Skessuhorn - 22.01.2020, Qupperneq 20
MIÐVIKUDAGUR 22. jANúAR 202020
Kiwanisklúbburinn Þyrill á Akra-
nesi verður fimmtugur á sunnudag-
inn, 26. janúar. Af því tilefni verð-
ur haldinn opinn fundur á Gamla
Kaupfélaginu á milli klukkan 15
og 17 á sjálfan afmælisdaginn. Þar
verða í bland við hefðbundin fund-
arstörf afhentar viðurkenningar til
stofnfélaga en enn eru sex stofn-
félagar í klúbbnum. Þá verður
einnig afhent vegleg gjöf til góðs
málefnis. Fundurinn er opinn öll-
um velunnurum Kiwanesklúbbsins
Þyrils.
Stefán Lárus Pálsson, forseti
Kiwanesklúbbsins Þyrils, segir í
samtali við Skessuhorn að tilgang-
ur klúbbsins hafi alltaf verið fyrst
og fremst að láta gott af sér leiða í
samfélaginu. „Við höfum í gegnum
tíðina safnað óhemju miklum pen-
ingum og gefið til mannúðarmála.
Okkar markmið hefur alltaf verið
að gera samfélagið okkar betra, við
höfum gullnu regluna að leiðarljósi,
það sem þú vilt að aðrir gjöri ykkur
skalt þú þeim gjöra,“ segir Stefán.
Síðustu fimmtíu ár hefur Kiw-
anisklúbburinn Þyrill lagt ýmsum
málefnum í samfélaginu lið og má
þar nefna sem dæmi að klúbburinn
keypti fyrsta bílinn fyrir verndaðan
vinnustað á Akranesi og keypti því
næst allar innréttingar, stólafesting-
ar og slíkt, í bíl númer tvö. Þá hefur
Sjúkrahúsið á Akranesi notið góðs
af ýmsum styrkjum frá klúbbnum
og má þar nefna sneiðmyndatæki
sem klúbburinn lagði töluverða
fjármuni til svo hægt væri að kaupa.
Félagar í klúbbnum hafa í gegn-
um árin tekið að sér ýmsa vinnu til
fjáraflanir og má þar nefna strand-
hreinsun, málningarvinnu og fleira.
Þá tóku félagar Kiwanisklúbbsins
Þyrils að sér gamla vitann á Breið-
inni og gerðu hann upp þegar hann
var að hruni kominn.
Náinn hópur
„Við höfum komið víða við og í
gegnum árin skiptir það mörgum
tugum milljóna á núvirði það sem
við höfum lagt til samfélagsins okk-
ar,“ segir Stefán. Stofnfélagar Kiw-
anisklúbbsins Þyrils voru þrjá-
tíu talsins og svo vill til að um síð-
ustu áramót voru félagarnir einmitt
þrjátíu. „Það reyndar sagði sig einn
úr félaginu sökum aldurs núna eftir
áramót. Flestir höfum við verið 56
en alls höfum við virkjað 113 núm-
er á þessum fimmtíu árum,“ segir
Stefán. Spurður hvort fleira verði
gert til að fagna afmæli klúbbsins
segir Stefán að í maí á þessu ári ætli
meðlimir og konurnar þeirra að
fara saman í ferðalag af þessu tilefni.
„Við ætlum að fara eitthvað út fyrir
bæinn og skemmta okkur sjálfum,
en hversu langt við förum er ekki
enn ákveðið,“ segir Stefán og bætir
því við að hópurinn sé mjög náinn
og því myndist hálfgerð fjölskyldu-
stemning þegar allir hittast.
„Ég er gríðarlega þakklátur öll-
um bæjarbúum og öðrum sem hafa
lagt okkur lið með einum eða öðr-
um hætti í gegnum árin. Við höfum
lagt okkur fram við að skila því til
baka til samfélagsins í formi góð-
gerðarmála. Ég er glaður að geta
orðið að liði í samfélaginu mínu, þó
ég vildi oft að ég gæti gert meira,“
segir Stefán að endingu.
arg
Lisbeth Inga Kristófersdóttir er
ung og mjög efnileg körfuknatt-
leikskona úr Reykholtsdalnum
og var hún fyrr í þessum mánuði
kjörin Íþróttamaður Umf. Reyk-
dæla. Hún er 14 ára gömul, fædd
og uppalin á Litla-Bergi, dótt-
ir Þórhildar Maríu Kristinsdótt-
ur og Kristófers Ólafssonar. Þeg-
ar Lisbeth var tíu ára mætti hún á
fyrstu körfuboltaæfinguna sína en
fram að því hafði hún verið að æfa
sund auk þess sem hún hafði próf-
að ýmsar íþróttagreinar. Hún hélt
áfram að æfa sund fyrst um sinn
en um tólf ára aldur þurfti hún að
velja á milli sundsins og körfunnar.
„Þetta var orðið svolítið mikið en
ég valdi körfuna fram yfir sundið,“
segir Lisbeth og brosir.
Spilar með
meistaraflokki
Síðastliðið haust var Lisbeth feng-
in til að spila með meistaraflokki
kvenna hjá Skallagrími. Hún æfir
þó enn með sínum flokki og mætir
því á æfingar alla daga vikunnar og
stundum tekur hún tvær æfingar á
dag. „Mamma og pabbi eru ótrú-
lega dugleg að keyra mig á æfing-
ar og svoleiðis,“ segir Lisbeth sem
æfir að mestu í Borgarnesi. „Ég get
stundum líka æft hér í íþrótthús-
inu. Við erum líka nokkrar að æfa
saman héðan úr sveitinni og skipt-
umst þá á að keyra,“ bætir hún
við. Aðspurð segir Lisbeth körfu-
boltaáhugann ekki liggja í blóð-
inu. „Mamma og pabbi kunnu ekki
einu sinni reglurnar í körfubolta
þegar ég byrjaði að æfa,“ segir Lis-
beth og hlær. „En þau styðja mig
ótrúlega vel og eru alltaf að læra þó
þau séu reyndar enn að læra regl-
urnar.“ Þá segist Lisbeth hafa náð
að sannfæra Ólöfu, yngri systur
sína, um að byrja líka að æfa körfu-
bolta. „Ólöf ætlaði alltaf að fara í
fótbolta en ég sannfærði hana um
að prófa körfu svo núna erum við
báðar að æfa og núna snýst allt um
þetta.“
Hefur fengið að spila
Hvernig var það að koma 14 ára
gömul á æfingar með meistara-
flokki? „Fyrst var ég rosalega feim-
in og óörugg því þær eru jú mun
eldri og mikið reyndari leikmenn.
En þær tóku rosalega vel á móti
mér og það er ótrúlega gaman að
fá að æfa með þeim,“ svarar Lis-
beth. Aðspurð segir hún hina leik-
mennina taka sig alveg með á æf-
ingum og ekki sýna neina vægð.
„Þær keyra alveg á mann og svo-
leiðis,“ svarar hún. En hefur hún
fengið að koma inn á völlinn í
leikjum meistaraflokks? „já, ég hef
fengið nokkrar sekúndur ef leik-
urinn er annað hvort alveg unn-
inn eða tapaður, það hjálpar við að
losna við stressið áður en kemur
að því að maður fer að spila meira
með liðinu. Það er ótrúlega gott að
hafa fengið að fara aðeins inn á,“
segir Lisbeth.
Tekur fram þverflaut-
una inn á milli
Auk körfuboltans spilar Lisbeth á
þverflautu en hún byrjaði að læra
á blokkflautu í fyrsta bekk og færði
sig yfir í þverflautunám ári seinna.
„Ég myndi segja að þverflautan
sé áhugamál á meðan körfubolt-
inn er meira en það, ég stefni á að
ná langt í körfunni,“ segir Lisbeth
og brosir. Þess má geta að við jóla-
guðsþjónustu á aðfangadag í Reyk-
holtskirkju spilaði Lisbeth á þver-
flauti sálmana Ave María og Ó
helga nótt. „Það er gott að hafa
flautuna með og ég tek hana fram
þegar ég er þreytt á körfubolt-
anum. Það er gott að geta skipt
á milli svo ég fái ekki leið,“ segir
hún. En hvernig gengur að sam-
ræma tónlistina, körfuboltann og
nám, en Lisbeth er nemandi í 9.
bekk í Grunnskóla Borgarfjarðar á
Kleppjárnsreykjum. „Það er alveg
erfitt að púsla öllu saman og ég á
nánast aldrei tíma sem ég er ekki
að gera neitt. Ef ég er ekki á æf-
ingum er ég að æfa mig á flautunni
eða að læra. Þetta gengur samt allt
mjög vel og mér þykir gaman að
hafa nóg að gera,“ svarar Lisbeth.
„Ég reyni að nýta vel tímann í
skólanum svo ég þurfi ekki að læra
heima og þá hef ég tíma eftir skóla
til að æfa,“ bætir hún við.
Íþróttamaður Reykdæla
Lisbeth var valin íþróttamaður
Reykdæla árið 2019. „Við erum
nokkur hér sem gátum orðið fyrir
valinu en ég vissi að ég ætti mögu-
leika á að verða valin. Ég hef verið
í bæði þriðja og öðru sæti síðustu
tvö ár svo mig langaði að verða í
fyrsta sæti en bjóst samt ekki alveg
við því,“ segir Lisbeth. „Ég er al-
veg ótrúlega glöð að hafa verið val-
in,“ bætir hún brosandi við áður en
við kveðjum. arg
Lisbeth var valin íþróttamaður Umf.
Reykdæla 2019.
Ljósm. Þórhildur María Kristinsdóttir
Ætlar sér að ná langt í körfunni
Rætt við Lisbeth Ingu um körfuna, tónlist og fleira
Lisbeth Inga er ung og efnileg körfuknattleikskona.
Lisbeth er hér að spila með meistaraflokki Skallagríms. Ljósm. Skallagrímur
Stefán Lárus Pálsson, forseti Kiwanisklúbbsins Þyrils á Akranesi.
Kiwanisklúbburinn Þyrill fimmtíu ára