Skessuhorn - 27.05.2020, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2020 7
FASTEIGNAMIÐLUN OG RÁÐGJÖF FASTEIGNAMIÐLUN OG RÁÐGJÖF
26 íbúðir af 37 seldar
Þingvangur ehf byggir 10 hæða lyftuhúsnæði á góðum stað
miðsvæðis á Akranesi. Staðsett við verslunarkjarnann
Dalbraut 1, Akranesi.
Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar og seljast fullbúnar
án gólfefna nema forstofa, þvottahús og baðherbergi
flísalagt. Öllum íbúðum fylgir kæliskápur og uppþvottavél
í eldhúsinnréttingu.
Sýningaríbúð tilbúin á 1. hæð.
2ja-3ja herbergja íbúðirnar eru frá 93 fm til 96 fm,
möguleiki að bæta við öðru svefnherbergi. Sérmerkt
bílastæði. Sérgeymsla í kjallara.
Verð 39,0 millj. (ein íbúð eftir).
3ja herbergja íbúðirnar 105 fm til 107 fm. Íbúðunum
fylgir stæði í bílakjallara og sérgeymslu í kjallara.
Verð frá 46,6 millj. til 50,9 millj.
4ra herbergja íbúðirnar eru frá 126 fm til 128 fm.
Íbúðunum fylgir stæði í bílskýli og sérgeymslu í kjallara.
Verð frá 56,4 millj. til 59,4 millj.
Innréttingar og fataskápar frá danska framleiðandnum
HTH.
Innihurðir og flísar frá Parka.
Heimilistæki frá Ormsson.
Boðið er upp á einkaskoðun og fólk vinsamlegast
beðið um að hafa samband í síma 898-9396 eða
á hakon@valfell.is og panta tíma til skoðunnar,
sýningaríbúð á 1. hæð hússins.
Stillholt 21 – Akranesi
Kirkjubraut 2, 300 Akranesi | Sími: 570 4824 | hakon@valfell.is | valfell.is
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
9
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar
Kjör forseta Íslands fer fram laugardaginn 27. júní 2020. Atkvæðagreiðsla
utan kjörfundarer hafin. Í umdæmi Sýslumannsins á Vesturlandi fer hún fram
á eftirtöldum stöðum:
Akranesi - skrifstofu sýslumanns, Stillholti 16-18, virka daga kl. 10.00 til 15.00
Borgarnesi - skrifstofu sýslumanns, Bjarnarbraut 2, virka daga kl. 10.00 til 15.00
Stykkishólmi - skrifstofu sýslumanns, Borgarbraut 2, virka daga kl. 10.00 til 15.00
Frá 9. júní 2020 verður einnig kosið á neðangreindum stöðum;
Búðardal - skrifstofu sýslumanns, Miðbraut 11,
á þriðjudögum og fimmtudögum, kl. 09.30 til 13.00
Eyja- og Miklaholtshreppi - skrifstofu hreppsstjóra, Þverá, virka daga kl. 12.00 til 13.00
Grundarfirði – skrifstofu Grundarfjarðarbæjar, Borgarbraut 16, virka daga kl. 10.00 til 14.00
Snæfellsbær - skrifstofu sýslumanns, Klettsbúð 4,
virka daga kl. 09.00 til 12.00 og 13.00 til 15.00
Hægt er að kjósa á öðrum tíma samkvæmt nánara samkomulagi við viðkomandi kjörstjóra.
Kjósendum er bent á að hafa persónuskilríki meðferðis á kjörstað.
Stykkishólmi, 25. maí 2020
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
Lögreglustjórinn á Suðurnesj-
um birti á sunnudaginn ábendingu
til foreldra varðandi hlaupbangsa
(Gummy bears) sem innihalda
kannabis og hugsanlega fleiri efni.
Ungmennum var um helgina boðið
slíkt stórhættulegt sælgæti og vitað
er um tvö tilfelli þar sem 13 og 14
ára stúlkur voru fluttar meðvitund-
arlausar á sjúkrahús.
„Talið var í fyrstu að um veikindi
væri að ræða en við sýnatöku kom
í ljós að stúlkurnar höfðu innbyrt
kannabisefni og morfín. Rannsókn
leiddi til þess að stúlkurnar voru á
sama stað fyrr um kvöldið og var
þeim báðum boðið að fá sér hlaup.
Ómeðvitaðar hvað væri í hlaupinu
þá fengu þær sér og enduðu þær
báðar á sjúkrahúsi,“ segir í tilkynn-
ingu lögreglu. „Málin bárust til okk-
ar og rannsókn leiddi í ljós að stúlk-
urnar höfðu fengið þetta hjá ungum
aðila sem hafði sjálfur keypt þetta af
sér eldri manni. Sjálfsagt er um að
ræða forvitni hjá unga fólkinu. For-
eldrar þessara krakka spurðu okkur
ítrekað hvar fá börnin þessi efni?
Aðgengi að fíkniefnum er afar auð-
velt og fyrir þann sem hefur verið
bent á hvernig þetta er gert þá tek-
ur það ekki nema nokkrar mínútur
að verða sér úti um efni,“ sagði lög-
reglan á Suðurnesjum.
„Við fórum og ræddum við þann
sem lét stúlkurnar hafa hlaupið og
var hann yfirheyrður varðandi mál-
ið. Foreldrar þessara krakka ásamt
barnavernd eru nú að vinna í því
í sameiningu að aðstoða börn sín
varðandi þessa reynslu og unga
manninum sem varð sér úti um
þetta var brugðið, þegar hann sat
fyrir framan rannsóknarlögreglu-
mann og áttaði hann sig á alvar-
leika málsins. Við viljum brýna fyrir
foreldrum að ræða þetta við börnin
ykkar og fræða þau um þessar hætt-
ur sem eru þarna úti. Sá sem þetta
ritar gerði sér ferð á veraldarvef-
inn og eftir stutta stund þar þá er
gríðarlega auðvelt að búa til þetta
hlaup og hægt er að steypa það í
hvaða form sem er, hvort sem það
eru hlaupbangsar eða hvað sem er.
Verra er þó að í þetta er hægt að
setja hvað sem er, eins og í því til-
felli sem er nefnt hér að ofan þá var
einnig að finna morfín í þeim sýn-
um sem tekin voru úr stúlkunum. Í
þetta er til dæmis hægt að setja alls-
kyns sterk lyf eins og Contalgin eða
Oxycontin og þá þarf ekki að spyrja
að leikslokum ef 13 ára gamalt barn
innbyrði slíkt hlaup.“ Að lokum
er það tekið fram að stúlkunum
tveimur heilsast ágætlega voru þær
útskrifaðar af sjúkrahúsi á sunnu-
dag og munu að öllum líkindum ná
sér að fullu.
mm
Hlaupbangsar í umferð sem
innihalda kannabis og morfín