Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2020, Blaðsíða 3
www.fi.is
Nú er rétti tíminn
til að ganga í
Ferðafélag Íslands
Árbók FÍ 2020
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS | Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | Sími 568 2533 | www.fi.is
Árbók Ferðafélags Íslands Rauðasandshreppur hinn forni,
er nú í dreifingu til félagsmanna sem hafa greitt árgjaldið.
Þegar hafa um 6500 árbækur verið bornar í hús til félagsmanna.
Margvísleg fríðindi fylgja því að vera félagi í Ferðafélagi Íslands. Árbókin, sem er ein nákvæmasta
íslandslýsing sem völ er á, er innifalin í árgjaldinu, afsláttur í allar ferðir og skála félagsins og
afsláttur hjá fjölmörgum útivistarverslunum og fleiri verslunum og þjónustuaðilum.
Ferðaáætlun FÍ 2020
er aðgengileg á
heimasíðunni
www.fi.is
Árbók Ferðafélags Íslands kemur nú út í nítugasta og þriðja
sinn. Í ár er til umfjöllunar syðsti hluti Vestfjarða: Patreks-
fjörður – og þar með taldar Örlygshöfn og Hænuvík – ásamt
Kollsvík, Breiðuvík og Látravík. Að auki er fjallað um Látra-
bjarg, Keflavík og Rauðasand. Inn í sérstæða náttúrufegurð
svæðisins fléttast svo áhugaverð menningar- og atvinnusaga.
Aðalhöfundar þessarar árbókar eru dr. Gísli Már Gíslason
vatnalíffræðingur og Ólafur B. Thoroddsen fyrrverandi
skólastjóri. Báðir eru útivistarmenn af lífi og sál og þaul-
kunnugir svæðinu og sögu þess. Ólafur er fæddur og upp-
alinn á Patreksfirði og Gísli ólst upp á Hvallátrum.