjavinkilinn. Við höfum flest verið send heim og ég vil skoða
hvort ábyrgðin á heimilinu, kennslu barna og fleira lendi frekar á konum
en körlum. Við höfum einnig séð það að heimilisofbeldi eykst í svona að-
stæðum. Sumar konur eru fastar inni á heimilinu með ofbeldismönnum.
Það voru framin tvö hræðileg morð í þessum faraldri þar sem konur
voru myrtar. Þetta hefur ekki fengið nógu mikla athygli og því
langaði mig að skoða þetta nánar.
Samfélagið
umbyltist
SUNNA SÍMONARDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Morgunblaðið/Eggert
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70
hitataekni.is
Sjálfvirk, raka-og hitastýring, fer sjálfkrafa í gang þegar
ljós eru kveikt eða við hreyfingu í rými.
Klimat K7 er fjölnota vifta, þróuð
og framleidd í Svíþjóð.
– sjö viftur í einni
Ein sú hljóðlátasta á markaðinum (17-25 dB)
Húsnæði óskast til leigu/kaups
Accommodation wanted
Sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi leitar að íbúð eða
húsi, fyrir sendiherra ESB, til langtímaleigu eða kaups.
Ýmiss konar húsnæði kemur til greina. Það ætti helst að vera
staðsett í póstnúmerum 101, 105 eða 107 og vera aðgengi-
legt með einkabifreið eða almenningssamgöngum.
Nánari lýsing og upplýsingar um skilafrest tilboða er á
www.esb.is.
The EU Delegation to Iceland is looking for an apartment
or a house, suitable as the residence of the Head of the
Delegation, for long-term lease or purchase.
Various types of premises may be suitable. The building
should preferably be located in the 101, 105 or 107 area of
Reykjavík and be easily accessible by private vehicle or
public transport.
For full description and deadline for submission, please
consult our website www.esb.is.