Fréttablaðið - 09.01.2021, Síða 76
MEÐ ÞVÍ AÐ HAFA
MYNDIRNAR ÓLÍKAR
ER ÉG AÐ UNDIRSTRIKA HVAÐ
ALLT ER ÓLÍKT Í KRINGUM
OKKUR ÞÓTT ÞAÐ SÉ Á SAMA
STAÐ.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Sýning á nýjum málverkum Aðalheiðar Valgeirsdóttur stendur yfir í sal Sam-bands íslenskra mynd-listarmanna í SÍM-húsinu í Hafnarstræti. Sýningin
ber yfirskriftina Nærmyndir og
stendur til 22. janúar. SÍM-salurinn
er opinn frá 10-16 alla virka daga.
Aðalheiður er myndlistarmaður
og sjálfstætt starfandi listfræðingur.
Hún hefur haldið fjölda einka-
sýninga, meðal annars í Gerðar-
safni, Ásmundarsal og Hallgríms-
kirkju og tekið þátt í samsýningum
hér á landi og erlendis.
Verkin á sýningunni eru olíumál-
verk sem öll eru unnin á síðasta ári.
„Þar á meðal er myndröð, þar sem ég
hengi saman á vegg ólíkar myndir,
sem eru þó allar í sömu stærð. Mér
finnst gaman að tefla saman ólíkum
verkum og ólíkum litum,“ segir
Aðalheiður. „Ég kalla sýninguna
Nærmyndir af tveimur ástæðum.
Ég er með vinnustofu austur í sveit,
í Biskupstungum, og nærumhverfi
mitt þar, áin, veðrið og gróðurinn, er
alltaf innblástur að verkum mínum.
Í verkunum á þessari sýningu er ég
að fara nær viðfangsefnunum og get
þess vegna leyft mér að hafa verkin
nokkuð mikið abstrakt en um leið
mjög lífleg.
Ég er að vinna með yfirborð og
undirlög og það hvernig þau sam-
einast. Með því að hafa myndirnar
ólíkar er ég að undirstrika hvað allt
er ólíkt í kringum okkur þótt það sé
á sama stað. Gróðurinn og og hugs-
unin um fegurðina er alltaf undir-
liggjandi hjá mér.
Ég túlka forgengileika og endur-
tekningu með aðferðum mál-
verksins, ber lit á, ýmist þunnt
eða þykkt, síðan er hann skafinn
burt og ég mála yfir, krafsa í eða
teikna í endurtekinni hrynjandi
oft í mörgum lögum. Litirnir eru
afgerandi, þetta eru litirnir sem
birtast manni í náttúrunni á mis-
munandi tímum.“
Aðalheiður segir síðasta ár hafa
verið að mörgu leyti ágætt. „Það
var minna um áreiti og ég var ekki
að mæta hér og þar. Ég gat því ein-
beitt mér að því að vinna verk mín
í sveitinni.“
Finnst gaman að tefla saman ólíkum verkum
Aðalheiður Valgeirsdóttir sýnir olíumálverk í SÍM-húsinu. Í verkunum vinnur hún með yfirborð og undir-
lög og það hvernig þau sameinast. Vinnustofa hennar er í Biskupstungum og þar gerir hún öll sín verk.
Aðalheiður málar verk sín í Biskupstungum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Listakonan Gígja Jónsdóttir hefur leikinn á nýju sýningar-ári í Midpunkt með sýning-
unni Þrjár kynslóðir af bleikum.
Í sýningunni eru hlutverk sem
birtast í mæðraveldinu könnuð,
samskiptamynstur milli systra,
mæðra, mæðgna, dætra, frænkna,
dótturdætra og ömmu, í gegnum
athöfn þar sem hinn elskaði/hataði
litur innan fjölskyldunnar, bleikur,
er í brennidepli.
Opnun verður í dag, laugardaginn
9. janúar, frá 14.00-17.00 og stendur
sýningin opin alla laugardaga og
sunnudaga til 24. janúar.
Gígja Jónsdóttir nálgast við-
fangsefni sín í gegnum ólíka miðla
svo sem gjörninga, videó, tón-
list, teikningu, sviðslistir og dans.
Mannveran og umhverfi hennar í
sviðsetningu og raunveru er hennar
helsta þema sem og sambandið og
samtalið við áhorfandann.
Gígja lauk meistaranámi í mynd-
list frá San Francisco Art Institute
vorið 2018.
Þrjár kynslóðir af bleikum er
fyrsta einkasýning Gígju.
Hún hefur tekið þátt í fjölda sam-
sýninga hérlendis sem og sett upp
fjölda dans- og sviðsverka.
Gígja sýnir í Midpunkt
Í Alþýðuhúsinu á Siglufirði verður sýningaropnun og fyrirlestur nú um helgina.
Í dag, laugardaginn 9. janúar,
klukkan 14.00 opnar Andreas Brun-
ner sýningu sem ber yfirskriftina
Ég hugsa upphátt það sem ég segi
hljóðlega. Sýningin er opin dag-
lega frá klukkan 14.00 til 17.00 til
24. janúar. Andreas er fæddur 1988
í Zürich í Sviss en býr og starfar í
Reykjavík og Lucerne.
Sunnudaginn 10. janúar klukkan
14.30 verður Ottó Elíasson með
erindi sem ber yfirskriftina Ljós
mótar efni. Ottó hefur nýlokið
doktorsprófi í atómeðlisfræði frá
Árósaháskóla í Danmörku. Í nám-
inu vann hann að rannsóknum á
því hvernig nýta má leysiljós til að
móta köld atómský á ólíka vegu.
Viðburðir í Alþýðuhúsinu
Andreas Brunner. MYND/AÐSEND
Listakonan nálgast viðfangsefni sín í gegnum ólíka miðla. MYND/AÐSEND
9 . J A N Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R40 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING