Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2020, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.5. 2020
LÍFSSTÍLL
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
alnabaer.is
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
SCREEN RÚLLUGARDÍNUR
En auðvitað er það þannig að mað-
ur getur ekki gert öllu skil,“ segir
Albert og bætir við að allar ábend-
ingar séu vel þegnar, t.d. ef fólk
vill fá þá félaga í heimsókn.
Hann segist hafa einkar gaman
af því að fara í kaffiboð úti á landi.
„Það er eitt af því skemmtilegasta
sem maður gerir. Fólk bara gefur
sér tíma í að gera kaffimeðlæti og
baka,“ segir Albert í aðdáunartón.
„Við höfum oft farið út á land og
hitt kvenfélög. Það er ótrúlega
gaman. Þvílíkar veislur.“
„Hugur í öllum“
Albert tekur skýrt fram að hann,
Bergþór og Páll fái ekki greitt fyr-
ir að auglýsa þá staði sem þeir
heimsækja. „Það er ekki þannig að
staðirnir borgi fyrir birtingu.“ Þeir
eiga þó í ákveðnu samstarfi við
fyrirtæki á landinu. „Þetta verður
unnið í samstarfi við KEA-hótel
sem styrkja okkur um gistingu. Við
verðum þá á hóteli hjá þeim og
ferðumst svo þaðan út,“ segir hann
og bætir við að þeir hafi auk þess
fengið styrk frá Olís.
„Ég hef verið í sambandi við þó
nokkra út af þessu,“ segir Albert
og á þá við fólk í ferðaþjónustu-
geiranum. „Og það er svo mikill
hugur í öllum. Fólk er ekkert að
gefast upp þótt það sé ekki þessi
mikli fjöldi ferðamanna sem var.
Eldmóðurinn er til staðar. Maður
heyrir einnig á Íslendingum að fólk
ætlar að ferðast og margir eru
komnir af stað.“
Albert segir þó að fólk þurfi enn
að passa sig, þótt kórónuveiru-
faraldurinn sé að mestu leyti geng-
inn niður. „Taka með sér sprittið,“
segir hann.
Hver staður hefur sérkenni
Þá segist hann tengjast ferða-
mannaiðnaðinum að vissu leyti.
„Ég stofnaði safn á Fáskrúðsfirði
um franska sjómenn og það var
mitt aðalstarf í um 10 ár. Það er nú
í Franska spítalanum fyrir austan.
Það eru hvergi eins miklar minjar
um franska sjómenn og þar. Það
voru fleiri þúsund franskir sjó-
menn hérna á hverju ári, í aldir, að
veiða fisk,“ segir Albert.
„Hver staður hefur sitt sérkenni.
Eins og bara þetta með frönsku
sjómennina á Fáskrúðsfirði. Það er
franski bærinn á Íslandi getum við
sagt. Við tengjum til dæmis saman
Húsavík og hvalaskoðun svolítið
mikið. Það er áhugavert hvernig
fólk býr til sína sérstöðu mjög
víða,“ segir hann.
„Þá eru margir sem nota hráefni
úr héraði og það er alveg frábært
framtak. Það er svo mikið um lítil
leyndarmál hér og þar.“
Kjörið tækifæri
Albert tekur undir með blaða-
manni að nú í sumar sé kjörið tæki-
færi fyrir Íslendinga að ferðast um
landið. „Það verður minna af ferða-
mönnum. Við þurfum ekki að agnú-
ast út í ferðamenn, eins og sumir
hafa gert þótt ég sé nú ekki einn af
þeim, búandi í miðbænum. Ég
gleðst yfir öllu lífinu sem hefur
verið þar.“
Heldurðu að þið verðið hissa á
öllum þeim breytingum sem orðið
hafa á ferðamannastöðum um land-
ið, líkt og við Gullfoss og Geysi?
„Miðað við hvað við vorum hissa
að sjá aðstæður þar held ég að svo
verði. Svo er ég búinn að vera að
heyra af stöðum sem ég bara vissi
ekki að væru til. Bæði veitinga-
stöðum og gististöðum, áhugaverð-
um og fallegum stöðum. Þetta
verður bæði til að svala okkar for-
vitni og annarra. Svo langar okkur
að fara á staði þar sem veðrið var
tekið í gamla daga.“
Þar sem veðrið var tekið?
„Já, þar sem voru veðurstöðvar.
Þótt Páll hafi farið víða og heim-
sótt þær hefur hann ekki komið á
alla staði.“
Blikur á lofti
Albert segir þá Bergþór hafa gam-
an af því að ferðast með Páli, sem
verður 97 ára í sumar. „Hann er
hafsjór af fróðleik og það þekkja
hann mjög margir, sem fyrrver-
andi veðurstofustjóra og veður-
fræðing í sjónvarpi. Það hafa
margir gaman af því að hitta
hann.“
Þá hefur Páll sjálfur gaman af
ferðalögunum. „Hann er svo nýj-
ungagjarn, fór í fallhlífarstökk fyr-
ir tveimur árum,“ segir Albert.
Í færslu á bloggsíðu sinni um
ferðina að Gullfossi og Geysi segir
Albert frá því þegar Páll fræddi þá
félaga um bólstraský, dægurský af
uppstreymi og svo framvegis. „Svo
fer hann að skoða jarðlög og segir
að þetta sé frá ákveðnum tíma og
svona. Svo þegar það er blika á
lofti er það merki um að það sé að
koma rigning daginn eftir. Ef þú
veist hvað blika er geturðu séð
þetta. Fólk í gamla daga rýndi
miklu meira í veður og skýjafar. Í
dag förum við bara á netið og vit-
um ekki hvað blika er,“ segir Al-
bert og hlær.
Hér stillir þríeykið sér upp við Öxarárfoss þar sem hugmyndin að blogginu kviknaði upphaflega. Albert segir aðstöðuna á ferðamannastöðum mjög góða.
’Það er svo mikill hug-ur í öllum. Fólk er ekk-ert að gefast upp þótt þaðsé ekki þessi mikli fjöldi
ferðamanna sem var.
Eldmóðurinn er til staðar.
Maður heyrir einnig á
Íslendingum að fólk ætlar
að ferðast og margir
eru komnir af stað.
Þótt Páll Bergþórsson sé að
verða 97 ára gamall veigrar hann
sér ekki við ferðalögum. Hér er
hann í Hörgárdal í fyrra.