Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2020, Síða 29
myndanna. Tæknibrellur í kvik-
myndum höfðu á þeim tíma lítið
breyst síðan á sjötta áratugnum
en Star Wars fylgdi sprenging í
þessum málum og tölvur voru
fyrst notaðar við brellur.
Upphaflega vildi George Lucas
gera mynd byggða á þáttunum um
Flash Gordon en tókst ekki að
tryggja sér réttinn á henni. Þess í
stað hófst hann handa við að gera
mynd í anda þáttanna sem byggð-
ist á ýmsum heimildum eins og
trúarbrögðum, þjóðsögum og
riddarasögum svo eitthvað sé
nefnt. Úr varð það sem í dag er
kallað geimópera og byggist sögu-
þráðurinn að miklu leyti á bókinni
The Hero With a Thousand Faces
þar sem rætt er um sögu hetj-
unnar sem finna má í bók-
menntum um allan heim í tímans
rás.
Lucas gerði líklega einn besta
samning kvikmyndasögunnar þeg-
ar hann samdi við Fox um að leik-
stýra A New Hope. Hann hafði
leikstýrt mynd fyrir fyrirtækið,
American Graffiti, sem kom út ár-
ið 1973 og seldist vel í kvikmynda-
húsum. Þetta varð til þess að hann
gat krafist hærri launa fyrir leik-
stjórnina en í stað þess að gera
það samdi hann um að eiga rétt-
inn á öllum framhaldsmyndum og
varningi tengdum Star Wars.
Á þessum árum voru hvorki
framhaldsmyndir né varningur
kvikmynda í hávegum höfð en
samningurinn borgaði sig heldur
betur og árið 2012 þegar Lucas
seldi fyrirtæki sitt, Lucasfilm, og
þar með réttinn á kvikmyndunum,
til Disney var upphæðin ríflega
fjórir milljarðar bandaríkjadala,
jafngildi rúmlega 500 milljarða
króna á gengi þess tíma.
Kvikmyndirnar eru nú 12 tals-
ins og hafa getið af sér fjölda
tölvuleikja, sjónvarpsmynda, spila
og leikfanga svo eitthvað sé nefnt.
Tekjurnar af þessu hafa verið
gríðarlegar en stærstan þátt eiga
leikföng og annar varningur sem
skilað hefur rúmlega 42 millj-
örðum í kassann.
Frægasta tilvitnunin röng
En aftur að The Empire Strikes
Back. Mörg atriði myndarinnar
eru fyrir löngu orðin ódauðleg og
skipa stóran sess í kvikmyndasög-
unni. Fyrst ber að nefna atriðið
þegar Svarthöfði segir Loga að
hann sé faðir hans. „Logi, ég er
faðir þinn“ („Luke, I am your fat-
her“) er líklega ein frægasta setn-
ing kvikmyndasögunnar. Fólk sem
aldrei hefur séð Star Wars kann-
ast jafnvel við hana. En málið er
að Svarthöfði segir þetta aldrei.
Hann segir „nei, ég er faðir þinn“,
en auðvitað er ólíklegt að fólk
tengi eins sterkt við þá setningu
enda hefur hún enga beina skír-
skotun í myndina.
Önnur fræg setning varð til
þegar frysta átti töffarann Han
Solo í kolefni. Einhverra hluta
vegna leyfðu menn Svarthöfða
honum að kyssa Leiu prinsessu
áður en hann yrði frystur. Eftir
kossinn segir Leia: „Ég elska
þig,“ og Solo svarar: „Ég veit.“
Þessa ódauðlegu setningu er
hvergi að finna í handriti mynd-
arinnar en Harrison Ford stakk
upp á því að prófa hana í einni
tökunni. Við áhorfsprófanir fannst
fólki setningin svo skemmtileg að
Lucas ákvað að hafa hana í loka-
útgáfunni.
Þá má nefna einn ástælasta kar-
akter myndanna, Yoda. Hann var
leikinn af brúðuleikaranum Frank
Oz sem hélt áfram að ljá honum
rödd sína eftir að hann var tölvu-
gerður í öðrum þríleik Star Wars.
Yoda á fjölda skemmtilegra til-
vitnana en sérstakt orðfæri hans
hefur löngum vakið lukku meðal
áhorfenda.
Yoda er karakter sem margir kannast
við enda með eindæmum skemmti-
legur og vitur náungi.
George Lucas veðjaði heldur betur á
sjálfan sig þegar hann framleiddi Star
Wars myndirnar upprunalegu.
24.5. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
KVIKMYNDIR Fyrsta stikla fyrir
nýjustu kvikmynd Spikes Lees, Da 5
Bloods, kom út á dögunum. Verður
myndin frumsýnd á Netflix 12. júní
næstkomandi. Hún segir frá fjórum
fyrrverandi hermönnum bandaríska
hersins sem börðust í Víetnamstríð-
inu. Þeir heimsækja gamlar slóðir
og leita bæði fjársjóðs og leifa gam-
als félaga sem lést í stríðinu. Fróð-
legt verður að sjá hvernig Lee tekst
upp en hann hlaut Óskarsverðlaun
fyrir besta handrit fyrir síðustu
mynd sína, BlacKkKlansman.
Stríðsmynd frá Spike Lee
Spike Lee er með virtari leikstjórum.
AFP
BÓKSALA 13.-19. MAÍ
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1
Hryllilega stuttar
hrollvekjur
Ævar Þór Benediktsson
2
Dagbók Kidda klaufa 12
– flóttinn í sólina
Jeff Kinney
3 Fólk í angist Fredrik Backman
4 Morðin í Háskólabíó Stella Blómkvist
5 Elskuleg eiginkona mín Samantha Downing
6 Þess vegna sofum við Matthew Walker
7 Heillaspor Gunnar Hersveinn o.fl.
8 Afnám haftanna Sigurður Már Jónsson
9 Í vondum félagsskap Viveca Sten
10 Milljarðastrákurinn David Walliams
1 Samhengi hlutanna Eygló Jónsdóttir
2 Helköld sól Lilja Sigurðardóttir
3 Kokkáll Dóri DNA
4 Sjálfstætt fólk Halldór Laxness
5 Stelpur sem ljúga Eva Björg Ægisdóttir
6 Tilfinningabyltingin Auður Jónsdóttir
7 Hrauney Karólína Pétursdóttir
8 Skuggaskip Gyrðir Elíasson
9 Íslandsklukkan Halldór Laxness
10 Staða pundsins Bragi Ólafsson
Allar bækur
Skáldverk og hljóðbækur
Upp á síðkastið hef ég verið að
endurlesa einn mikilfenglegasta
bókaflokk síðustu aldar, The Book
of the New Sun,
eftir Gene Wolfe.
Þar segir af böðl-
inum Severian og
misförum hans á
deyjandi jörðu
framtíðarinnar.
Heimssmíðar
Wolfe eru framúr-
skarandi og lesandinn verður
fljótt gagntekinn af því sem sagt
er frá — og það sem mikilvægara
er, því sem ekki er sagt frá.
Þá má ég til með að mæla ein-
dregið með hinni frábæru ljóða-
bók Melkorku Ólafsdóttur, Hérna
eru fjöllin blá. Þetta verk er gleði-
legt og skýrt og
vongott – Mel-
korka er upplífg-
andi og vitur og
málar yndislegar
myndir af lífinu í
veröldinni. Það er
eitthvað við text-
ann hennar, eitt-
hvað við hugmyndirnar, eitthvað
við skynbragðið fyrir tungumálinu
sem mér finnst svo dáleiðandi, ég
get ekki fengið nóg af því – og svo
þyrstir mig strax í meira.
Þá hef ég einnig
verið að lesa frá-
bæra frásögn
sagnfræðingsins
Helen Castor um
Jóhönnu af Örk,
Joan of Arc: A Hi-
story. Þessi saga
er auðvitað mik-
ilfengleg í sjálfri sér; um það bil
árið 1425 berst ungri stúlku vitr-
un frá Guði, en hún tekur sig svo
til og hertekur í kjölfarið Orléans
í nafni Karls 7.
Frakkakonungs –
og það á aðeins
níu dögum. Her-
takan gerði Karli
síðan kleift að láta
krýna sig í Reims.
Helen Castor rek-
ur ekki einvörðungu sögu Jó-
hönnu af mikilli alúð og ná-
kvæmni heldur greinir hún þess
að auki í miklum smáatriðum frá
pólitíska landslaginu sem Jóhanna
lifði og hrærðist í.
Nokkrar eru þær svo sem mig
langar að lesa. Til að mynda þætti
mér gaman að lesa Maxims hans
La Rochefoucauld og The Song of
Achilles eftir Madeline Miller, en
ég hef heyrt góða hluti um bæði
verk, þótt ólík séu. The Hidden
Life of Trees: What They Feel,
How They Communicate – Disco-
veries from a Secret World eftir
Peter Wohlleben
er þar að auki
hátt á listanum
hjá mér – ég er
hræddur um að
við gefum trjám
nefnilega ekki
nægilega mikinn
gaum. Svo dauð-
langar mig líka að klára loksins
Gödel, Escher, Bach: An Eternal
Golden Braid eftir hinn dásam-
lega Douglas Hofstadter. Ætli
mér muni nokkurn tímann takast
að ljúka henni?
KARL ÓLAFUR ER AÐ LESA
Yndislegar
myndir af lífinu
Karl Ólafur
Hallbjörnsson
er heimspek-
ingur.
Fjallað verður um tískustrauma
í fatnaði, förðun, snyrtingu,
sólarkremum auk umhirðu
húðarinnar, dekur og fleira.
- meira fyrir áskrifendur
Pöntun auglýsinga er til föstudagsins
29. maí. Nánari upplýsingar veitir
Katrín Theodórsdóttir í síma 569 1105
og kata@mbl.is
SMARTLANDS-
BLAÐ
Sérblað fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 5.júní