Fréttablaðið - 09.01.2021, Side 68
Ástkær móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ragna Ágústsdóttir
frá Hofi í Vatnsdal,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði
sunnudaginn 20. desember 2020.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
á Hrafnistu í Hafnarfirði. Jarðarförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Steingrímur Páll Björnsson Elín Sigurðardóttir
Brynjar Örn Steingrímsson Lovísa Karítas Magnúsdóttir
Ragna Gróa Steingrímsdóttir Jón Viðar Viðarsson
Eydís Steingrímsdóttir
barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Margrét Ólafsdóttir
lést á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
fimmtudaginn 24. desember. Útförin
fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Ari Ólafsson Karítas Ólafsdóttir
Björg Elín Ólafsdóttir Smidt
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og bróðir,
Helgi S. Kjærnested
Lindarflöt 42, Garðabæ,
lést þriðjudaginn 29. desember.
Útför hans fer fram frá Hallgrímskirkju
föstudaginn 15. janúar kl. 15.
Vegna fjöldatakmarkana verða einungis nánustu
aðstandendur viðstaddir en athöfninni verður streymt á
www.sonik.is/helgi.
Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hans er bent á minningarkort Ljóssins.
Baldur Már Helgason Svanhildur Sigurðardóttir
Margrét Rán Kjærnested Jan Prikryl
barnabörn, systkini og aðrir ástvinir.
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson
síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Okkar elskulega
Anna Valmundardóttir
frá Akureyri,
f. 09.01.1925,
lést þann 17. desember.
Útför hefur farið fram.
Sigríður Eysteinsdóttir Ómar Ólafsson
Ragna I. Eysteinsdóttir Árni V. Þórsson
Högni Björn Ómarsson Ingibjörg Helga Arnardóttir
Arnar Steinn Ómarsson Nicole Wiesner
Anna Lind Traustadóttir Guðmundur Þ. Vilhjálmsson
Júlía Helga, María Helga, Aron Ingvi, Sindri Elis,
Daníel Arnar, Sölvi Þór
Kæru ættingjar og vinir.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Elsu Þórdísar Óskarsdóttur
Dvalarheimilinu Hlíð.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Einihlíðar
fyrir hlýju og góða umönnun.
Aðstandendur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðrún María Tómasdóttir
húsmóðir og skólaritari,
áður til heimilis að Laugalæk 48
í Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni,
miðvikudaginn 30. desember. Útförin fer fram frá
Stafholtskirkju í Borgarfirði 16. janúar kl. 13 að viðstaddri
nánustu fjölskyldu og ættingjum.
Tómas Jóhannesson Pálína Héðinsdóttir
Helgi Jóhannesson Gunnlaug Helga Einarsdóttir
Sigríður Jóhannesdóttir Skarphéðinn B. Steinarsson
Guðmundur Þ. Jóhannesson Laufey Ása Bjarnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Tinna Rut er Norðfirðingur og uppalin í blaki hjá Þrótti Nes, er líka í íslenska landsliðinu og spilar nú með Lindesberg Volley í sænsku deildinni.
Hún var kjörin íþróttamaður ársins
2020 í Fjarðabyggð, frá því segir bæði
á vef sveitarfélagsins og Austurfréttar.
Neskaupstaður á að baki langa sögu
í blaki og Tinna Rut segir þar jafnan
marga iðkendur. „Nánast allir sem alast
upp í Neskaupstað prófa að æfa blak,“
fullyrðir hún og kveðst sjálf hafa byrjað
sex ára. „Ég æfði alls konar íþróttir þegar
ég var barn, ásamt blakinu var það sund,
skíði, frjálsar og fimleikar, en um þret-
tán ára aldur ákvað ég að einbeita mér
að blakinu.“ Hún hefur heldur betur
haldið sig við efnið og sextán ára fór hún
í fyrstu utanlandsferð sína með ungl-
ingalandsliðinu. „Eftir það hef ég farið í
fjórar unglingalandsliðsferðir, með U17
og U19, svo hef ég spilað tvo leiki með A-
landsliðinu, árið 2019.“
Lindesberg vantaði mannskap
Það var svo í ágúst síðastliðnum sem
Tinna Rut hóf að æfa með Lindesberg
Volley. Hvað kom til? „Lindesberg vant-
aði mannskap í sitt lið. Mig hefur lengi
langað að spila erlendis og hafði sjálf
samband við félög hér úti,“ útskýrir
hún. Spurð hvort Lindesberg Volley sé
betra lið í blaki en Þróttur Nes svarar
hún: „Sænska deildin er sterkari en sú
íslenska, því spilar Lindesberg á hærra
plani, en ég er viss um að leikur milli
Þróttar Nes og Lindesberg yrði spenn-
andi!“ Hún segir ráðningarsamning sinn
gilda út tímabilið sem nú er hálfnað. „Ég
er búin að spila á móti öllum liðum í
sænsku úrvalsdeildinni einu sinni. Eins
og er erum við neðstar en stefnum að
sjálfsögðu að því að vinna okkur upp
um nokkur sæti.“
Tók COVID-prófið sjálf
Til að gæta allrar varúðar vegna COVID-
19 lét Tinna Rut það ekki eftir sér að
koma heim um hátíðirnar. Hún telur sig
hafa blessunarlega sloppið við veiruna.
„Ég var reyndar veik milli jóla og nýárs,
fór í COVID-próf sem ég þurfti að taka
sjálf og var í einangrun í fimm daga
þar til að ég fékk niðurstöðurnar í bréf-
pósti!“ Hún segir fólk almennt virðast
fara eftir fyrirmælum um sóttvarnir en
í kring um blakið sé allt frekar kæru-
leysislegt, miðað við á Íslandi og víðar.
Hún býr ein, en segir sér hafa liðið ágæt-
lega um jólin. „Það var auðvitað skrítið
að vera ekki heima í Neskaupstað en ég
fékk að taka þátt í öðruvísi jólaundir-
búningi og jólum með fjölskyldu vin-
konu minnar úr liðinu sem var mjög
gaman. En svo var ég í einangrun yfir
áramótin þannig að þá var ég aðallega í
tölvusambandi við fjölskylduna heima.“
Hún kveðst hafa eignast fullt af nýjum
vinum. „Stelpurnar í liðinu eru flestar á
svipuðum aldri og ég og við náum mjög
vel saman.“
Í góðum félagsskap
Um 9.000 manns búa í Lindesberg sem er
fallegur bær, að sögn Tinnu Rutar. Innt
eftir hvað hún geri þar í frístundum,
svarar hún: „Ég er í fjarnámi frá Verk-
menntaskóla Austurlands, í einum
áfanga, og nýti frístundir í að læra, svo
finnst mér gaman að fara í göngutúra,
elda og baka, hitti stelpurnar oft og við
borðum saman, spilum padel-tennis og
gerum alls konar skemmtilegt.“
Bærinn er í tveggja tíma aksturs-
fjarlægð frá Stokkhólmi en Tinna Rut
kveðst ekki hafa lagt í ferðalag þangað
enn, vegna COVID-19. „Ég fer ekkert
nema í keppnisferðir, en hér í bænum er
mjög gott fólk og góð aðstaða til að æfa.
Mig langar að koma aftur til Svíþjóðar
og ná að upplifa landið á betri tímum.“
gun@frettabladid.is
Byrjaði sex ára í blakinu
Hin tvítuga blakkona Tinna Rut Þórarinsdóttir var valin íþróttamaður ársins 2020 í
Fjarðabyggð. Hún spilar í sænsku úrvalsdeildinni þetta tímabil með Lindesberg Volley.
„Mig hefur lengi langað að spila erlendis og hafði sjálf samband við félög hér úti,“ segir Tinna Rut. MYND/AÐSEND
9 . J A N Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R32 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT