Skessuhorn - 27.05.2020, Qupperneq 9
MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2020 9
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
0
Laus störf hjá
Akraneskaupstað
Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar:
Velferðar- og mannréttindasvið
Starf ráðgjafaþroskaþjálfa á skrifstofu velferðarsviðs•
Starf ráðgjafa í málefnum fatlaðs fólks á skrifstofu •
velferðarsviðs
Skóla- og frístundasvið
Starf deildarstjóra á Leikskólanum Akrasel•
Hlutastarf á Leikskólanum Akrasel•
Starf deildarstjóra á Leikskólanum Vallarsel•
Starf leikskólakennara á Leikskólanum Vallarsel•
Starf leikskólakennara á Leikskólanum Garðasel•
Starf fiðlukennara við Tónlistarskólann•
Starf aðstoðarskólastjóra við Tónlistarskólann•
Störf dagforeldra í sveitarfélaginu.•
Nánari upplýsingar ásamt umsóknareyðublaði má finna á
www.akranes.is/lausstorf
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
02
0
Flóahverfi 1.áfangi
Yfirborð og lagnir 2020
Akraneskaupstaður, Veitur ohf. og Míla ehf. óska eftir tilboðum
í malbikun gatna og vinnu við lagnir í götum í Flóahverfi 1. áfanga
á Akranesi.
Vegna fjölgunar lóða í hverfinu er um að ræða ýmsa vinnu við lagnir í
hverfinu, lengingu botnlangagötu og malbikun yfirborðs gatna.
Skila skal verkinu eigi síðar en 15. október 2020.
Nokkrar stærðir:
- Malbik á götur 4.400 m2
- Fráveitulagnir 210 m
- Kaldavatnslagnir 200 m
- Hitaveitulagnir 750 m
Útboðsgögn eru einungis afhent á stafrænu formi, með því að senda
tölvupóst á netfangið akranes.utbod@mannvit.is, þar sem fram
kemur nafn bjóðanda ásamt netfangi, nafni og símanúmeri tengiliðs.
Tilboð verða opnuð á bæjarskrifstofu Akraneskaupstaðar að Stillholti
16-18, þriðjudaginn 9. júní 2020 kl. 11:05.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
Í síðustu viku afhenti Eiríkur J. Ing-
ólfsson byggingaverktaki í Borgar-
nesi Orlofssjóði VR tvö 80,5 fm
ný orlofshús í Svignaskarði í Borg-
arfirði. Það var Emil Gústafs-
son sem tók við lyklavöldunum en
hann fer með eignaumsýslu fyr-
ir félagið. Húsin sem um ræðir eru
tvö, Svignaskarð 38 og 42, og hafa
verið í byggingu síðustu níu mán-
uði. Bygging húsanna gekk vel að
sögn Eiríks og framundan er smíði
tveggja eða þriggja sambærilegra
húsa í Svignaskarði í haust, bygg-
ing tveggja húsa við Hreðavatn auk
fjölmargra annarra verkefna.
mm
Þórdís Kolbrún R. Gylfadótt-
ir ráðherra ferðamála hefur lagt
fram frumvarp til laga um ferða-
gjöf. Um er að ræða útfærslu á
áður boðaðri aðgerð ríkisstjórnar-
innar um 1,5 milljarða króna inn-
spýtingu til að örva innlenda eftir-
spurn eftir ferðaþjónustu.
Í frumvarpinu kemur fram að
ferðagjöf er stafræn 5.000 króna
inneign sem stjórnvöld gefa út til
einstaklinga sem fæddir eru árið
2002 eða fyrr og eru með íslenska
kennitölu. Samkvæmt frum-
varpinu má nýta ferðagjöfina til
greiðslu hjá fjölmörgum fyrirtækj-
um sem hafa starfsstöð á Íslandi
og uppfylla ákveðin skilyrði. Sam-
kvæmt frumvarpinu verður heim-
ilt að gefa eigin ferðagjöf öðrum
einstaklingi en hver einstakling-
ur má aðeins greiða með að há-
marki 15 ferðagjöfum, eða 75 þús-
und krónur. Þá er með hliðsjón af
sjónarmiðum um ríkisaðstoð lagt
til hámark á heildarfjárhæð ferða-
gjafa sem hvert fyrirtæki megi taka
við; almennt er það 100 milljónir
króna en 25 milljónir króna hafi
fyrirtækið verið metið í rekstr-
arerfiðleikum 31. desember síð-
astliðinn.
Þróað hefur verið smáforrit í
samstarfi við frumkvöðlafyrirtæk-
ið Yay sem einfaldar greiðslu með
ferðagjöfinni, þó að það verði ekki
skilyrði. Þess er vænst að ferða-
gjöfin verði virkjuð snemma í júní.
mm
Félagasamtök og líknarfélög hafa
ekki farið varhluta af ástandinu í
landinu og hafa ekki getað fundað
undanfarnar vikur. Lionsklúbb-
ur Ólafsvíkur náði þó að funda á
dögunum og voru þar meðal ann-
ars teknar ákvarðanir um gjafir sem
skyldi úthluta. Nú í byrjun vikunn-
ar færðu svo félagar úr Lionsklúbbi
Ólafsvíkur Smiðjunni í Snæfellsbæ
og björgunarsveitinni Lífsbjörgu
góðar gjafir.
Smiðjan fékk að gjöf örbylgjuofn,
prentara og pappírstætara og var
það Gunnsteinn Sigurðsson ásamt
starfsfólki Smiðjunnar sem veitti
gjöfinni viðtöku. Lífsbjörgu færðu
þeir Tetra talstöð og spjaldtölvu til
notkunar í buggy bíl sveitarinnar
sem hún hefur nýverið fest kaup á.
Höskuldur Árnason, Sindri Matth-
íasson, Ísabella Una Halldórsdótt-
ir og Birgitta Rut Sigurðardóttir
veittu gjöfinni viðtöku fyrir hönd
Lífsbjargar. Voru viðtakendur gjaf-
anna þakklátir fyrir rausnarskapinn
en allar þessar gjafir munu nýtast
vel.
þa
Eiríkur og Emil „olnboga“ hér kaupin við afhendingu húsanna. Hefð er fyrir því að
verktaki láti gestabók fylgja.
Afhenti VR tvö ný orlofshús í Svignaskarði
Hús númer 38 í Svignaskarði.
Frumvarp um ferðagjöf lagt fram
Heimilt verður t.d. að ráðstafa ferðagjöfinni við kaup á gistingu og veitingum,
til leigu ökutækja eða með miðakaupum á söfn og sýningar. Myndin er tekin við
Sjómannagarðinn á Hellissandi.
Smiðjunni og Lífsbjörgu
færðar gjafir frá Lions