Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2020, Qupperneq 32
SUNNUDAGUR 24. MAÍ 2020
york
ligne
classico
magnifique
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
SERTA ER OPINBER SAMSTARFSAÐILI
HILTON WORLDWIDE HÓTELKEÐJUNNAR
Nótt fyrir tvo á Hilton Reykjavik Nordica,
ásamt morgunverði og aðgangi að Hilton
Reykjavik Spa, fylgir kaupum á Serta fimm
stjörnu hótelrúmi.
Verðmæti: 36.000 kr.
Kynningarverð: 296.650 kr
Verð frá: Classico 160 x 200 cm (botn, fætur, dýna, yfirdýna og gafl)
Fullt verð: 349.000 kr. (með Hilton Reykjavik Nordica kaupauka 385.000 kr.)
5STJÖRNUHÓTELRÚMIN frá Serta eru framleidd til að fullnægja
ýtrustu kröfum. Fjaðrandi botn gefur 5 svæða heilsudýnunni
óviðjafnanlega fjöðrun og stuðning, lúxus yfirdýnan lagast
að þér og þér líður eins og þú svífir. Velkomin í þitt 5 stjörnu
heilsurúm, heima hjá þér – allar nætur – alltaf.
CLASSICO, YORK OG LIGNE eru með Serta Splendid Royal
heilsudýnu frá Serta. Hún er fimm svæðaskipt pokagormadýna
með góðum stuðningi við bak en mýkra gormakerfi á axla- og
mjaðmasvæði. Hægt er að velja um tvo stífleika á dýnunni eftir
því hvað hentar hverjum og einum. Yfirdýnan er millistíf, úr
kaldpressuðum svampi og vinnur vel á móti fjöðruninni í botni
og dýnu.
MAGNIFIQUE rúmið er með Serta Royalty Superior heilsudýnu
sem sker sig frá Splendid Royal m.a. með því að vera með
tvískiptu gormakerfi og aukinni kantstyrkingu.
Áklæðið á rúmunum er slitsterkt bómullaráklæði, ofnæmisfrítt
og andar einstaklega vel. Það er fáanlegt í nokkrum litum sem
eru mismunandi eftir rúmgerðum. Hægt er að velja mismunandi
fætur og einnig eru fáanleg náttborð í stíl.
FIMM STJÖRNU
LÚXUS HÓTELRÚM
– HEIM TIL ÞÍN –
Fimm stjörnu Hótel -rúmalínan frá Serta er
kominn aftur og fæst á tilboðsverði í Betra Baki
auk þess að nótt á Reykjavik Nordica ásamt
morgunverði fyrir tvo og aðgangi að Hilton Reykjavik
Spa fylgir kaupum á Serta fimm stjörnu hótelrúmi.
Í sumar verður Æskusirkusinn með sumarnámskeið
fyrir 8-13 ára börn. Námskeiðið kennir grunntæknina í
ýmsum sirkuslistum og er áhersla lögð á gleði, fag-
mennsku og öryggi iðkenda. Allir þjálfarar eru reyndir
og hafa æft og kennt sirkuslistir í áraraðir.
„Við verðum með átta námskeið, fimm daga löng. Við
förum í gegnum grundvallaatriði í sirkuslistum,“ segir
Daníel Hauksson, kennari hjá Æskusirkusnum.
„Við kennum á nokkur juggl-tól, eins og bolta, snún-
ingsdiska og kasthringi. Svo kennum við jafnvægislistir
og fá krakkarnir að labba á línu, kúlu og veltibretti. Svo
erum við með loftfimleikasilki sem er það allra vinsæl-
asta,“ segir hann og segir krakkana mjög fljóta að læra.
„Það er rosalegt hvað sumir ná langt á stuttum
tíma.“
Í lok námskeiða setja krakkarnir upp sýningu fyrir
foreldra.
Allar upplýsingar eru á aeskusirkus.is.
Loftfimleikasilki vinsælast
Börnin geta lært sirkuslistir í sumar hjá Æskusirkusnum.
Það er nóg um að vera í sumar hjá Æskusirkusnum. Krakkar á aldrinum 8-13 geta lært ýmsar sirkuslistir þar.
Orðið túristagos festi sig rækilega
í sessi þegar gaus á Fimmvörðu-
hálsi fyrir tíu árum og gígarnir
Magni og Móði mynduðust. Orðið
á sér þó lengri sögu. Ef marka má
yfirborðslega leit í grunninum
timarit.is birtist það fyrst í fjöl-
miðlum fyrir hálfri öld þegar gaus
í Skjólkvíum í Heklu. Gosið hófst
5. maí og stóð í tvo mánuði.
Í Morgunblaðinu 23. maí 1970
birtist frásögn af ferð blaða-
manns á vettvang. Slæðingur af
fólki var fyrir að fylgjast með gos-
inu, þar á meðal Sigurður Þór-
arinsson, náttúrufræðingur, jarð-
fræðingur, landfræðingur,
eldfjallafræðingur og jöklafræð-
ingur, sem blaðamaður tekur
tali. Kveðst Sigurður ánægður
með gang gossins. „En það sem
gerir þetta nýja gos sérstætt er
hve þægilegt er að komast að því
til að horfa á það. Þetta er að-
gengilegasta túristagos, sem ég
hef séð á þessu landi. Þetta gos er
eingöngu fallegt. Mér finnst að
fólk ætti að nota sér það að koma
hingað og virða gosið fyrir sér.“
Menn verði þó að gæta sín á
nýja hrauninu: „Einnig getur
komið fyrir að menn brenni sól-
ana undan skónum á heitu hraun-
inu og þá eru menn illa staddir.“
GAMLA FRÉTTIN
Fyrsta
túrista-
gosið?
Dr. Sigurður Þórarinsson útskýrir jarðfræði Þingvallasvæðisins fyrir Svía-
konungi á barmi Almannagjár árið 1975.
Morgunblaðið/Ól.K.M.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Vincent van Gogh,
listamaður
Kristofer Hivju,
norskur leikari
Björgvin Gunnarsson,
kennari