Skessuhorn


Skessuhorn - 27.05.2020, Side 27

Skessuhorn - 27.05.2020, Side 27
MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2020 27 Frá og með síðasta mánudegi er allt að 200 manns heimilt að koma saman í einu rými í stað 50 og heimilt að opna íþróttamannvirki og líkamsræktarstöðvar með sömu takmörkunum og gilda um sund- og baðstaði og aðra staði. Í minn- isblaði sóttvarnalæknis er jafnframt lagt til að engar sérstakar takmark- anir verði á íþróttastarfi en gæta þarf að hámarksfjölda fullorðinna allt að 200 manns í sama rými. Þetta kemur fram í nýrri auglýs- ingu heilbrigðisráðherra um tak- mörkun á samkomum vegna far- sóttar sem birt var í dag og tekur gildi á morgun. Þó er tekið fram í auglýsingunni að í takmörkun á samkomum felst að fjöldasamkomur eru óheimilar þegar fleiri en 200 einstaklingar koma saman, hvort sem er í opin- berum rýmum eða einkarýmum. Þar á meðal eru íþróttaviðburðir og aðrir viðburðir þar sem fleiri en 200 manns koma saman. Í auglýsingunni er hvatt til þess að viðhalda tveggja metra nálægð- armörkum eftir því sem kostur er, eins og nánar er fjallað um í aug- lýsingunni. Auglýsingin er í fullu samræmi við tillögur sóttvarna- læknis. Með nýrri auglýsingu verður framkvæmd tveggja metra regl- urnar breytt nokkuð. Horft er til þess að vernda þá sem eru við- kvæmir með því að skapa þeim sem það kjósa aðstæður til að viðhalda tveggja metra fjarlægðarreglu. Þannig verði til dæmis á veitinga- stöðum, í leikhúsum og bíósölum boðið upp á að minnsta kosti nokk- ur sæti sem geri þetta kleift. Á líkamsræktarstöðvum verð- ur, líkt og á á sund- og baðstöð- um, takmörkun á fjölda gesta sem miðast við að þeir séu aldrei fleiri en nemur helmingi af leyfilegum hámarksfjölda samkvæmt starfs- leyfi. Eins og fram kemur í auglýs- ingunni verða áfram gerðar sömu kröfur um sótthreinsun og þrif al- menningsrýma og hingað til. Þessi nýja auglýsing um takmörkun á samkomubanni gildir til 21. júní. mm Árleg hreyfivika, Now We Move, hófst á mánudaginn og stendur yfir fram á næsta sunnudag. Verkefnið er hluti af stærstu lýðheilsuherferð í Evrópu og hefur verið fastur lið- ur á hverju ári frá árinu 2012 en það er UMFÍ sem sér um að skipu- leggja og halda um viðburðinn hér á landi. Markmið verkefnisins er að fjölga íbúum í Evrópu sem hreyfa sig reglulega, en aðeins þriðjung- ur þeirra gerir það. UMFÍ hvetur alla til að finna sér uppáhalds hreyf- ingu til að stunda reglulega, eða að minnsta kosti í 30 mínútur á dag. Nokkur sveitarfélög á Vesturlandi taka þátt í Hreyfivikunni með að bjóða upp á skipulagða viðburði á sínum svæðum. Á heimasíðu UMFÍ má finna viðburði eftir sveitarfélögum og eru þar skráðir viðburðir á Akra- nesi, Borgarnesi, Búðardal og Snæ- fellsbæ. Nákvæmari dagskrá er þó að finna fyrir viðburði á Akra- nesi á www.ia.is og í Borgarbyggð á www.umsb.is. Á Akranesi verð- ur m.a. boðið upp á opnar æfingar hjá Knattspyrnufélagi ÍA, útiklifur og fræðslu um hjól og hjólatúra. Í Borgarnesi verður m.a boðið upp á gönguferðir, íþróttadag og göngu- ferð yfir Skarðsheiði. arg Miklar sviptingar voru á sunnu- dagskvöldið á lokahring B-59 Hótel-mótsins í golfi sem spilað var á Garðavelli á Akranesi und- ir stjórn Golfklúbbsins Leynis. Mótið er eitt af sterkustu mótum sumarsins og allir fremstu spilarar landsins tóku þátt. Á mótinu voru leiknir þrír hringir, alls 54 holur, frá föstudegi til sunnudags. Gríð- arleg spenna var á lokadeginum þegar bæði Valdís Þóra Jónsdótt- ir og Haraldur Franklín Magnús urðu að gefa eftir forystu sem þau höfðu haft allt mótið. Rástímum keppenda var seinkað fram yfir hádegi á sunnudag vegna veðurs og voru aðstæður nokkuð krefj- andi síðdegis vegna úrkomu. Það var mikill munur frá laugardeg- inum þegar besta veður sumars- ins var um vestanvert landið. Það var Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR og Axel Bóasson úr Keili sem stóðu uppi sem sigurvegarar á mótinu. Ólafía Þórunn tryggði sér sigurinn með pari á lokahol- unni en Valdís Þóra var með fimm högga forskot á hana fyrir loka- hringinn. Axel Bóasson lék loka- hringinn á mínus einu höggi sem dugði honum í einvígi gegn Har- aldi Franklín Magnús úr GR. mm/ Ljósm. golf.is/seþ Valdís Þóra Jónsdóttir, Guðrún Brá Björgvins- dóttir, Ólafía Þórunn Krist- insdóttir á milli brauta. Sviptingar á fyrsta stórmóti ársins í golfi Horft yfir keppnisvöllinn í veðurblíðunni á laugardaginn. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR og Axel Bóasson úr Keili stóðu uppi sem sigur- vegarar. Svipmynd úr Meta Bolic á Akranesi. Ljósm. úr safni. Dregið úr takmörkun á íþróttastarfi Hreyfivika stendur nú yfir Hreyfivika stendur yfir. Ljósm. UMFÍ Frá hlaupi yfir Skarðsheiði í Hreyfiviku á síðasta ári. Ljósm. úr safni/UMSB

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.