Skessuhorn - 22.07.2020, Side 1
Ert Þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 30. tbl. 23. árg. 22. júlí 2020 - kr. 950 í lausasölu
Tilboð gildir út júlí 2020
With ham and cheese
329 kr.
með skinku og osti
DOMINOS.IS | DOMINO’S APP
1.790 KR.
AÐEINS EF ÞÚ PANTAR Á NETINU EÐA MEÐ
APPINU, GREIÐIR FYRIRFRAM OG SÆKIR
PIZZUR MÁNAÐARINS
EIN STÓR PIZZA
Hreyfistöðvar voru formlega tekn-
ar í notkun í Garðalundi á Akra-
nesi fyrr í þessum mánuði. Um er
að ræða ellefu stöðvar víðsvegar um
skógræktarsvæðið með fjölbreyttum
æfingum sem allir ættu að geta gert
sér til heilsubótar. Það eru sjúkra-
þjálfararnir Anna Sólveig Smára-
dóttir og Helga Sjöfn Jóhannes-
dóttir sem settu saman æfingarnar
í samstarfi við Akraneskaupstað og
Íþróttabandalag Akraness. Blaða-
maður Skessuhorns settist niður í
Garðalundi með Önnu Sólveigu og
ræddi við hana um hreyfistöðvarn-
ar, sjúkraþjálfunina og almennt um
mikilvægi hreyfingar. Sjá nánar í
Skessuhorni í dag. arg
Síðastliðinn laugardag var haldið upp á 30 ára afmæli Sigur-garða sf. í Borgarfirði, fyrirtækis sem; „annast nýsköpun og viðhald á allri almennri garðavinnu frá grænu
yfir í grátt,“ eins og segir í kynningu. Um leið var ný 663 fermetra skemma tekin í notkun. Blaðamaður Skessuhorns leit við í afmælinu þar sem meðal annars var boðið
upp á grillaða hamborgara fyrir gesti. Líflegt var á grillinu eins og sjá má. Nánar um afmæli Sigur-garða í Skessuhorni í dag. Ljósm. mm.
Gunnar Hinriksson rútubílsstjóra
í Stykkishólmi þekkja margir Snæ-
fellingar. Hann fæddist og ólst upp
á Helgafelli í Helgafellssveit, en
fór ungur að árum að vinna fyr-
ir sér, fljótlega á jarðýtum en svo
við akstur á skólabörnum og rekst-
ur hópferðabíla. Gunnar er nú
að mestu hættur akstri fyrir aðra,
en hefur í ýmsu að snúast. Meðal
annars hefur hann gert upp nokkr-
ar gamlar dráttarvélar, er liðtæk-
ur á rennibekknum og er nýbúinn
að kaupa sér fjórhjól til að vera vel
tækjaður í næstu smalamennskur
hjá tengdafólkinu vestur í Hauka-
dal. Blaðamaður Skessuhorns kíkti
í heimsókn til Gunnars í Stykk-
ishólm og rifjar með honum upp
glefsur liðinna tíma. Sjá nánar á
miðopnu.
mm/ Ljósm. sá.
Fjölbreytt hreyfing
gerir fólki gott
Gunnar segir sögu sína
arionbanki.is
Einkaklúbburinn
um allt land
Hafðu Einkaklúbbsappið með þér í sumar –
tilboð um allt land