Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2020, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.5. 2020
08.00 Strumparnir
08.20 Blíða og Blær
08.40 Dóra og vinir
09.05 Mæja býfluga
09.20 Adda klóka
09.45 Zigby
09.55 Mia og ég
10.20 Lína langsokkur
10.45 Latibær
11.05 Lukku láki
11.30 Ævintýri Tinna
12.00 Nágrannar
12.20 Nágrannar
12.40 Nágrannar
13.05 Nágrannar
13.25 Borgarstjórinn
13.50 McMillions
14.40 Friends
15.05 Sápan
15.35 Drowning in Plastic
16.30 60 Minutes
17.40 Víglínan
18.26 Veður
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.50 Sportpakkinn
19.00 The Greatest Dancer
20.45 Between Us
21.30 Killing Eve
22.20 Gasmamman
23.05 Prodigal Son
23.55 Manifest
00.35 Cardinal
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 93,5
Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
20.00 Eitt og annað af sumr-
inu
20.30 Eitt og annað af tónlist
21.00 Eitt og annað af sumr-
inu
21.30 Tónlistaratriði úr Föstu-
dagsþættinum
18.00 Tónlist
18.30 Ísrael í dag
19.30 Jesús Kristur er svarið
20.00 Omega
21.00 Tónlist
22.30 Gegnumbrot
23.30 Tónlist
20.00 Mannamál (e)
20.30 Suðurnesja-magasín
Víkurfrétta (e)
21.00 Eldhugar: Sería 3 (e)
21.30 Hugleiðsla með Auði
Bjarna (e)
21.45 Bókin sem breytti mér
(e)
Endurt. allan sólarhr.
16.05 Malcolm in the Middle
16.25 Everybody Loves Ray-
mond
16.50 The King of Queens
17.10 How I Met Your Mother
17.35 A Million Little Things
18.20 This Is Us
19.05 Love Island
20.00 The Block
21.20 Madam Secretary
22.10 Law and Order: SVU
22.55 Ray Donovan
23.50 The Walking Dead
06.55 Bæn og orð dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Tríó.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Fótspor hans minnast
fjallið og tónlist.
09.00 Fréttir.
09.03 Samtal.
10.00 Fréttir.
10.05 Veðurfregnir.
10.15 Bók vikunnar.
11.00 Guðsþjónusta í Há-
teigskirkju.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
12.40 Veðurfregnir.
13.00 Sögur af landi.
14.00 Víðsjá.
15.00 Glans.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Úr tónlistarlífinu.
17.25 Orð af orði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Tölvuleikjafíkn.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Óskastundin.
19.40 Orð um bækur.
20.35 Gestaboð.
21.30 Úr gullkistunni.
22.00 Fréttir.
22.05 Veðurfregnir.
22.10 Á reki með KK.
23.10 Frjálsar hendur.
24.00 Fréttir.
00.05 Næturútvarp Rásar 1.
07.15 KrakkaRÚV
07.16 Tulipop
07.19 Molang
07.23 Húrra fyrir Kela
07.46 Minnsti maður í heimi
07.47 Hæ Sámur – 49. þáttur
07.54 Hrúturinn Hreinn
08.01 Bréfabær
08.12 Með afa í vasanum
08.24 Stuðboltarnir
08.35 Konráð og Baldur
08.48 Nellý og Nóra
08.55 Múmínálfarnir
09.18 Ronja ræningjadóttir
09.42 Vísundur
09.45 Krakkafréttir vikunnar
10.00 Herra Bean
10.25 Músíkmolar
10.35 Menningin – samantekt
11.00 Silfrið
12.10 Leikhúsveisla í stofunni
13.45 Eldsmiðjan
14.30 Djók í Reykjavík
15.00 Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands í beinni útsend-
ingu
16.00 Nýjar hendur – innan
seilingar
17.00 Veröld sem var
17.25 Músíkmolar
17.35 Poppkorn – sagan á bak
við myndbandið
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Söguspilið
18.35 Sætt og gott
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Veður
19.45 Landinn
20.15 Músíkmolar
20.25 Úti
20.55 Viktoría
21.45 Framúrskarandi vinkona:
Saga af nýju ættarnafni
22.35 Frantz
00.25 Kafbáturinn
13 til 16 Pétur Guðjóns Góð tónlist og létt spjall á
sunnudegi.
16 til 18 Tónlistinn Topp40 með DJ Dóru Júlíu
Einn vinsælasti plötusnúður landsins kynnir vinsæl-
ustu lög landsins á K100. Tónlistinn er eini opinberi
vinsældalisti landsins, unninn upp úr gögnum frá Fé-
lagi hljómplötuframleiðanda.
18 til 00 K100 tónlist Besta blandan af tónlist á
K100 í allt kvöld.
Dj Dóra Júlía sagði frá fallegu
myndbandi sem hefur slegið í
gegn á samfélagsmiðlum upp
á síðkastið í ljósa punktinum
á K100. Sagði hún frá því að
Vana Ebrahimi og bróðir
hennar væru fyrsta kynslóðin
í fjölskyldunni til þess að fara
í háskóla en foreldrar þeirra
komu allslausir til Bandaríkj-
anna og vildu hefja þar nýtt
líf. Krakkarnir útskrifuðust á
dögunum úr læknisfræði og lögfræði og fóru og
heimsóttu afa sinn í kjölfarið fyrir utan elliheimilið
hans. Samskipti þeirra fóru fram í gegnum glerhurð,
en á upptöku sem náðist af þeim má sjá afann
hrærðan og stoltan gráta yfir þessum frábæra
árangri barnabarnanna.
Myndbandið má sjá á K100.is.
Grét úr gleði yfir
barnabörnunum
Thrissur, Indlandi. AFP. | Ávöxt-
urinn er grænn, alsettur göddum og
gefur frá sér mikla, sæta lykt. Saðn-
ingaraldin var áður illgresi í bak-
görðum á suðurströnd Indlands en
er nú að verða eftirlæti þeirra sem
vilja sniðganga kjöt á Vesturlöndum.
Saðningaraldin hefur öldum sam-
an verið hluti af mataræði í
Suður-Asíu. Svo mikið var af því að
árlega fóru heilu tonnin í súginn. Nú
eru Indverjar, sem eru helstu fram-
leiðendur saðningaraldins, farnir að
færa sér vinsældirnar í nyt. Saðn-
ingaraldininu er hampað sem „ofur-
fæðu“ í stað kjöts og nýtur það vin-
sælda matreiðslumanna allt frá San
Francisco til London og Delí vegna
þess að því svipar til svínakjöts þeg-
ar það er ekki fullþroskað.
„Við fáum mikið af fyrirspurnum
að utan … Á alþjóðlegum mörkuðum
hefur áhuginn á saðningaraldini
margfaldast,“ sagði Varghese Tha-
rakkan, sem rekur plantekru í
Thrussur-héraði í Kirala á Indlandi.
Ávöxturinn vegur fimm kíló að
meðaltali. Aldinkjötið er gult og vax-
kennt þegar það er fullþroskað og er
borðað ferskt eða notað í kökur,
safa, ís og franskar. Óþroskað er það
notað í karrírétti eða steikt. Á
Vesturlöndum er rifið saðning-
araldin orðið vinsælt í stað tætts
svínakjöts og er jafnvel notað í álegg
á pítsur.
„Fólk elskar þetta,“ segir Anu
Bhambri, sem á veitingastaðakeðju í
Bandaríkjunum og á Indlandi.
„Saðningaraldintakó hafa slegið í
gegn á hverjum einasta veitingastað.
Saðningaraldinsteikin – hún er pönt-
uð á hverju borði og í uppáhaldi hjá
mér.“
James Joseph sagði lausu starfi
sínu sem stjórnandi hjá Microsoft
þegar hann varð var við áhugann á
saðningaraldini á Vesturlöndum og
sá að það var farið að koma í staðinn
fyrir kjöt í vegan-mataræði. Hann
selur nú afurðir af ávextinum.
Hann segir að kórónuveirufarald-
urinn hafi bætt í eftirspurnina með
tvennum hætti.
„Kórónuveiran skapaði ótta við
kjúkling og fólk skipti yfir í meyrt
saðningaraldin. Í Kerala leiddu höft-
in til snaraukinnar eftirspurnar eftir
þroskuðu, grænu saðningaraldini og
aldinfræjum vegna skorts á græn-
meti út af höftum á landamærum,“
sagði hann.
Áhugi á vegan-mataræði fór hrað-
vaxandi fyrir faraldurinn og það
hafði sín áhrif á eftirspurn eftir stað-
genglum fyrir kjöt. Eftirspurnin
hefur gert að verkum að nýjar
saðningaraldinekrur spretta upp í
Kerala. „Það er fast undir tönn eins
og kjöt – það veldur vinsældum og
líkt og kjöt drekkur það kryddin í
sig,“ sagði Joseph.
Saðningaraldinið þolir vel þurrka
og þarf litla umönnun auk þess að
vera næringarríkt. Tharakkan rækt-
aði áður gúmmítré en skipti yfir í
saðningaraldin og getur ræktað það
allan ársins hring. Hvert tré gefur af
sér 150 til 250 ávaxta uppskeru.
„Þegar ég hjó niður gúmmítrén
héldu allir að ég væri orðinn galinn,“
sagði hann brosandi. „Nú kemur
sama fólkið og spyr hvað leyndar-
málið sé á bak við velgengni mína.“
Eftirspurnin eftir saðningaraldini
í Tamil Nadu og Kerala er 100 tonn
á dag þegar mest er og veltan á ári
er 19,8 milljónir dollara. Samkeppni
fer vaxandi frá Bangladess og Taí-
landi. Áður fyrr var litið á saðning-
araldinið sem ávöxt fátæka manns-
ins en nú er öldin önnur.
AFP
MATUR FÁTÆKA MANNSINS SLÆR Í GÆGN
Saðningaraldin
í stað kjöts
Saðningaraldin má elda með ýmsum hætti. Ávöxturinn var áður litinn horn-
auga, en vinsældir hans fara vaxandi á Vesturlöndum og ræktun eykst.
AFP
Varghese Tharakkan verkar
saðningaraldin á plantekru
sinni í Thrissur á Indlandi.
BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S
O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6
recast svefnsófi kr. 149.900
vandaðir og góðir svefnsófar frá innovation living denmark - skoðaðu úrvalið á linan.is