Skessuhorn - 27.05.2020, Page 6
MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 20206
Krefst þrjátíu
milljóna
REYKH.HR: Tryggvi Harð-
arson fráfarandi sveitarstjóri
Reykhólahrepps gerir kröfu um
að fá greidd laun út núverandi
kjörtímabil, það er til júní 2022.
Frá þessu var greint á vest-
firska fréttavefnum bb.is í síð-
ustu viku. Tryggva var sagt upp
störfum um miðjan apríl og fær
greidd þriggja mánaða laun á
uppsagnarfresti. Málið var tek-
ið fyrir á fundi sveitarstjórnar
í síðustu viku og var ekki fall-
ist á kröfu sveitarstjórans fyrr-
verandi. Áætlað er að krafan
hljómi upp á 30 milljónir króna
að meðtöldum launatengd-
um gjöldum fyrir framangreint
tímabil. -mm
Slakað á fjölda-
takmörkunum
LANDIÐ: Frá og með síðasta
mánudegi er allt að 200 manns
heimilt að koma saman í stað 50
áður, heimilt er að opna líkams-
ræktarstöðvar með sömu tak-
mörkunum og gilda um sund-
og baðstaði og öllum veitinga-
stöðum, þar með töldum krám
og skemmtistöðum, og einnig
spilasölum, er heimilt að hafa
opið til kl. 23.00. Hvatt er til
þess að viðhalda tveggja metra
nálægðarmörkum eftir því
sem kostur er. Sjá nánar frétt á
íþróttasíðum. -mm
Spíttbústaður
HVALFJSV: Umsjónarmenn
sumarbústaðar í Hvalfirði höfðu
samband við lögreglu í vikunni
sem leið. Bústaðurinn er leigð-
ur út til skamms tíma í senn og
fundu leigusalarnir merki um
fíkniefnaneyslu og fíkniefni í
bústaðnum. Forprófun á efn-
unum gefur til kynna að þar sé
um að ræða amfetamín, að sögn
lögreglu. Málið er til rannsókn-
ar. -kgk
Býður Jökul
til sölu
SNÆFELLSNES: Í nýjasta
tölublaði bæjarblaðsins Jökuls
í Ólafsvík tilkynnir Jóhann-
es Ólafsson ritstjóri og útgef-
andi hjá Steinprenti að útgáf-
an sé til sölu ef viðunandi til-
boð fáist. Jökull hefur komið
út vikulega frá 8. mars 2001 og
fjallar blaðið um málefni líð-
andi stundar í Snæfellsbæ og
víðar á Snæfellsnesi. -mm
Kortavelta mikil
framan af maí
LANDIÐ: Strangasta hluta
samkomubannsins var aflétt
4. maí síðastliðinn. Afléttingin
náði til ýmissa þjónustugreina
sem höfðu þurft að leggja nið-
ur starfsemi vikurnar á und-
an. Þannig máttu, svo dæmi
séu nefnd, hárgreiðslustofur,
snyrtistofur, tannlæknastof-
ur, sjúkraþjálfarar og nudd-
arar opna dyr sínar á nýjan
leik. Þegar rýnt er í innlenda
kortaveltu eftir dögum má sjá
að landsmenn tóku opnunum
fagnandi enda margir orðnir
áfjáðir í að komast á nýjan leik
í klippingu, sjúkraþjálfun og
álíka. Þjónustufyrirtæki hafa
almennt farið verr út úr CO-
VID-ástandinu en verslanir ef
miðað er við greiðslukortatöl-
fræði Rannsóknaseturs versl-
unarinnar. Raunar sýndu inn-
lendar kortatölur fyrir apríl-
mánuð 11% aukningu inn-
lendrar kortaveltu í verslun-
um frá sama mánuði í fyrra á
meðan mikill samdráttur var í
kortaveltu þjónustufyrirtækja.
Dagleg meðalvelta innlendra
korta hérlendis hækkaði mið-
að við þetta um 43% á milli
tímabilanna tveggja, fyrir og
eftir afléttinguna 4. maí. -mm
Leit hafin að
nýju
SNÆFELLSNES: Í síðustu
viku hófst leit að nýju að And-
ris Kalvans, sem talið er að
hafi týnst á Snæfellsnesi 30.
desember síðastliðinn. Hætta
þurfti leit eftir áramót vegna
erfiðra veðurskilyrða. Þriðju-
daginn 19. maí fór Lögreglan
á Vesturlandi ásamt björgun-
arsveitarmönnum og sérsveit-
armönnum að Hrútaborgum,
þar sem talið er að Andris hafi
verið. Ekið var þangað á sex-
hjólum og dróna flogið það-
an yfir stórt svæði, til að leita
mannsins og skoða skilyrði.
Myndskeiðin úr drónanum
hafa síðan verið yfirfarin. Að
sögn lögreglu hefur leitin ekki
borið árangur enn sem kom-
ið er. Skilyrði til leitar eru enn
nokkuð erfið og kom það við-
bragðsaðilum á óvart hversu
mikill snjór er enn á svæðinu.
Leit verður haldið áfram þar
til maðurinn finnst, að sögn
lögreglu. -kgk
Slökkt verður á einum ofni járn-
blendiverksmiðju Elkem á Grund-
artanga fram á sumarið. Þegar
Skessuhorn heyrði í Einari Þor-
steinssyni forstjóra í gærmorgun
var reyndar slökkt á öllum þrem-
ur, en tveir þeirra voru aðeins úti
vegna hefðbundinna þátta. „Einn
ofn verður úti eitthvað lengur og
búast má við því að hann verði
það eitthvað vel fram á sumarið,“
segir Einar Þorsteinsson, forstjóri
Elkem, í samtali við Skessuhorn.
Slökkt var á þeim ofni til að ráðast í
hefðbundið viðhald, en ákveðið að
lengja stoppið til að gera viðhalds-
vinnuna hagkvæmari. Hún verður
þannig unnin í dagvinnu en ekki á
vöktum allan sólarhringinn.
Spurður um áhrif þessa á starfs-
mannahald næstu mánuði segir
Einar að færri sumarstarfsmenn
verði ráðnir til starfa hjá Elkem
nú í sumar en verið hefur undan-
farin ár.
Erfitt ástand
á mörkuðum
Ástæðan fyrir því að ákveðið var
að lengja viðhaldsstopp ofnsins nú
segir Einar vera ástand á mörk-
uðum, sem rakið er til Covid-19
faraldursins. „Ef ekki eru keyptir
bílar og ekki verið að framkvæma
þá á endanum vantar ekki stál. Þá
geta stálverin ekki lengur framleitt
sína vöru og þá vantar þau ekki
hráefni sem við framleiðum,“ seg-
ir Einar, sem vonast vitaskuld til
þess að markaðir fari að glæðast á
nýjan leik áður en langt um líður.
„Við krossleggjum fingur að það
gangi vel að koma heiminum aft-
ur í gang,“ segir hann. Það muni
líklegast ekki gerast á einni nóttu,
en þó það gerðist hratt segir for-
stjórinn fyrirtækið vel í stakk búið
að takast á við það. Birgaðastaða af
fullunninni vöru sé góð og hægt
væri að þjóna markaðnum í tölu-
verðan tíma áður en framleiðsla
hæfist aftur með fullum afköstum.
„En þetta er bara mjög sérkennileg
staða sem nú er uppi í heiminum.
Við erum, eins og sóttvarnalæknir
hefur oft sagt, með allt í stöðugri
endurskoðun,“ segir Einar Þor-
steinsson að endingu.
kgk
Járnblendiverksmiðja Elkem á Grundartanga. Ljósm. úr safni/ kgk.
Slökkt á einum ofni Elkem
fram á sumarið
Viðhaldsstopp lengt vegna stöðu á mörkuðum