Fréttablaðið - 09.01.2021, Qupperneq 30
Núna á tímum samkomutak-markana sem staðið hafa yfir ansi lengi, er fólk orðið
uppiskroppa með hugmyndir að
afþreyingu. Fyrir jól var mikið
úrval af alls kyns streymistón-
leikum sem oft voru vel sóttir.
Sumir vinnustaðir voru líka með
streymisviðburði af ýmsu tagi til
að létta starfsfólki sínu lundina.
En núna er komið nýtt ár og enn þá
býr fólk við samkomutakmarkanir
og skammdegið er ekkert að fara
alveg strax. Þá getur verið gaman
að finna sér eitthvað nýtt og
spennandi að gera til að stytta sér
stundirnar.
Það vita eflaust ekki allir af því
að Airbnb býður ekki bara upp á
gistingu heldur líka afþreyingu.
Fólk sem hefur misst tekjur vegna
fækkunar ferðafólks á árinu sem
var að líða hefur þurft að hugsa út
fyrir boxið og finna nýjar leiðir til
að kynna menningu sína fyrir fólki
um allan heim. Það eru fjölmargir
afþreyingarmöguleikar í boði
núna sem hægt er að kaupa aðgang
að á Airbnb-vefnum og njóta í
gegnum streymi. Sem dæmi má
nefna að í kvöld fer fram kennsla
í að teikna lamadýr í gegnum
Zoom-forritið, sem flestum ætti
að vera orðið kunnugt. Kennarinn
býr í Sidney í Ástralíu og mun
hún bjóða þátttakendum að hitta
lamadýrið Cadbury og fylgjast
með því í smástund áður en teikni-
kennslan hefst.
Í hádeginu í dag er í boði Harry
Potter-ferð um Edinborg með
leiðsögn reynds leiðsögumanns
og að sjálfsögðu verður hún í boði
í gegnum netið. Því er hægt, ef
ferðin verður ekki uppseld þegar
þetta kemur út, að upplifa töfra
borgarinnar úr sófanum heima.
Í dag og á morgun er svo hægt að
fara á 90 mínútna langa drag-sýn-
ingu í Portúgal í gegnum Zoom. Sú
sýning hefur samkvæmt lýsingu
slegið í gegn og hafa fyrirtæki eins
og Nike, Facebook, Walmart, You-
Tube og Calvin Klein boðið starfs-
fólki sínu á hana. Á sýningunni
um helgina munu dragdrottningar
kenna þátttakendum að búa til
sangríu frá grunni og fræða þá
um portúgalska menningu. Inn
á milli fara drottningarnar upp á
svið og skemmta áhorfendum með
skemmtiatriðum í kabarettstíl.
Ef fólk hefur áhuga á rólegri
afþreyingu þá er líka í boði að
læra hugleiðslu hjá japönskum
búddamunki nú um helgina, að
sjálfsögðu í gegnum Zoom. Fyrst
segir munkurinn þátttakendum
frá þeim aðferðum sem hann notar
við hugleiðslu og í framhaldi af
því leiðir hann tvenns konar hug-
leiðslu, fyrst er ákveðin mantra
kyrjuð í 20 mínútur og að því
loknu eru gerðar öndunaræfingar í
10 mínútur.
Þetta er aðeins brot af þeirri fjöl-
breyttu afþreyingu sem er í boði
í gegnum Airbnb og það eina sem
þarf til að njóta hennar er netteng-
ing, og auðvitað að borga uppsett
verð. Það er því um að gera að nota
helgina og skoða það sem er í boði
og ferðast til ólíkra staða og læra
eitthvað nýtt og spennandi án þess
að fara neitt.
Í kvöld fer fram
kennsla í að teikna
lamadýr í gegnum
Zoom-forritið sem
flestum ætti að vera
orðið kunnugt. Kennar-
inn býr í Sidney í Ástr-
alíu og mun hún bjóða
þátttakendum að hitta
lamadýrið Cadbury.
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Í Kína eru sæbjúgu þekkt sem heilsubótarfæði og notuð til bóta við hinum ýmsu meinum.
Kínverjar kalla sæbjúgu gjarnan
„ginseng hafsins“ og til eru sagnir
um notkun sæbjúgna þar fyrir
meira en þúsund árum. Arctic
Star sæbjúgnahylkin innihalda
yfir fimmtíu tegundir af nær-
ingarefnum sem geta haft jákvæð
áhrif á lífeðlisfræðilega starfsemi
mannslíkamans, til dæmis er mikið
kollagen í þeim, en það er eitt helsta
uppbyggingarprótein líkamans.
Finnur mikinn mun á sér
Á síðustu árum hefur Arctic
Star sérhæft sig í þróun á fæðu-
bótarefnum, svo sem framleiðslu,
markaðssetningu og sölu á hágæða
sæbjúgnahylkjum. Hylkin eru
framleidd úr íslenskum, hágæða,
villtum sæbjúgum sem eru veidd í
Atlantshafinu.
Magnús Friðbergsson hefur tekið
sæbjúgnahylkin frá Arctic Star
undanfarin ár. „Vinur minn kynnti
mig fyrir sæbjúgnahylkjunum og
þar sem ég hafði lengi verið slæmur
í hnjám, með liðverki og lítið
getað beitt mér, ákvað ég að prófa.
Tveimur til þremur vikum seinna
fann ég mikinn mun.
Nú hef ég tekið sæbjúgnahylkin í
tvö ár og fer allra minna ferða án
óþæginda. Það er algjör bylting
frá því sem áður var. Nú get ég
gert hluti eins og að fara í langar
gönguferðir, sem ég gat varla gert
áður. Að minnsta kosti gerði ég það
ekki með bros á vör og það tók mig
langan tíma að jafna mig eftir álag,“
útskýrir hann. Magnús, sem er 71
árs, hafði fengið að heyra frá lækni
að mikið slit væri í hnjám hans
og ekki væri von á að það gengi til
baka. „Hann sagði mér að kíkja á
fæðingardaginn minn og að ég gæti
ekki búist við að fara aftur í tíma.
Mér fannst vont að heyra þetta og
var því tilbúinn að prófa ýmislegt
sem gæti mögulega lagað þetta.
Sæbjúgnahylkin frá Arctic Star
virka mjög vel á mig og ég mæli með
að fólk prófi þau.“
Framleiðandi sæbjúgna er Arctic
Star ehf. Allar nánari upplýsingar
fást á arcticstar.is.
Arctic Star sæbjúgnahylki fást í
flestum apótekum, heilsubúðum,
í Hagkaupum og í Fjarðarkaup.
Sæbjúgnahylkin eru bylting
Magnús Friðbergsson mælir með sæbjúgnahylkjum frá Arctic Star, en hann finnur mun á sér
eftir að hann fór að nota þau. Sæbjúgu innihalda yfir fimmtíu tegundir af næringarefnum.
Magnús er betri í hnjám og finnur
minna fyrir liðverkjum eftir að
hann fór að taka sæbjúgnahylkin.
Hylkin eru nú komin í nýjar um-
búðir eins og sjá má á myndinni.
Sangría, lamadýr og hugleiðsla
Fjölbreytt afþreying er í boði á netinu þessa dagana og um að gera að nýta hana í skammdeginu.
Um helgina má til dæmis hugleiða, ferðast til Edinborgar og hitta lamadýr heima í stofu.
Í dag er hægt
að fara á Zoom
fund með lama-
dýri. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/GETTY
Dragdrottn-
ingar kenna að
búa til sangríu.
Íslensk
framleiðsla
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . JA N ÚA R 2 0 2 1 L AU G A R DAG U R