Skessuhorn


Skessuhorn - 27.05.2020, Side 20

Skessuhorn - 27.05.2020, Side 20
MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 202020 Kristján Sveinsson rekur fyrir- tækið Kontiki Kayaking í Stykkis- hólmi þar sem hann býður upp á kajakferðir um Breiðafjörð. Krist- ján ólst upp í Hveragerði og fyrsta kajakinn keypti hann fyrir ferming- arpeningana sína. „Ég bjó ekki við sjóinn svo ég keypti straumvatnska- jak, svona til að sigla á niður ár og fljót,“ útskýrir hann. Kajaksiglingar hafa síðan verið hans helsta áhuga- mál. „Ég hef verið á fullu í þessu síðan og um tvítugt var ég byrjaður að starfa sem leiðsögumaður. Það leiddi svo til þess að ég fór að vinna við að fara í river rafting ferðir með fólk og svo fór ég í ferðir upp á jökla og fleira,“ segir Kristján sem hefur meira og minna starfað sem leiðsögumaður síðustu tíu ár. Örlögin komu honum í Hólminn Kristján flutti í Stykkishólm fyr- ir fimm árum, en hvað leiddi hann þangað? „Örlögin,“ svarar hann og hlær. „Barnsmóðir mín er héðan og býr hér. Ég ákvað að búa hér líka til að vera nær syni okkar. Mér líkar líka rosalega vel að búa hér og líð- ur vel í Hólminum,“ segir Kristján. Fljótlega eftir að hann flutti í Stykk- ishólm byrjaði hann að huga að því að bjóða upp á kajakferðir. „Mig langaði að leiðsegja fólki hérna fyr- ir vestan og fannst vanta afþreyingu sem tengdist Breiðafirði því þetta er frábær staður til að vera á kajak,“ segir Kristján. „Það er hægt að fara í bátsferðir um fjörðinn en það var enginn með kajaka,“ bætir hann við. Kristján er að hefja þriðja sum- arið sitt með kajakferðir um fjörð- inn og segir hann fyrstu tvö sumur- in hafa gengið ágætlega, þó það taki alltaf tíma að koma svona ferðum á kortið. Mest voru þetta þó erlendir ferðamenn sem komu í ferðir. „Ég veit ekkert hvernig þetta sumar verður. En ég hef líka verið að fá Ís- lendinga í ferðir, þeir voru til dæm- is töluvert fleiri síðasta sumar held- ur en sumarið þar á undan,“ segir Kristján. „Það verður bara að koma í ljós hvernig þetta sumar verður en ég verð með opið. Maður verður að reyna að hanga í þessu í gegn- um þessa skrýtnu tíma,“ segir hann jákvæður. Þræðir á milli eyja Aðspurður segir Kristján alla geta siglt kajak. „Ef þú kannt að hjóla kanntu á kajak,“ segir hann og bætir við að kannski sé þetta þó ekki fyrir þá sem eru vatnshræddir. Að sögn Kristjáns er Breiðafjörður frábær staður til siglinga en þar sé einstakt að róa á kajak í kringum allar litlu eyjarnar, skerin og hólmana innan um það fjölbreytta fuglalíf sem þar er. „Að róa á sjó er ekki mjög frá- brugðið því að vera á vatni en mað- ur er kannski aðeins berskjaldaðri fyrir veðrum og vindum. En þar sem við erum bara að þræða milli eyja erum við alltaf nálægt landi, erum ekki að róa út á rúmsjó,“ seg- ir Kristján. Aðspurður segist hann ekki fara með fólk í land í eyjunum nema kannki í sérstökum tilfellum. „Ég vil ekki fara í land þegar fugl- inn er að verpa því það gæti truflað. En þegar það á ekki við kemur fyrir á góðum dögum að ég stoppa með fólk í Landey,“ segir hann. Hjá Kontiki Kayaking eru opnar brottfarir sem fólk getur skráð sig í og komast átta með í hverja ferð. Fyrir sérhópa býður Kristján upp á að fara með allt að tíu manns saman í hóp og til 15. júní næstkomandi er hann með tveir fyrir einn tilboð á öllum ferðum. Frekari upplýsingar er hægt að finna á heimasíðu Kon- tiki Kayaking, https://www.kontiki. is. arg/ Ljósm. Kristján Sveinsson Drónamynd af Þorgeiri GK sem er við Landey. Ljósm. Ása Steinarsdóttir Einstakt að róa á kajak um Breiðafjörð Kristján Sveinsson rekur fyrirtækið Kontiki Kayaking í Stykkishólmi. Skipsflak af Þorgeiri GK sem er við Landey skammt út frá Stykkishólmi. Hér er Kristján á kajak með Breka Þór, son sinn með sér. Ljósm. visitstykisholmur.is Mikið fuglalíf í eyjum á Breiðafirði. Kristján kemur frá Hveragerði en hefur sest að í Hólminum til að vera nær Breka Þór, drengnum sínum. Ljósm. visitstykisholmur.isÞað er fallegt við Breiðafjörð. Á siglingu um Breiðafjörð.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.