Fréttablaðið - 09.01.2021, Side 8

Fréttablaðið - 09.01.2021, Side 8
SAMGÖNGUMÁL Ný Evrópureglu- gerð um flug dróna sem frestaðist vegna heimsfaraldursins tók gildi um áramótin og er undirbúningur að innleiðingu hennar hérlendis hafinn. Drónaf lug er sístækkandi áhugamál hérlendis og f lugmenn telja nú þúsundir. „Þessi reglugerð miðar að því að auka yfirsýn yfir drónastarfsemi og að auka öryggi fólks. Þetta er mun ítarlegra regluverk en hefur verið,“ segir Þórhildur Elínardóttir, upp- lýsingafulltrúi Samgöngustofu. Evr- ópureglugerðin mun leysa núver- andi reglugerð Íslands um fjarstýrð loftför af hólmi. Verður drónaf lugi skipt upp í þrjá meginflokka, tómstundaflug, atvinnuf lug og f lug stærri dróna. Þá eru undirf lokkar undir hverj- um f lokki og f lokkun eftir þyngd þeirra. Vægari reglur eru um dróna undir 250 grömmum sem eru skil- greindir af framleiðendum sem leikföng. Langf lestir drónar sem seldir eru hér á landi falla í miðju- flokkinn, 250 til 2.000 grömm með myndavél og raf hlöðum. Þeim verður að fljúga í 50 metra fjarlægð frá fólki. „Í dag er kerfið þannig að skylt er að skrá dróna sem notaðir eru í atvinnuskyni. Með nýju reglugerð- inni verða flugmennirnir sjálfir að skrá sig en ekki hvert og eitt tæki. Þá fá þeir númer til að merkja drónana sína,“ segir Þórhildur. Mismiklar kröfur verða gerðar til f lugmanna eftir stærð og gerð þeirra dróna sem þeir f ljúga. Til dæmis verður þeim sem f ljúga drónum undir 250 grömmum ekki gert að gangast undir þjálfun heldur munu þeir aðeins þurfa að lesa handbók framleiðandans. Ekkert aldurstakmark verður á léttustu drónunum en ef dróni vegur meira en 250 grömm verður flugmaðurinn að hafa náð 16 ára aldri. Fyrir stærri dróna mun þurfa að undirgangast vefnámskeið með prófi og jafnvel verklega þjálfun. Það fer allt eftir þeim f lokki sem drónarnir falla í. Þar sem innleið- ingin er enn í vinnslu er ekki vitað á þessum tímapunkti hver mun sjá um námskeið fyrir drónaflugmenn. Drónaverslanir á Íslandi bjóða nú þegar upp á námskeið á dróna. Drónaflug er mjög nýtt á Íslandi og íslenska reglugerðin ekki nema fjögurra ára gömul. Samkvæmt Þórhildi hafa ekki komið upp stór- vægileg atriði varðandi flugið og er henni ekki kunnugt um nein slys vegna drónanna. „Eftir því sem við best vitum hafa drónaeigendur almennt séð sýnt mikla ábyrgð,“ segir Þórhildur. „Þessi nýja grein f lugsins hefur í langf lestum til- vikum gengið mjög vel.“ kristinnhaukur@frettabladid.is Drónaflugmenn þurfi vefnám og hæfnispróf Undirbúningur að innleiðingu nýrrar Evrópureglugerðar um drónaflug er hafinn. Reglur verða hertar. Flugmenn munu þurfa að undirgangast hæfnis- próf og jafnvel verklega þjálfun en það fer eftir stærð og tilgangi drónans. Þúsundir Íslendinga stunda drónaflug. Þeir þurfa brátt að kynna sér reglugerð um sportið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Þessi reglugerð miðar að því að auka yfirsýn yfir dróna- starfsemi og að auka öryggi fólks. Þórhildur Elínar- dóttir, samskipta- stjóri Samgöngu- stofu Samtök sveitarfélaga á höfuðborgar- svæðinu (SSH) auglýsa eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum Sóley Sjóðurinn leggur áherslu á nýsköpunarverkefni í ferðaþjónustu sem eru til þess fallin að auka samkeppnishæfni og stuðla að sjálfbærni og jákvæðum umhverfisáhrifum á höfuðborgarsvæðinu. Sóley er hluti af framfylgd sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins 2020–2024. Fjármunir til úthlutunar úr sjóðnum eru nú 7,0 milljónir kr. Hámarksfjár- hæð úthlutunar til einstakrar styrkumsóknar er 1,5 milljón kr. Úthlutunar- nefnd áskilur sér rétt til að leggja til að öllum umsóknum verði hafnað. Í umsókn skal koma fram rökstuðningur þess að verkefni það sem sótt er um styrk vegna sé í samræmi við tilgang sjóðsins. Umsækjendur skulu sýna fram á getu til að hrinda verkefninu í framkvæmd og með umsóknum skal fylgja, eftir því sem við á, greinargóð lýsing á verkefninu, verk- og tímaáætlun, ítarleg fjárhagsáætlun (kostnaðar- og tekjuáætlun), upp- lýsingar um aðra fjármögnun verkefnis og upplýsingar um eignarhald og rekstrarform. Sjá nánar um starfsreglur sjóðsins á heimasíðu SSH: http://www.ssh.is/soley en þar er einnig að finna rafrænt umsóknareyðu- blað. Umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum hefur verið framlengdur og er til og með 31. janúar 2021. Ákvörðun um úthlutun mun liggja fyrir 15. febrúar 2021. Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu Hamraborg 9, 200 Kópavogi Sími: 564 1788 Netfang: ssh@ssh.is Afgreiðslutímar á www.kronan.is Ódýrt Ódýrt Eltu ódýrt merkið! Ódýrt SPARAR þÉR K R Ó N U R N A R Ód ýrt Ódý rt Ódýrt BANDARÍKIN Joe Biden, verðandi Bandaríkjaforseti, hyggst hraða bólusetningu gegn COVID-19 með því að útbýta nær öllum tiltækum bóluefnisskömmtum landsins þegar hann tekur við völdum. Aðferð Bidens stangast á við stefnu fráfarandi stjórnar um að dreifa ekki öllu tiltæku bóluefni strax. Þar sem bólusetning krefst tveggja skammta hafa sitjandi stjórnvöld geymt forða af bóluefninu til að tryggja að þeir sem hafi nú þegar hlotið fyrri skammtinn fái síðari skammtinn líka. Frá og með fimmtudeginum hafði ríkisstjórnin fengið yfir 21 milljón skammta af bóluefni og milljónir voru komnar í hendur alríkisstjórn- arinnar. 5,9 milljónir manns höfðu verið bólusettar. Talsmaður Bidens segir að kerfi sitjandi stjórnvalda gangi of hægt fyrir sig. Þótt hætta sé á að þessi stefna muni ganga á áætlaða síðari skammta þeirra sem þegar hafa feng- ið fyrri skammt treystir Biden á að bóluefnisframleiðendur muni anna eftirspurn. Þessi stefna gengur þvert á ráðleggingar Matvæla- og lyfjastofn- unar Bandaríkjanna sem Biden hefur áður sagst ætla að fylgja. – atv Vill bólusetja fleiri frekar en spara seinni skammta Stefna Bidens gengur þvert á ráðleggingar Mat- væla- og lyfjastofnunar Bandaríkjanna. 9 . J A N Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.