Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2020, Page 19
Lífsgæðaaukning á
sundlaugarbakkanum
Stór hópur er á því að það að komast í sund sé einmestu lífsgæði fólks hérlendis. Það er þó hægt aðgera meira í sundi en að synda þótt það sé vissu-
lega gott fyrir heilsuna. Þar er hægt að liggja á sól-
bekkjum þegar vel viðrar og láta sólina leika um andlit-
ið og líkamann. Það skiptir sumt fólk máli að eiga
þægileg og klæðileg sundföt; sundföt sem gera það að
verkum að við getum verið frjáls í vatninu, synt eða
legið í pottinum án þess að fatnaðurinn sé heftandi á
nokkurn hátt.
Þegar velja á sundföt skiptir mestu máli hverju þú
ert að leita að. Ef þú vilt hafa allt á sínum stað, brjóst,
mitti og allt það, er Sculpture-sundbolalínan frá Speedo
frekar góð. Hún heldur vel að og veitir fólki öryggis-
tilfinningu á sama tíma. Þetta er allavega línan sem
mömmurnar og mögulega verðandi ömmurnar eru al-
veg sjúkar í.
Ef þú vilt meiri gleði og liti koma verslanir eins og
H&M og Lindex að góðum notum en sundfötin frá þeim
eru á góðu verði. Oft er hægt að finna sundföt í fal-
legum litum og sniðum sem hressa upp á stemninguna.
En hvað gerir þú á sólbekknum í íslenskum sund-
laugum? Ef þú ert vön að liggja og lesa í sumarfríum í
heitari löndum ættirðu að halda þeim sið áfram. Út eru
komnar nokkrar bækur sem vert er að lesa eins og
Sumarbókin, Eftir endalokin og Lífsgæðadagbókin. Ef
þú lest þær allar muntu líklega eiga mjög eftirminnilegt
og gott sumar því þessar bækur hreyfa við fólki.
Sumarbókin er
sígild bók-
menntaperla
sem segir frá
Soffíu litlu og
ömmu hennar
og sumardvöl
þeirra á smá-
eyju undan
strönd Finn-
lands. Þessi
tæra og lát-
lausa en
djúpvitra
frásögn af
örheimi eyj-
unnar, af gróðrinum og dýralífinu, hafinu
og veðrinu og heimspekilegum samræðum
ömmu og Soffíu hefur heillað lesendur í næst-
um hálfa öld.
Tove Jansson skrifaði tíu bækur fyrir fullorðna
sem allar hafa staðið í skugganum af geysi-
vinsælum sögum hennar um múmínálfana. Sum-
arbókin er byggð á sumardvölum hennar og
fjölskyldu hennar í finnska skerjagarðinum. Hún
kemur nú í fyrsta sinn út á íslensku.
Íslendingar tóku gleði sína á ný þegar sundlaugar landsins voru
opnaðar á ný eftir samkomubann. Einhverjir göntuðust með það
að þeir lifðu svo goslausu lífi að sundferðir væru kryddið í til-
veruna. Enda er heiti potturinn svolítið eins og ferð á Kaffibar-
inn ef þú ert komin/n yfir fimmtugt.
Marta María | mm@mbl.is
Falleg sundföt auka ör-
yggistilfinningu í sundi.
ður
ur sem
dex.
Það er stemn-
ing í baðfata-
topp með agn-
arsmáum
ermum við
sundbuxur sem
eru háar í mitt-
ið. Þessi baðföt
fást í H&M.
Ef þú vilt keyra upp
villidýrið innra með
þér er þessi bolur
táknrænn. Fæst í
Lindex.
Þessi sólarvörn
frá Biotherm er
algert æði. Hún
er ekki bara með
góða vörn heldur
er svo góð lykt af
henni að alheilbrigð
manneskja gæti
tekið upp á því að
drekka hana.
Þessi sundbolur er
úr Sculpture-línunni
frá Speedo.
Þessi sundbolur frá
Speedo er afar klæði-
legur og lekker.
Eftir endalokin fjallar
um hjónin Max og
Pip sem eru sam-
hent, bestu vinir og
elskendur. Ekkert
virðist geta haggað
þeim fyrr en sonur
þeirra veikist. Lækn-
arnir segja að þau
verði að taka ákvörð-
un um líf hans. Í fyrsta
skipti eru þau Max og
Pip ekki sammála um
hvaða leið skuli velja.
Eftir endalokin er til-
finningaþrungin og
merkileg könnun á ást-
inni, hjónabandinu og
hvað fylgir því að vera
foreldri. Einlæg frásögnin lýsir leiðinni frá nístandi sorg og
söknuði til sáttar. Þegar einar dyr lokast opnast stundum aðrar.
24.5. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
LÍFSSTÍLL