Fréttablaðið - 09.01.2021, Side 37
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. er lánafyrirtæki
sem starfar eftir hlutafélagalögum, lögum um
fjármálafyrirtæki, lögum um Lánasjóðinn og
er undir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka
Íslands.
Meginhlutverk Lánasjóðsins er að tryggja
íslenskum sveitarfélögum, stofnunum þeirra og
fyrirtækjum lánsfé á hagstæðum kjörum með
veitingu lána eða ábyrgða. Útlán hans takmarkast
þó við verkefni sem hafa almenna efnahagslega
þýðingu.
Lánasjóður sveitarfélaga er opinbert hlutafélag í
eigu íslenskra sveitarfélaga sem eru 69 talsins.
Starfssvið
• Stýring og ávöxtun lausafjár.
• Uppgjörsvinna í tengslum við árs- og
árshlutauppgjör.
• Upplýsingagjöf til eftirlitsaðila.
• Ýmis greiningarvinna.
• Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi.
• Þekking og áhugi á skuldabréfum.
• Reynsla af notkun gagnasafna og Excel.
• Reynsla af störfum á fjármálamarkaði. Próf í
verðbréfaviðskiptum kostur.
• Góð þekking á ársreikningum. Uppgjörsreynsla
mikill kostur.
• Góð íslensku- og enskukunnátta í mæltu og
rituðu máli.
• Nákvæmni og skipulögð vinnubrögð.
• Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum.
Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson
framkvæmdastjóri Lánasjóðsins í síma 515 4948
eða í gegnum netfangið ottar@lanasjodur.is
Umsóknafrestur er til og með 28. janúar
2021.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að
senda umsókn og starfsferilskrá á
umsoknir@lanasjodur.is.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál
og í samræmi við lög um persónuvernd.
Lausafjárstýring
Lánasjóður sveitarfélaga auglýsir eftir sérfræðingi í lausafjárstýringu
Lánasjóður sveitarfélaga | Borgartúni 30 | 128 Reykjavík | S. 515 4949
Hafnarfjarðarbær óskar eftir öflugum einstaklingi í starf sviðsstjóra stjórnsýslusviðs sem
fer með forystu- og samhæfingarhlutverk í stjórnsýslu og þjónustu bæjarins.
SVIÐSSTJÓRI STJÓRNSÝSLUSVIÐS
Helstu verkefni og ábyrgð
• Dagleg stjórnun og rekstur stjórnsýslusviðs
• Undirbúningur funda bæjarráðs og
bæjarstjórnar
• Ábyrgð á að stefnumörkun og ákvörðunum
bæjarráðs og bæjarstjórnar sé fylgt eftir með
upplýsingamiðlun við fagsvið bæjarins og
fjárhagsheimildir
• Ábyrgð á virkni stjórnkerfis bæjarins og
yfirumsjón með miðlægri stjórnsýslu og
stoðþjónustu
• Staðgengill bæjarstjóra í fjarveru hans
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi,
framhaldsmenntun kostur
• Farsæl reynsla af stjórnun og mannaforráðum
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu,
stefnumótun, samningagerð og rekstri
• Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi
samstarfs- og samskiptahæfni
• Framsýni, metnaður, frumkvæði og
skipulagshæfileikar
• Hæfni til að miðla þekkingu, setja fram mál
og upplýsingar á íslensku og ensku
Stjórnsýslusvið hefur yfirumsjón með þeirri
þjónustu sem bæjarskrifstofur Hafnarfjarðar
veita íbúum sveitarfélagsins og öðrum sem
til þeirra leita með vandaða málsmeðferð að
leiðarljósi.
Helstu verkefni stjórnsýslusviðs eru
stjórnsýsla, lögfræðitengd málefni og
mannauðsmál. Á stjórnsýslusviði eru
eftirfarandi málaflokkar: stjórnsýsla,
lögfræði, skjalavarsla, mannauðsmál og
gæðastjórnun.
Umsóknarfrestur er til og með
20. janúar nk.
Sækja skal um starfið á vef
Hafnarfjarðarbæjar
radningar.hafnarfjordur.is
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir
bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Upplýsingar veita Hlynur Atli Magnússon, hlynur@hagvangur.is og Katrín S. Óladóttir, katrin@hagvangur.is