Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2020, Page 4
HEIMURINN
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.5. 2020
Við viljum hafa þetta aftur einsog þetta var. Við viljumstóra, stóra leikvanga fulla
af fólki,“ sagði Donald Trump
Bandaríkjaforseti í símaviðtali í
tengslum við óformlegt fjögurra
manna golfmót sem sýnt var á NBC-
sjónvarpsstöðinni síðastliðinn
sunnudag. Átti hann þar við íþrótta-
viðburði, sem hann telur mikilvægt
að fari af stað sem fyrst. Vildi
Trump fá aftur stóra hópa þar sem
fólk „stendur nánast hvað ofan á
öðru, nýtur sín og hefur ekki áhyggj-
ur“. Taldi hann hlutina geta breyst
hratt hvað þetta varðar.
Víða um heim hafa stjórnvöld
leyft íþróttaviðburði á ný eftir að
sett var bann við þeim þegar kór-
ónuveirufaraldurinn fór að sækja í
sig veðrið. Í Færeyjum er knatt-
spyrnudeildin farin aftur af stað,
hafnaboltahanskinn hefur verið tek-
inn upp í Suður-Kóreu og haldið var
sterkt golfmót í Mosfellsbæ um síð-
ustu helgi svo eitthvað sé nefnt.
Þá á PGA-mótaröðin í golfi að
hefjast í næsta mánuði, verið er að
undirbúa að stærstu knattspyrnu-
deildir heims fari af stað, þó að tíma-
bilinu í einni þeirra, þeirri frönsku,
hafi verið aflýst, og í Bandaríkjunum
skoða menn hvernig koma megi
stóru íþróttadeildunum fjórum þar
af stað á ný.
Peningar drifkrafturinn
Ólíklegt er að draumsýn Trumps
rætist og áhorfendur muni fylla
íþróttavelli, golfvelli eða annars kon-
ar velli, á þessu ári hið minnsta.
Raunar bera ummæli hans merki
um kosningaáróður frekar en raun-
verulega von um að óskin muni ræt-
ast í bráð enda hafa Bandaríkja-
menn lent í miklum vandræðum í
baráttunni gegn faraldrinum og
virðast enn eiga nokkuð langt í land
með að ráða niðurlögum hans.
Helsti sérfræðingur Bandaríkj-
anna í heilbrigðismálum, Anthony
Fauci, var einmitt mjög efins um að
hægt væri að hefja íþróttaiðkun í
bráð í samtali við New York Times.
Hann talaði um að jafnvel án áhorf-
enda yrði erfitt að koma íþróttum í
landinu af stað enda þyrftu margir að
koma að sjónvarpsútsendingum frá
þeim, jafnvel hundruð manna.
En mikið er í húfi fyrir hagsmuna-
aðila stærstu hópíþróttadeilda heims
að koma þessum viðburðum á skjá-
inn enda miklir fjármunir sem fást
af sjónvarpsútsendingum. Auðvitað
eru margir aðdáendur ólmir í að sjá
íþróttir í beinni í sjónvarpinu á ný.
En drifkrafturinn er peningar. Til að
mynda kom fram á fundi forráða-
manna tveggja efstu knattspyrnu-
deildanna í Þýskalandi að fjögur af
liðunum í úrvalsdeildinni væru á
barmi gjaldþrots.
Það var einmitt þýska úrvals-
deildin sem fór af stað á ný eftir
rúmlega tveggja mánaða hlé um
liðna helgi. Varð deildin þar með sú
fyrsta af stóru knattspyrnudeild-
unum í Evrópu sem fer af stað á ný.
Leiðin að fyrsta sparkinu hefur þó
verið löng og ströng.
„Við tókum eina viku í hvíld eftir
að keppni í deildinni var frestað.
Eftir þessa viku byrjaði liðið svo að
æfa, í litlum hópum,“ sagði Alfreð
Finnbogason, leikmaður Augsburg í
þýsku deildinni, við Morgunblaðið
síðustu helgi.
Nú þegar deildin er loks farin af
stað er það miklum takmörkunum
háð og gríðarlegar ráðstafanir gerð-
ar til að koma í veg fyrir útbreiðslu
smits. New York Times sagði frá því
fyrir síðustu helgi að leikmenn Bay-
er Leverkusen þyrftu að dvelja í
viku einir á hótelherbergi, svara
spurningalista um möguleg einkenni
á hverjum morgni, borða morgun-
mat einir, væru hitamældir fyrir
hverja æfingu og fengju ekki að fara
í sturtu í búningsherberginu eins og
venjan væri. Auk þess færu leik-
menn í veirupróf fyrir hvern leik.
Lítið má út af bregða
En staðan virðist mjög brothætt.
Það er ekki undir deildunum komið
að ákveða hvað skuli gera ef leik-
maður greinist með kórónuveiruna.
Stjórnvöld hvers lands eða land-
svæðis fyrir sig ákveða það. Ef leik-
maður smitast gæti því farið svo að
allt liðið sem hann leikur með og
mögulega liðið sem hann lék nýlega
gegn yrði sett í sóttkví. Stefnan í
Þýskalandi er að setja einungis þann
smitaða í tveggja vikna einangrun
en lítið má út af bregða svo heilu lið-
in fari ekki í sóttkví. Færi svo þyrfti
líklega að gera hlé á deildinni á ný.
Þá má setja spurningarmerki við
einangrun leikmanna á hótel-
herbergjum þar sem þeir eru fjarri
fjölskyldum sínum. Þá er ætlast til
þess að leikmenn taki ekki eðlilegan
þátt í samfélaginu á meðan deildin
stendur yfir. Haldi sig fjarri öllum
samkomum og öðru slíku.
Slík ráðstöfun er auðvitað skiljan-
leg hvað varðar að minnka líkurnar á
því að smit berist á milli leikmanna.
En leikmenn eru manneskjur eins og
aðrir og spurning hvort það sé sið-
ferðislega rétt að svipta þá réttinum
til þess að eiga eðlilegt líf í þágu fjár-
hagslegra hagsmuna liðanna.
Íþróttamenn um allan heim eru
uggandi yfir áformum um að hefja
leik að nýju. Á Englandi, þar sem
eins og í Bandaríkjunum hefur
gengið erfiðlega í baráttunni við
veiruna, hafa knattspyrnumenn í úr-
valsdeildinni lýst yfir áhyggjum sín-
um. Í þeirri deild er stefnt að því að
hefja leik 12. júní en í liðinni viku
voru æfingar fámennra hópa án
snertinga loks leyfðar. Leikmenn
telja að næstu skref, sem fela í sér
æfingar með snertingu, verði erfið
og óttast um heilsu sína og sinna
nánustu.
Spurningum ósvarað
Í Bandaríkjunum hefur fjöldi leik-
manna áhyggjur. NBA- og NHL-
deildunum í körfubolta og íshokkíi
var frestað undir lok tímabilsins og
vilja menn ólmir klára tímabilin þar.
Sömu sögu er að segja um MLB-
deildina í hafnabolta, sem átti að
hefjast í lok mars, og NFL-deildina í
ruðningi, sem áætlað er að hefjist í
byrjun september.
Æfingar innan liða eru einungis á
frumstigi og lítið annað en ein-
staklingsæfingar eru leyfðar og það
aðeins á síðustu dögum. Hafa leik-
menn NBA-deildarinnar margir
hverjir ekki haft aðgang að körfu-
boltahring til að æfa skot síðustu
vikurnar. Það vekur spurningar um
hvort einstaka lið eða leikmenn muni
hafa forskot á aðra þegar keppni fer
aftur af stað.
Sean Doolittle, leikmaður meistara
Washington Nationals í MLB-
deildinni, útlistaði áhyggjur sínar í
löngum þræði á Twitter á dögunum.
Meðal annars nefndi hann allan þann
fjölda sem kemur að hverju liði í deild-
inni utan leikmanna; þjálfara, starfs-
menn íþróttamannvirkja, gæslustarfs-
menn, vallarstarfsmenn, dómara,
fjölmiðlamenn og sjónvarpsstarfs-
menn. Hann nefndi einnig hótelstarfs-
menn, flugáhafnir og rútubílstjóra.
Fjölda fólks þyrfti því til að láta dæm-
ið ganga upp en það ylli auðvitað smit-
hættu. Þá nefndi hann að rannsóknir
hefðu bent til varanlegra áhrifa Covid-
sjúkdómsins á öndunarfæri og þá
staðreynd að einhverjir leikmenn eru í
áhættuhópi gagnvart sjúkdómnum
vegna undirliggjandi sjúkdóma.
Athyglisvert verður að sjá hvað
gerist á sviði íþrótta, þá sérstaklega
hópíþrótta, á næstu vikum og mán-
uðum. Eins og áður segir þurfa ekki
mörg smit að koma upp til að setja
heila deild í uppnám. Þá eru óvissu-
þættirnir margir. Munu allir leik-
menn samþykkja að snúa aftur til
vinnu við þessar aðstæður? Munu
þeir samþykkja að vera í burtu frá
fjölskyldum sínum? Munu stjórnvöld
grípa inn í? Hvaða áhrif munu tilmæli
um að leikmenn haldi fjarlægð sín á
milli hafa á það hvernig leikurinn er
spilaður? Munu aðdáendur liðanna
hópast saman fyrir utan tóma leik-
vangana og skapa mikla smithættu?
Öruggt að
fara af stað?
Frá því íþróttaviðburðum um allan heim var
frestað vegna kórónuveirunnar hefur verið unnið
að endurkomu þeirra. Aðdáendur vilja fá íþrótt-
irnar aftur en peningar virðast stjórna ferðinni.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
Leikmenn Bayer Leverkusen fagna marki fyrir tómum leikvangi í fyrsta leik sínum í þýsku úrvalsdeildinni síðan frestað
var vegna kórónuveirunnar. Leikmenn eiga að forðast óþarfa snertingar sín á milli, t.d. í fagnaðarlátum.
AFP
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar