Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2020, Side 17
mörku og ferðir þangað sjálfsagður hlutur þótti all-
mörgum, ekki síst „betri borgurum“, það viðeigandi og
menningarlegt áhugamál að sækja Árnasafn heim og
sýna Jóni aðdáun og virðingu sína og þiggja í staðinn
leiðsögn hans um safnið og hann fengi að njóta að
spjalla við landa sína útlaginn í landi Danakóngs.
Jóni hefur ekki hentað að vera í kippu með Tívolí,
Sívalaturni og Dyrehavsbakken, og var ekki að fela
það sjónarmið og fylgja því eftir. Ferðalöngum stóð
ekki almennt til boða að éta dýrmætan tíma frá honum
og hinum fornlegu fræðum. En með tímanum varð slík
lýsing á Jóni hluti af því sem aðdáendur hans mátu við
hann, jafnvel þeir sem hann beit af sér án allra vafn-
inga. Lítil saga er til um þessa hlið þótt þar komi ekki
við sögu ferðalangur á Íslendingaslóðum að sækja Jón
heim á eftir Sívalaturni.
Þar átti meira að segja skáld í hlut þótt ekki sé víst
að Jón hafi gert sér grein fyrir því að það var ekki
síðra en Jón sjálfur.
Það var á ferju frá Malmö til Kaupmannahafnar og
Bergur Pálsson í ráðuneytinu, kunnur og traustur
sögumaður (ógleymanlegur maður, og bréfritari hitti
nokkrum sinnum), sem var viðstaddur og sagði frá.
Hin söguhetjan var Steinn Steinarr: Jón Helgason sat
lengi uppi á þiljum og ræddi við gamla konu, en Steinn
var á vappi í kringum þau. Þeir þekktust lítið, svo Jóni
tók að leiðast þetta ráp í manninum og spurði önugur:
„Hvers vegna eruð þér að hlera samtal okkar?“
„Vegna þess,“ svaraði Steinn, „að mér þykir alltaf
svo gaman að heyra kerlingar tala saman.“
Sjálfsagt hefur Steinn, sem var viðkvæmur, verið
fljótari að taka gleði sína aftur eftir snuprur skáld-
bróðurins fyrst hann varð nægjanlega fljótur til svars.
Það vill enginn láta setja sig út af laginu og síst af
manni sem þú hefur í áliti.
Pritchard sama sinnis
Síðasta bréfi var lokið með því að vitna til hugleiðingar
íslensks lögspekings um dóm Þýska stjórnlagadóm-
stólsins sem skekið hefur hásali Evrópuvaldsins.
Fáum dögum síðar skrifaði A.E. Pritchard í Telegraph
mjög athyglisverða grein þar sem segir meðal annars
að stofnanakerfi ESB sé smám saman að gera sömu
mistökin gagnvart þýsku þjóðinni og það gerði gagn-
vart Bretum.
Evrópudómstóllinn hafi lengi haft þann kæk að
draga til sín vald sem hvergi sjái stað í neinum sátt-
málum sambandsins til að tryggja samþjöppun valds í
anda samruna til ríkis. ESB hafi gefið sér að það gæti
komist upp með þetta því að þýska stjórnmálastéttin
hafi í meginefnum verið samsek þessu vafasama valda-
sogi.
En nú hefði loks verið tekið á móti af hinu mikla afli
Þýska stjórnlagadómstólsins, útvarðar Réttarríkisins
sem varð til í framhaldi stríðsloka. Sá réttur lítur á
sjálfan sig sem Dómstól Þjóðarinnar. Andreas Voss-
kuhle, fráfarandi forseti réttarins, sagði í blaðaviðtali
að Dómurinn talaði í nafni hins almenna þýska borg-
ara, sem er harðduglegur, kvartar nær aldrei og er því
algjörlega sniðgenginn af aumingjadóms- og vælu-
kjóaiðnaðinum. Vosskuhle sagði dómstólinn vera
helsta mótvægi við frjálslyndu elítuna í Þýskalandi.
Það í úrskurði stjórnlagadómstólsins sem mestum
skjálfta olli var þessi yfirlýsing hans: Stjórnlagadóm-
stóllinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að fram-
ganga og ákvarðanir tilgreindra stofnana ESB (Seðla-
banka og yfirstjórnar í Brussel) hafi farið út fyrir
lögmætar heimildir og hafi því ekkert gildi í Þýska-
landi.
Þetta er aðeins upphaf hinnar eftirtektarverðu
greinar A.E. Pritchards en þeir sem vilja átta sig á
stöðu þessara mála, sem er líkleg til að verða af-
drifarík, ættu að kynna sér hana í heild.
Það ættu þeir þó einkum að gera sem lofast hafa til
að standa vörð um landið og stjórnarskrá þess, en litla
viðleitni sýnt til að gegna því hlutverki.
Og því skal spáð að á því verði engin breyting.
Það væri í stíl.
Og endar illa.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
’Það í úrskurði stjórnlagadómstólsins semmestum skjálfta olli var þessi yfirlýsinghans: Stjórnlagadómstóllinn hefur komist aðþeirri niðurstöðu að framganga og ákvarð-
anir tilgreindra stofnana ESB (Seðlabanka og
yfirstjórnar í Brussel) hafi farið út fyrir lög-
mætar heimildir og hafi því ekkert gildi í
Þýskalandi.
24.5. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17