Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2020, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.5. 2020
LESBÓK
Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com
Sölustaðir:
Hagkaup, Fjarðarkaup, Melabúðin,
Nettó, Heilsuhúsin, Vegan búðin,
Fiskkompaní, Frú Lauga, Brauðhúsið
og Matarbúr Kaju á Akranesi
CHAI
LATTE
GIFTINGAR John Krasinski, sem flestir þekkja sem
Jim Halpert í þáttunum The Office, vígði par til hjóna-
bands í gegnum samskiptaforritið Zoom um aðra helgi.
Krasinski hefur haldið úti vefþáttunum Some Good
News síðan kórónufaraldurinn fór af stað og bauð
parinu, sem trúlofaðist á sama hátt og karakter Kras-
inskis og Jennu Fischer í The Office, við bensínstöð, í
þáttinn. Þeim að óvörum bauð hann einnig nánustu ætt-
ingjum og vinum í spjallið og þar sem hann hafði nýlega
náð sér í réttindi vígði hann þau til hjónabands. Eftir
fyrsta koss hjónanna bauð Krasinski í spjallið leikhópi
þáttanna, sem lék eftir eftirminnilegt dansatriði úr
hjónavígslu Krasinskis og Fischer í þáttunum við lagið
Forever með Christopher Maurice Brown.
Giftust með The Office
John Kras-
inski hélt
uppi fjörinu.
AFP
SÍMTÖL Grínistinn Adam Sandler var gestur
í spjallþætti Jimmys Kimmels á dögunum og
sagði hann frá einu af síðustu skiptunum sem
hann fór út úr húsi vegna annars en nauðsynja
áður en fólk var hvatt til að halda sig heima
vegna kórónuveirunnar. Fór hann ásamt fjöl-
skyldu sinni á kvikmyndina Sonic the Hedge-
hog þar sem Jim Carrey leikur vonda kallinn
Dr. Robotnik. Finnst mörgum Carrey hverfa
aftur til fyrri tíma í leik sínum þar sem fífla-
lætin voru í fyrirrúmi. Sandler var svo ánægð-
ur með frammistöðu Carreys í myndinni að
hann ákvað að hringja í kappann í miðri mynd
til að hrósa honum fyrir leik sinn.
Hringdi í stjörnuna í miðri mynd
Adam Sandler er ekkert að tvínóna við hlutina.
AFP
Á þessum tíma höfðu menn í
Hollywood ekki mikla trú á fram-
haldsmyndum en þar sem miða-
sala fyrri myndarinnar gekk vel
og Lucas náði að fjármagna þessa
sjálfur voru menn hjá 20th Cent-
ury Fox fljótir að gera við hann
samning um að framleiða mynd-
ina. Upphaflega átti hún að kosta
18 milljónir bandaríkjadala en
kostaði á endanum 33 milljónir og
varð að einni dýrustu mynd sög-
unnar fram að þeim tíma. Hún er
talin ein besta mynd kvikmynda-
sögunnar, sú besta Star Wars-
myndanna og ein fárra framhalds-
mynda sem eru sagðar betri en sú
fyrri.
Upprunalega Star Wars-kvikmyndin, sem seinnavar kölluð Star Wars: Ep-
isode IV – A New Hope, naut
mikilla en nokkuð óvæntra vin-
sælda eftir að hún kom út árið
1977. George Lucas, sem skrifaði
og leikstýrði myndinni, hafði
tryggt sér réttinn á framhalds-
myndum myndarinnar og var
spenntur fyrir því að segja fleiri
sögur innan þess ótrúlega heims
sem hann hafði skapað. Honum
fannst sagan ekki öll sögð og
ákvað því að gera aðra mynd, The
Empire Strikes Back, sem kom út
í Bandaríkjunum fyrir nákvæm-
lega 40 árum á fimmtudaginn var.
Með því að fjármagna myndina
sjálfur tryggði Lucas sér bróð-
urpart hagnaðar myndarinnar auk
þess að samningurinn við Fox
sagði skýrt að framleiðslufyr-
irtækið hefði ekkert að segja með
lokaútgáfu myndarinnar. Fjárfest-
ing Lucas skilaði sér margfalt en
myndin hefur halað inn jafngildi
547 milljóna dollara á heimsvísu
síðan hún kom út.
Lucas ákvað að hvorki skrifa
handritið að myndinni né leikstýra
henni. Hugmyndin að söguþræð-
inum var þó frá honum komin.
Hann réð Leigh Brackett til að
skrifa handritið en vegna veikinda
og seinna andláts hennar eftir að
hafa skrifað fyrsta uppkast hand-
ritsins þurfti Lucas að halda
áfram með það sjálfur.
Úr varð upprunasaga Svart-
höfða, Loga geimgengils og Leiu
prinsessu sem allir sem horft hafa
á myndirnar þekkja. Auk þess
ákvað Lucas að myndin yrði önnur
í þriggja mynda þríleik. Til að
ljúka við handritið fékk Lucas
Lawrence Kasdan, handritshöfund
Indiana Jones-myndarinnar Raid-
ers of the Lost Ark, til verksins.
Þá var Irvin Kershner fenginn til
að leikstýra myndinni.
Ætlaði að gera
mynd um Flash
Star Wars-kvikmyndirnar þrjár
sem komu út á áttunda og níunda
áratug síðustu aldar voru braut-
ryðjandi í kvikmyndagerð. Holly-
wood fór að einbeita sér meira að
stórmyndum (e. blockbuster) með
tæknibrellum og hasar í kjölfar
Svarthöfði biðlar til sonar
síns, Loga geimgengils, um
að ganga til liðs við sig og
stjórna Veldinu með sér.
Ljósmyndir/Lucasfilm
„Nei, ég er
faðir þinn“
40 ár eru liðin frá því Star Wars-myndin The Emp-
ire Strikes Back kom út. Myndin er talin ein besta
framhaldsmynd allra tíma en oftast er rangt farið
með frægustu tilvitnun hennar.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
Áhrif Star Wars-kvikmyndanna má sjá víða. Í myndunum er hug-
myndafræði Jedi-riddaranna áberandi. Þeir trúa því að Mátturinn
sé orka sem búi í öllum lifandi hlutum. Mátturinn umkringi okkur,
fari í gegnum okkur og bindi vetrarbrautina saman. Svo virðist sem
mörgum lítist vel á þessa hugmyndafræði og út frá henni hefur
sprottið trú sem mörg þúsund manns fylgja.
Að minnsta kosti ef marka má manntal
ríkja á borð við Bretland, Ástralíu og Kanada
sem dæmi. Í manntali Bretlands árið 2001
sögðust 390.127 manns vera Jedi-trúar og þar
með voru fleiri sem aðhylltust trú Jedi-
riddaranna en búddisma og gyðingatrú. Árið
2011 hafði fækkað heldur í hópi Jedi-
riddaranna sem voru nú orðnir rúmlega
176 þúsund í Bretlandi en enn nóg af ridd-
urum til að bjarga heiminum. Ekki virðist
Sith-trúin, sem erkióvinir Jedi-riddaranna
aðhyllast, hafa náð eins miklu fylgi.
Eru Jedi-riddararnir til?
Margir vilja
vera eins og
Jedi-riddararnir.