Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2020, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2020, Blaðsíða 20
Þar sem ég er yfirleitt ómáluð(líka fyrir Covid-19) reyni égaðallega að halda húðinni snyrtilegri. Ég þríf hana kvölds og morgna, mér finnst það sambærilegt við að bursta tennurnar. Ég nota nær einungis náttúrulegar vörur sem næra hana vel,“ segir Aldís þegar hún er spurð hvernig hún hugsi um útlitið. „Húðin á mér er mjög þurr og þarf því krem sem minnir á steikingarfeiti í þykkt. Þegar ég var yngri smurði ég einu sinni vaselíni yfir allt andlitið á mér. Það voru mistök. En Dr. Hauschka-vörurnar hafa reynst mér ótrúlega vel. Rose Day-kremið er í miklu uppáhaldi. En ekki létta útgáf- an. Ég þarf þykka kremið. Þessa dag- ana kemur Refine-maskinn líka sterk- ur inn með auknum áhyggjuhrukkum á þessum síðustu og verstu.“ Margt hefur breyst síðan Aldís fékk sína fyrstu förðunarpallettu 12 ára gömul. Pallettan var fyrir augu, kinn- ar og varir, allt í einu boxi. „Mikið glimmer. Það var ekki lekkert. En það var upphaf. Ég reis að lokum úr glimmeröskunni,“ segir Aldís, sem málar sig lítið dags daglega í dag. „Ég kannski bretti upp augnhárin og hyl rauða bletti ef ég er slæm í húð- inni og lítil í mér. Ef ég á aukamínútu fylli ég aðeins í augabrúnirnar en oft er það jafnvel of mikið. En hvers- dagsleg förðun væri léttur grunnur og maskari. Ég hef verið að nota Glow Eyelash Serum síðustu vikur og er hæstánægð með árangurinn. Það er því extra skemmti- legt að nota maskara þessa dagana. Svona „hver er þetta“- upplifun þar sem ég hef aldrei haft mjög löng augnhár,“ segir Aldís. „Tyllidagaförðun er allt annað. Þá sest ég með góðan bolla af tei eða vín- glas fyrir framan spegilinn og tek allt í gegn. Ég syrgi mjög lokun Make Up Store hérlendis þar sem farðinn frá þeim er bestur þá sjaldan ég vil gott „coverage“. Yfirleitt enda ég svo með dökka skyggingu á augunum. Ég var oft með gerviaugnhár en þarf þess varla þessa dagana, grínlaust þetta Glow Serum er hverrar krónu virði. Stundum para ég dökku augun með áberandi varalit sem er víst „förð- unarbrot“ en mér er sama. Allt er í boði og lífið er stutt.“ Vegna þess hversu lítið Aldís málar sig hversdags tekur það hana ekki nema þrjár mínútur að gera sig til fyr- ir kvöldmat í heimahúsi. Þegar um kvöldmat á almannafæri er að ræða og þá sérstaklega ef hún ætlar út á líf- ið í kjölfarið er sagan allt önnur. Hún segir það taka sig allt að tvo tíma að gera sig til. Hvernig hugsarðu um húðina? „Ég passa mikið hvað ég set á hana. Ég skoða innihaldslýsingar vel á öllu sem ég kaupi og vil hafa vörur mjög náttúrulegar. Ef það er ilmvatnslykt af þeim enda þær ekki framan í mér. Það kemur heldur ekki til greina að kaupa vörur sem eru prufaðar á dýr- um og helst vil ég hafa þær vegan. Ég fer ekki að sofa með málningu framan í mér og á kvöldin nota ég hreinsi- froðu og skrúbb frá Sóleyju eða hreinsimjólk og „toner“ frá Dr. Hauschka. Svo nota ég krem frá öðru hverju merki.“ Hvað gerir þú til að dekra við þig? „Ég sótthreinsiþríf alla íbúðina og set ilmandi lök á rúmið, ilmkjarnaolíur með þvottaefninu eru tær snilld. Þeg- ar verkinu er lokið sótthreinsiþríf ég sjálfa mig með rjúkandi heitu baði. Skrúbba mig og nota hreinsimaska á andlitið. Eftir baðið nota ég nærandi maska á meðan húðin er enn heit og leyfi honum stundum að vera á yfir nótt. Að leggjast upp í rúm tand- urhrein og vel nærð á líkama og sál er mitt dekur. Það er eiginlega blætið mitt að þrífa. Má jafnvel kalla það áhugamál.“ Förðunarvörur eru ekki það sem skiptir mestu máli í snyrtibuddu Al- dísar. „Ég gæti lifað án förðunarvara, en ég gæti ég ekki lifað án plokkara. Þar dreg ég mörkin. Og hann þarf að vera góður. Tweezerman veit hvað hann syngur.“ Uppáhaldssnyrtivaran? „Þessa dagana er það maskarinn frá Dr. Hauschka. Ég er óþolandi ef einhver minnist á maskara þessa dag- ana. Ég fékk hann gefins en hann er í alvöru svo góður. Hann helst á allan daginn, lekur ekki og það er auðvelt að nota hann. Ég vil ekki vatnshelda maskara og hann helst samt full- komlega á, svo lengi sem það er ekki úrhelli. Svo er ekkert mál að skola hann af með vatni. Það er mikilvægt. Ég vil ekki þurfa að nudda af mér augun. Jafnvel þótt það sé bara einu sinni í mánuði.“ Það er ekki nein sérstök snyrtivara á óskalista Aldísar fyrir sumarið. Að hennar mati mætti fólk vera duglegra að klára þær vörur sem það á fyrir í snyrtibuddunni. „Ég á allt sem ég vil. Í hreinskilni sagt finnst mér svolítið galið hvað fólk kaupir mikið af snyrtivörum án þess að klára það sem það á nú þeg- ar. Það fer sérstaklega fyrir brjóstið á mér þegar vörurnar koma frá fyr- irtækjum sem leyfa tilraunir á dýr- um. Mér þykir erfitt að réttlæta þjáningu dýra og manna svo að ég eða aðrir líti vel út. Ég vona að fólk nýti þessa félagslegu einangrun til að skoða allt sem það hefur og reyni að vera nægjusamt og ánægt með það sem það á. Sérstaklega hvað við- kemur útliti og förðun.“ Húðumhirða sambærileg því að bursta tennur tvisvar á dag Leikkonan Aldís Amah Hamilton velur náttúrulegar snyrtivörur frá fyrirtækjum sem prófa ekki vörur sínar á dýrum. Hún hugsar vel um húðina og málar sig lítið hversdagslega. Við fínni tilefni er hún óhrædd við að brjóta reglur og setja á sig áberandi varalit við dökka augnskyggingu. Guðrún Selma Sigurjónsdóttir | gudrunselma@mbl.is Ljósmynd/Saga Sig. Aldís notar meðal annars hreinsifroðu frá íslenska merkinu Sóley Organics. Aldís blandar ilmkjarna- olíum við þvottaefnið þegar hún þvær rúmfötin. Aldís Amah Hamilton leikkona vill frekar nátt- úrulegar snyrtivörur. Aldís er óhrædd við að nota áberandi varalit með dökkri augn- skyggingu. Aldís treystir á plokk- ara frá Tweezerman. Aldís notar krem frá Dr. Hauschka. 20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.5. 2020 LÍFSSTÍLL

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.