Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2020, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.5. 2020
LÍFSSTÍLL
V
ið ætlum að vera í um
sex vikur að þessu og
byrjum bara um
helgina,“ segir matar-
bloggarinn Albert
Eiríksson sem ásamt eiginmanni
sínum, Bergþóri Pálssyni óperu-
söngvara, og tengdaföður, Páli
Bergþórssyni veðurfræðingi, ætlar
að ferðast um landið í sumar.
Hann hyggst deila upplifuninni
með lesendum á bloggsíðu sinni,
alberteldar.com, sem breytist þá
um tíma úr matarsíðu yfir í ferða-
síðu.
Grímseyjar heimsóttar
„Við ætlum bæði í dagsferðir og
taka heilu landshlutana fyrir. Við
ætlum svolítið að láta kylfu ráða
kasti. Þetta verður ekki alveg
niðurnjörvað,“ segir Albert um
ferðatilhögunina. „Okkur langar að
heimsækja staði sem við höfum
ekki séð áður; bæði okkur Bergþór
og líka Pál. Þótt hann hafi komið
víða hefur hann ekki komið við alls
staðar.“
Fjölbreytileikinn verður í háveg-
um hafður. „Gististaðir, veitinga-
hús og náttúruperlur. Við viljum
opna augu fólks fyrir því að það er
hægt að gera svo margt. Ekki bara
fara á kaffihús eða heimsækja
frænku. Eins og við Gullfoss og
Geysi er víða búið að gera svo fína
hluti. Við viljum gera því skil.“
Albert segir þá félaga vilja ein-
blína á eyjarnar umhverfis landið.
„Við ætlum ekkert að gleyma eyj-
um í kringum landið. Fara til Flat-
eyjar, Grímseyjar, Hríseyjar og
fleiri eyja ef við getum.“
Hugmyndin er að heimsækja
þrjár Grímseyjar við landið. „Í
fyrra fórum við út í Grímsey á
Breiðafirði og ætlum þangað aftur.
Það er önnur í mynni Steingríms-
fjarðar og svo þessi fræga fyrir
norðan,“ segir hann.
Öðruvísi en í minningunni
„Það var tvennt sem kom til þegar
hugmyndin kviknaði. Annars vegar
var kona í Eyjafjarðarsveit sem er
með gistiheimili og bauð okkur að
koma. Við fórum að skoða þetta og
fannst spennandi. Og svo fórum
við á Gullfoss og Geysi fyrir stuttu.
Það er þannig með mig, og örugg-
lega marga á Íslandi, að ég hafði
ekki komið þangað í mörg ár. Ég
var svolítið heillaður,“ segir Albert
en hann segir aðstöðuna hafa verið
góða, margt hafi verið gert þar á
síðustu árum sem hann hafði ekki
séð.
„Það var allt þarna til fyrir-
myndar og í raun allt öðruvísi en
þetta var í minningunni. Þá vorum
við bara: „Já, gerum þetta.““
Albert segir fólk hafa komið að
tali við sig vegna hugmyndarinnar.
„Þetta hefur aðeins verið að spyrj-
ast út og allir hafa tekið vel í þetta.
Við höfum unnið þetta með mark-
aðsstofunum um landið. Við fáum
hugmyndir hjá þeim og þau hjálpa
okkur að skipuleggja. Hvert maður
fer og allt það. Það er svo margt að
gerast og maður veit ekki um
nema brot af því sem er í boði.
Þeir Albert (t.h.), Bergþór (t.v.) og Páll
ætla að ferðast um landið í sumar og mun
Albert gera því skil á bloggsíðu sinni.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hér eru Bergþór og Albert í
Grímsey á Breiðafirði sem þeir
hyggjast heimsækja aftur í sumar.
Ljósmyndir/Albert Eiríksson
„Ekkert að
gefast upp“
Bloggarinn Albert Eiríksson, sem heldur úti
vinsælu matarbloggi, hyggst venda kvæði sínu
í kross í sumar og blogga um ferðalag sitt um
Ísland með eiginmanni sínum og tengdaföður.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
HÁDEGISMATUR alla daga ársins
Bakkamatur
fyrir fyrirtæki og mötuneyti
Við bjóðum annarsvegar upp á sjö valrétti á virkum dögum,
sem skiptist í, tveir aðalréttir, þrír aukaréttir, einn heilsurétt,
einn Veganrétt og hinsvegar er hægt að fá matinn í kantínum
fyrir stærri staði sem er skammtað á staðnum.
Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is
SKÚTAN
Matseðill og nánari upplýsingar á
veislulist.is