Skessuhorn - 27.05.2020, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 202012
Undanfarið hafa félagar í Slökkvi-
liði Borgarbyggðar sótt námkeið til
að öðlast löggildingu sem slökkvi-
liðsmenn. Um síðustu helgi sátu
þeir eitt af fjórum námskeiðum
sem menn þurfa að ljúka til að öðl-
ast réttindi. Námskeið II er kennt
í tveimur hlutum. Nú var farið í
bóklega hluta þess, svo sem varð-
andi reykköfun, eiturefnaflokka og
fleira. Verklega hluti námskeiðsins
er síðan kenndur í Keflavík í góðu
samstarfi við Brunavarnir Suð-
urnesja þar sem meðal annars er
kennd heit reykköfun.
Mannvirkjastofnun sendir alla
jafnan kennara á þessi námskeið
og sér um framkvæmd prófa. Það
sem er óvanalegt við námskeiðið í
Borgarnesi er að nú sér um kennsl-
una Heiðar Örn Jónsson, sem ný-
verið var ráðinn í starf varaslökk-
viliðsstjóra. Hann hefur aflað sér
kennsluréttinda hjá Brunavörnum
Árnessýslu þar sem hann starfaði
áður og er þetta í fyrsta skipti sem
slökkvilið mannað hlutastarfandi
er þannig að mestu leyti sjálfbært
um kennsluna. Nú sækja 16 manns
námskeiðið í Borgarnesi, en fram-
kvæmd þess er í góðu samstarfi við
Mannvirkjastofnun sem jafnframt
leggur prófin fyrir að endingu.
„Þetta er mikil framför. Áður vor-
um við bundnir af því að sækja um
námskeið á haustin fyrir næsta ár.
Maður sótti kannski um að halda
þrjú námskeið en fékk einungis að
halda nema eitt. Nú erum við aftur
á móti komnir í það ferli að hægt
verður að byrja strax nýliðaþjálfun.
Þannig verður allt fræðslustarf skil-
virkara og þjálfun nýrra slökkviliðs-
manna skilvirkari en áður var hægt.
Endurmenntunarpógramm verður
sömuleiðis hægt að uppfæra jafn-
harðan,“ segir Bjarni Kristinn Þor-
steinsson slökkviliðsstjóri í samtali
við Skessuhorn.
Meðfylgjandi myndir voru tekn-
ar á námskeiðinu um liðna helgi.
mm/ Ljósm. Rolando Díaz.
Slökkvilið Akraness og Hvalfjarð-
arsveitar stóð fyrir námskeiði á
vegum Brunamálaskólans helgina
22.-24. maí. Um er að ræða nám-
skeið II, fyrri hluta, þar sem kennt
er m.a undirstaða í reykköfun, reyk-
losun og björgun fólks úr brenn-
andi húsum. Að sögn Jens Heiðars
Ragnarssonar slökkviliðsstjóra er
námskeiðið hluti af námi slökkvi-
liðmanna til að öðlast löggildingu
í faginu. Alls voru tíu slökkviliðs-
manna frá Slökkviliði Akraness og
Hvalfjarðarsveitar sem tóku þátt og
þrír slökkviliðsmenn frá slökkvi-
liði Snæfellsbæjar. Námskeiðið
er haldið á vegum Húsnæðis- og
Mannvirkjastofnunar en hún hýsir
Brunamálaskólann. Leiðbeinend-
ur voru Þórður Bogason og Hall-
dór Guðmundsson ásamt Sigurði
Þór Elíssyni frá SAH. Áætlað er að
seinni hluti námskeiðsins fari fram
daganna 5. - 7. júní. mm/jhr
Skriðið við reykköfun.
Héldu námskeið til að
undirbúa löggildingu
slökkviliðsmanna
Hér er æfing á Jaðarsbökkum.
Bundið er fyrir augu til að líkja sem mest eftir raunverulegum aðstæðum í brenn-
andi húsum.
Fyrsta skipti sem slökkvilið sinnir sjálft kennslunni