Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2020, Side 20
Þar sem ég er yfirleitt ómáluð(líka fyrir Covid-19) reyni égaðallega að halda húðinni
snyrtilegri. Ég þríf hana kvölds og
morgna, mér finnst það sambærilegt
við að bursta tennurnar. Ég nota nær
einungis náttúrulegar vörur sem
næra hana vel,“ segir Aldís þegar hún
er spurð hvernig hún hugsi um útlitið.
„Húðin á mér er mjög þurr og þarf
því krem sem minnir á steikingarfeiti í
þykkt. Þegar ég var yngri smurði ég
einu sinni vaselíni yfir allt andlitið á
mér. Það voru mistök. En Dr.
Hauschka-vörurnar hafa reynst mér
ótrúlega vel. Rose Day-kremið er í
miklu uppáhaldi. En ekki létta útgáf-
an. Ég þarf þykka kremið. Þessa dag-
ana kemur Refine-maskinn líka sterk-
ur inn með auknum áhyggjuhrukkum
á þessum síðustu og verstu.“
Margt hefur breyst síðan Aldís fékk
sína fyrstu förðunarpallettu 12 ára
gömul. Pallettan var fyrir augu, kinn-
ar og varir, allt í einu boxi. „Mikið
glimmer. Það var ekki lekkert. En það
var upphaf. Ég reis að lokum úr
glimmeröskunni,“ segir Aldís, sem
málar sig lítið dags daglega í dag.
„Ég kannski bretti upp augnhárin
og hyl rauða bletti ef ég er slæm í húð-
inni og lítil í mér. Ef ég á aukamínútu
fylli ég aðeins í augabrúnirnar en oft
er það jafnvel of mikið. En hvers-
dagsleg förðun væri léttur grunnur og
maskari. Ég hef verið að nota Glow
Eyelash Serum síðustu vikur og er
hæstánægð með árangurinn. Það er
því extra skemmti-
legt að nota maskara
þessa dagana. Svona „hver er þetta“-
upplifun þar sem ég hef aldrei haft
mjög löng augnhár,“ segir Aldís.
„Tyllidagaförðun er allt annað. Þá
sest ég með góðan bolla af tei eða vín-
glas fyrir framan spegilinn og tek allt í
gegn. Ég syrgi mjög lokun Make Up
Store hérlendis þar sem farðinn frá
þeim er bestur þá sjaldan ég vil gott
„coverage“. Yfirleitt enda ég svo með
dökka skyggingu á augunum. Ég var
oft með gerviaugnhár en þarf þess
varla þessa dagana, grínlaust þetta
Glow Serum er hverrar krónu virði.
Stundum para ég dökku augun með
áberandi varalit sem er víst „förð-
unarbrot“ en mér er sama. Allt er í
boði og lífið er stutt.“
Vegna þess hversu lítið Aldís málar
sig hversdags tekur það hana ekki
nema þrjár mínútur að gera sig til fyr-
ir kvöldmat í heimahúsi. Þegar um
kvöldmat á almannafæri er að ræða
og þá sérstaklega ef hún ætlar út á líf-
ið í kjölfarið er sagan allt önnur. Hún
segir það taka sig allt að tvo tíma að
gera sig til.
Hvernig hugsarðu um húðina?
„Ég passa mikið hvað ég set á hana.
Ég skoða innihaldslýsingar vel á öllu
sem ég kaupi og vil hafa vörur mjög
náttúrulegar. Ef það er ilmvatnslykt
af þeim enda þær ekki framan í mér.
Það kemur heldur ekki til greina að
kaupa vörur sem eru prufaðar á dýr-
um og helst vil ég hafa þær vegan. Ég
fer ekki að sofa með málningu framan
í mér og á kvöldin nota ég hreinsi-
froðu og skrúbb frá Sóleyju eða
hreinsimjólk og „toner“ frá Dr.
Hauschka. Svo nota ég krem frá öðru
hverju merki.“
Hvað gerir þú til að dekra við þig?
„Ég sótthreinsiþríf alla íbúðina og
set ilmandi lök á rúmið, ilmkjarnaolíur
með þvottaefninu eru tær snilld. Þeg-
ar verkinu er lokið sótthreinsiþríf ég
sjálfa mig með rjúkandi heitu baði.
Skrúbba mig og nota hreinsimaska á
andlitið. Eftir baðið nota ég nærandi
maska á meðan húðin er enn heit og
leyfi honum stundum að vera á yfir
nótt. Að leggjast upp í rúm tand-
urhrein og vel nærð á líkama og sál er
mitt dekur. Það er eiginlega blætið
mitt að þrífa. Má jafnvel kalla það
áhugamál.“
Förðunarvörur eru ekki það sem
skiptir mestu máli í snyrtibuddu Al-
dísar.
„Ég gæti lifað án förðunarvara, en
ég gæti ég ekki lifað án plokkara. Þar
dreg ég mörkin. Og hann þarf að vera
góður. Tweezerman veit hvað hann
syngur.“
Uppáhaldssnyrtivaran?
„Þessa dagana er það maskarinn
frá Dr. Hauschka. Ég er óþolandi ef
einhver minnist á maskara þessa dag-
ana. Ég fékk hann gefins en hann er í
alvöru svo góður. Hann helst á allan
daginn, lekur ekki og það er auðvelt
að nota hann. Ég vil ekki vatnshelda
maskara og hann helst samt full-
komlega á, svo lengi sem það er ekki
úrhelli. Svo er ekkert mál að skola
hann af með vatni. Það er mikilvægt.
Ég vil ekki þurfa að nudda af mér
augun. Jafnvel þótt það sé bara einu
sinni í mánuði.“
Það er ekki nein sérstök snyrtivara
á óskalista Aldísar fyrir sumarið. Að
hennar mati mætti fólk vera duglegra
að klára þær vörur sem það á fyrir í
snyrtibuddunni.
„Ég á allt sem ég vil. Í hreinskilni
sagt finnst mér svolítið galið hvað
fólk kaupir mikið af snyrtivörum án
þess að klára það sem það á nú þeg-
ar. Það fer sérstaklega fyrir brjóstið
á mér þegar vörurnar koma frá fyr-
irtækjum sem leyfa tilraunir á dýr-
um. Mér þykir erfitt að réttlæta
þjáningu dýra og manna svo að ég
eða aðrir líti vel út. Ég vona að fólk
nýti þessa félagslegu einangrun til að
skoða allt sem það hefur og reyni að
vera nægjusamt og ánægt með það
sem það á. Sérstaklega hvað við-
kemur útliti og förðun.“
Húðumhirða sambærileg því að
bursta tennur tvisvar á dag
Leikkonan Aldís Amah Hamilton velur náttúrulegar snyrtivörur frá fyrirtækjum sem prófa ekki vörur
sínar á dýrum. Hún hugsar vel um húðina og málar sig lítið hversdagslega. Við fínni tilefni er hún
óhrædd við að brjóta reglur og setja á sig áberandi varalit við dökka augnskyggingu.
Guðrún Selma Sigurjónsdóttir | gudrunselma@mbl.is
Ljósmynd/Saga Sig.
Aldís notar meðal
annars hreinsifroðu
frá íslenska merkinu
Sóley Organics.
Aldís blandar ilmkjarna-
olíum við þvottaefnið
þegar hún þvær rúmfötin.
Aldís Amah Hamilton
leikkona vill frekar nátt-
úrulegar snyrtivörur.
Aldís er óhrædd við að
nota áberandi varalit
með dökkri augn-
skyggingu.
Aldís treystir á plokk-
ara frá Tweezerman.
Aldís notar
krem frá Dr.
Hauschka.
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.5. 2020
LÍFSSTÍLL