Skessuhorn - 27.05.2020, Page 18
MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 202018
Á gatnamótunum við Götuás við
minni Lundarreykjadals í Borg-
arfirði hefur Vegagerðin sett upp
ágætt vegakort og skilti með áhuga-
verðum stöðum. Ekki er vanþörf á
góðum merkinum því það getur
verið villugjarnt í Borgarfirði fyrir
þá sem ekki eru staðkunnugir. Við
kortið eru einnig myndir af áhuga-
verðum stöðum og kirkjum; m.a.
á Húsafelli, Saurbæ á Hvalfjarð-
arströnd og Hjarðarholtskirkju. Í
Borgarfirði er að finna Hjarðar-
holtskirkju í Stafholtstungum, en
myndin sýnir Hjarðarholtskirkju
í Dölum. Vissulega er það falleg
kirkja, en mjög ólík litlu bænda-
kirkjunni með sama nafni í Borg-
arfirði. Mögulega er þetta þó með
vilja gert því hægt er að gera fal-
lega akstursleið úr Borgarfirði, yfir
Bröttubrekku og í Dali. Staðkunn-
ugir hafa þó bent á að líklega sé um
mistök að ræða.
mm
Í kjölfar gróðureldanna í Norður-
árdal á mánudaginn í síðustu viku
var tekin ákvörðun í hópi slökkvi-
liðsmanna í Borgarbyggð. „Eft-
ir svona langt og strangt slökkvi-
starf eins og í Norðurárdal verða
menn illa súrir og lyktandi þeg-
ar heim er komið. Staðreyndin er
nefnilega sú að nær ómögulegt er
að hreinsa lyktina af sér í venju-
legri sturtu eða heitu baði. Mað-
ur er jafnvel næstu tvo, þrjá daga
að glíma við hálfgerða eitrun í
gegnum húðina og líðanin eins og
slæm þynnka eftir fyllerí. Það er
hins vegar hægt að hreinsa þetta
af sér með því að fara í gufubað
eða sauna. Því tókum við félag-
arnir í Neista, félagi slökkviliðs-
manna í Borgarbyggð, ákvörðun
um að hefja söfnun fyrir sauna-
tunnu. Hún verður staðsett við
hlið slökkvistöðvarinnar við Sól-
bakka og í hana geta menn farið
eftir svona löng útköll til að leggja
sig í bleyti í heitri gufu og hreinsa
húðina,“ segir Þórður Sigurðs-
son aðalvarðsstjóri hjá Slökkvi-
liði Borgarbyggðar í samtali við
Skessuhorn. „Með því að fara í
heitt gufubað er hægt að hreinsa
út úr svitaholunum eiturefni, sem
jafnvel eru krabbameinsvaldandi,
en loða annars við mann í ein-
hverja daga eftir svona slökkvi-
starf. Sót og reykur getur verið
algjör viðbjóður og hvorki okk-
ur né fjölskyldum okkar gerandi
að koma illa lyktandi og óhreinir
heim eftir svona útköll.“
Þórður segir að slökkviliðsmenn
séu nú að safna fyrir kaupum á
saunatunnu með því að taka að
sér hreinsun bílastæða við bens-
ínstöðvarnar í Borgarnesi, en að-
spurður segir hann að slökkviliðs-
menn slái hreint ekki höndunum á
móti stuðningi frá almenningi eða
fyrirtækjum ef einhverjir vilji leggja
söfnuninni lið. „Þeir sem vilja
styrkja okkur við þessa söfnun geta
haft samband við okkur félagana í
Neista,“ segir Þórður, eða lagt inn
á reikning: 0326-13-110396 og kt:
450310-0260.
mm
Á síðasta ári var ákveðið í tilefni þess
að 75 ár voru þá liðin frá stofnun
lýðveldis á Íslandi ákváðu þrjú ráðu-
neyti auk Stofnunar Árna Magnús-
sonar og Snorrastofu í Reykholti,
að taka höndum saman við þró-
un átaksverkefnis til fimm ára um
þverfaglegar rannsóknir á ritmenn-
ingu íslenskra miðalda, skammstaf-
að RÍM. Til að framfylgja verk-
efninu var stofnaður sjóður, sem
nú hefur verið veitt úr. Markmiðið
verkefnisins m.a. að efla rannsóknir
á heimildum um ritunarstaði mið-
aldahandrita á Íslandi og þá sér-
staklega á þeim lærdómsmiðstöðv-
um og klaustrum þar sem ritmenn-
ing blómstraði. Verkefnið skipt-
ist í tvo verkþætti: Annars vegar að
rannsaka menningarminjar og um-
hverfi þessara staða og hins vegar
handrita- og bókmenningu þeirra.
Síðastliðinn fimmtudag fór fyrsta
úthlutun sjóðsins fram og sá Lilja
Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og
menningarmálaráherra um afhend-
ingu styrkja við hátíðlega athöfn í
Bókhlöðu Snorrastofu. Alls bárust
tíu umsóknir um styrki, en sótt var
um samtals 66,8 milljónir króna.
Úthlutunarefndin veitti sex styrki
og eru handhafar þeirra eftirfar-
andi: Elín Ósk Heiðarsdóttir fyrir
hönd Fornleifastofnunar Íslands,
7 milljónir króna vegna verkefnis-
ins „Staðarhóll í Dölum: Höfuð-
ból í minjum, sögu og sagnarit-
un“, Steinunn Kristjánsdóttir fyrir
hönd Háskóla Ísland, 7 milljónir
króna vegna verkefnisins „Þing-
eyraklaustur: Hjarta ritmenningar í
fjórar aldir“, Helgi Þorláksson fyr-
ir hönd Oddafélagsins, 7 milljónir
króna vegna verkefnisins „Odda-
rannsóknin“, Viðar Hreinsson fyr-
ir hönd Náttúruminjasafns Íslands,
3,3 milljónir vegna verkefnisins
„Náttúrur og fornar frásagnir. Um
náttúru- og umhverfissýn íslenskra
miðaldasagna“, Beeke Stegman
fyrir hönd Stofnunar Árna Magn-
ússonar í íslenskum fræðum, 2,7
milljónir króna vegna verkefnis-
ins „Bókagerð í Helgafellsklaust-
iri á fjórtandu öld“ og Axel Krist-
insson og Árni Daníel Júlíusson, 3
milljónir króna vegna verkefnisins
„Sögur og fylgdarmenn“.
Snorrastofa annast umsýslu
RÍM-verkefnisins með sérstök-
um samningi. Stofnunin hefur
því framkvæmd verkefnisins með
höndum, þar með talið nauðsyn-
lega eftirfylgni. „Snorrastofa mun
leggja metnað sinn í að leiða sam-
an styrkþega á sérstökum samráðs-
fundum og málþingum í Reykholti.
Þá er vonast til að hægt verði að
fjármagna útgáfu bóka um einstaka
þætti verkefnisins og að lokum stórt
yfirlitsrit,“ segir í tilkynningu.
mm
Saunatunna sambærileg þeirri sem Neistamenn safna nú fyrir. Þessi stendur við
veiðihúsið við Helgavatn í Þverárhlíð.
Safna fyrir gufubaði til að lykta ekki eins illa
Slökkviliðsmenn hafa að undanförnu tekið að sér að hreinsa bílaplön við
verslanir í Borgarnesi. Afrakstur þeirrar vinnu fer nú til söfnunar fyrir saunatunnu.
Ljósm. glh.
Kirkju-
myndir
hafa
skolast til
Frá vinstri: Bergur Þorgeirsson, Elín Ósk Heiðarsdóttir, Steinunn Kristjánsdóttir, Viðar Hreinsson, Axel Kristinsson, Lilja D Alfreðsdóttir, Árni Daníel Júlíusson, Helgi
Þorláksson, Beeke Stegman og Björn Bjarnason. Ljósm. Guðlaugur Óskarsson.
Styrkir vegna verkefnisins
Ritmenning íslenskra miðalda