Skessuhorn - 22.07.2020, Page 2
MIÐVIKUDAGUR 22. JúlÍ 20202
Sumarið er stutt, verum úti þeg-
ar gott er veður, og njótum.
Búast má við norðaustan átt á
morgun, bjart verður með köfl-
um vestanlands en dálítil rign-
ing eða skúrir í öðrum landshlut-
um. Á föstudag verður vindátt
svipuð en þó hægari. Skúrir um
landið sunnanvert og lítilsháttar
rigning við norðurströndina. Hiti
5 til 13 stig. Á laugardag verð-
ur norðaustanátt og dálítil væta
með köflum en bjart að mestu
suðvestanlands. Hiti 8 til 15 stig.
Á sunnudag og mánudag er
spáð áframhaldandi norðaust-
lægri átt og rigningu með köfl-
um. Úrkomulítið vestanlands.
Hiti breytist lítið.
Á vef Skessuhorns í liðinni viku
var spurt, „Notar þú bílbelti?“ Af-
gerandi meirihluti svarenda, eða
89% sögðu, „já, alltaf“. 9% svör-
uðu, „já, oftast“. Langfæstir eða
1% sögðu, stundum og annað
eins svaraði, „nei, aldrei“.
Í næstu viku er spurt:
Hveru marga kaffibolla á dag
drekkur þú að jafnaði?
Eigendur Sigur-garðar, þeir
Sindri Arnfjörð Sigurgarðarson
og Arnór Guðmundsson ásamt
Ásu Erlingsdóttur fögnuðu þrí-
tugsafmæli fyrirtækisins í liðinni
viku en reksturinn er í blússandi
sókn. Eigendur Sigur-garðars eru
Vestlendingar vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Næstu vikur
VESTURLAND: Skessu-
horn verður gefið út næstkom-
andi miðvikudag, 29. júlí. Eftir
það fer starfsfólk í viku sumar-
leyfi og verður skrifstofan lok-
uð til og með þriðjudeginum
4. ágúst. Ekkert blað kemur því
út 5. ágúst. Fyrsta tölublað eftir
frí kemur út miðvikudaginn 12.
ágúst. -mm
Fyrirlestri Snorra-
stofu frestað
REYKHOLT: „Af óviðráðan-
legum ástæðum hefur fyrirlestri
Valgerðar Bergsdóttur myndlist-
armanns á Reykholtshátíð ver-
ið frestað. Nýr tími verður til-
kynntur síðar, en markmið Val-
gerðar var að fjalla um steinda
glugga Reykholtskirkju. Vegna
hins stutta fyrirvara er ekki
mögulegt að finna nýjan fyrirles-
ara og mun því Snorrastofa ekki
bjóða upp á neinn fyrirlestur á
Reykholtshátíð,“ segir í tilkynn-
ingu frá Snorrastofu. Sjálf Reyk-
holtshátíðin heldur hins veg-
ar sínu striki og verður dagana
24.-26. júlí næstkomandi. Þar
flytja margir af fremstu tónlist-
armönnum þjóðarinnar sígilda
tónlist á fernum tónleikum, auk
þess sem Reykholtskirkja boð-
ar til hátíðarmessu næstkom-
andi sunnudag, allt samkvæmt
venju.“ -mm
Breytingar hjá
réttindagæslu fatl-
aðs fólks
LANDIÐ: Halldór Gunnars-
son lét af störfum sem yfirmaður
réttindagæslumanna 1. júlí síð-
astliðinn. Hann kom til starfa í
velferðarráðuneytinu sem rétt-
indagæslumaður í Reykjavík og
á Seltjarnarnesi árið 2011. Það
sama ár voru sett lög um rétt-
indagæslu fyrir fatlað fólk. Í
nóvember 2012 tók Halldór við
starfi sérfræðings fyrir réttinda-
vakt ráðuneytisins og starfi yf-
irmanns réttindagæslumanna.
„Halldóri er þakkað það frum-
kvöðla- og uppbyggingarstarf
sem hann vann fyrir réttinda-
gæslu fatlaðs fólks,“ segir í til-
kynningu. Við starfi yfirmanns
réttindagæslumanna tók Jón
Þorsteinn Sigurðsson sem starf-
að hefur sem réttindagæslumað-
ur frá árinu 2011, meðal ann-
ars hér á Vesturlandi. Jón mun
einnig starfa áfram sem réttinda-
gæslumaður í hlutastarfi. -mm
Síðustu misseri hafa fjölmargir íbú-
ar á Akranesi fjárfest í svokölluð-
um „sit on top“ kayökum. „Þess-
ir bátar eru mjög hentugir til veiða
og styttri ferða á góðum dögum.
Okkur finnst við hins vegar ekki sjá
notkun á þessum bátum í samræmi
við fjölda þeirra. Við viljum fá sem
flesta á sjó en grunar að einhverj-
ir séu hikandi við að taka skrefið
vegna þess að þeir telja sig ekki búa
yfir nægilegri kunnáttu eða reynslu.
Það er engin ástæða til að láta það
stöðva sig því að slíkt kemur með
ástundun,“ segir Guðmundur
Benediktsson formaður Siglinga-
klúbbsins Sigurfara. Hann segir
mikilvægt að vera rétt útbúinn og
geta lesið í aðstæður, veðurfar og
sjólag áður en haldið er út á sjó.
„Náttúran hér við Akranes býður
upp á frábærar aðstæður til að stun-
da kayaksportið, hvort sem fólk
vill veiða eða skoða. Við viljum því
hvetja bátaeigendur til að róa, við
langasand, í Krókalóni, við Elínar-
höfða og víðar. Möguleikarnir eru
fjölmargir og allir í túnfætinum.
Þess vegna ætlar Sigurfari að bjóða
upp á námskeið á fimmtudaginn
23. júli kl. 19.00 i umsjón Gísla ra-
kara. Mæting er við sjósetningar-
rampinn niðri í höfn. Gísli er haf-
sjór af reynslu, bæði í búnaði og
sjóferðum. Við viljum benda á að
ekki þarf að fara langt til að fjárfes-
ta í búnaði því að hér i bæ er ver-
slunin Ósinn (osinn.net) sem selur
kayaka og það sem tilheyrir,“ segir
Guðmundur að endingu.
mm
Flestir nýta ferðatékkann
á Hótel Hamri í Borgarnesi
Átjánda grín á Hamarsvelli liggur við bakgarð hótelsins og oft myndast
skemmtileg stemning á veröndinni þar sem gestir hótelsins klappa fyrir góðum
tilþrifum kylfinga.
Hægt er að fylgjast með svoköll-
uðu mælaborði ferðaþjónustunnar í
gegnum heimasíðu Ferðamálastofu.
Þar er meðal annars hægt að fylgj-
ast með notkun 5.000 króna ferða-
gjafa eftir landssvæðum og flokk-
um ferðaþjónustu. Þá er einnig
hægt að sjá hvaða tíu fyrirtæki hafa
fengið flestar ferðagjafir í sinn hlut.
Þar efst á lista er Icelandair Hót-
el Hamar í Borgarnesi en alls hef-
ur ferðagjöfum fyrir um 8,5 millj-
ónir króna verið varið í þjónustu-
kaup þar. Staðurinn er með þá sér-
stöðu að vera hótel og veitingastað-
ur á miðjum Hamarsvelli, golfvell-
inum í Borgarnesi.
„Frá þjóðveginum þá lætur hótel-
ið ekki mikið yfir sér. Það er frekar
látlaust ásýndar en þegar komið er
á staðinn þá opnast hér nýr heim-
ur sem heillar fólk upp úr skónum,
fólk sem kemur aftur og aftur,“ seg-
ir Guðveig lind Eyglóardóttir, að-
stoðarhótelstjóri Hótel Hamars, í
samtali við Skessuhorn.
„Aðsóknin á hótelið í sumar hef-
ur verið frábær og því má þakka
þessi fallegi golfvöllur sem umlyk-
ur hótelið, gott tíðarfar og ekki síst
góð staðsetning frá höfuðborginni.
Einstaklingar sem stunda golf hér-
lendis er stór hópur, þetta er vin-
sælt sport og hópurinn fer stækk-
andi ef eitthvað er. Að sama skapi
er þetta hópur sem kann að meta
þjónustuna sem við erum að bjóða
upp á á Hótel Hamri,“ bætir Guð-
veig lind við. Hún segist jafnframt
sjá miklar endurkomur í sumar.
„Ánægjan kristallast í því hvað við
sjáum marga koma aftur.“
Margir Íslendingar hafa þurft að
fresta ferðalögum erlendis vegna
Covid-19 og eru golfferðir Íslend-
inga til Spánar og Flórída þar eng-
in undantekning. Mikið hefur ver-
ið um að hópar sem hafa átt pant-
anir í golfferðir erlendis hafi komið
á Hótel Hamar í staðinn og spilað
golf á Hamarsvelli.
„Aðsóknin væri heldur ekki svona
góð nema fyrir það frábæra og þjón-
ustulundaða starfsfólk sem starfar á
hótelinu og var tilbúið að fara inn í
sumarið án þess að vita við hverju
mætti búast. Eftir lokunina í vor
var einlægur áhugi og gleði að sjá
líf aftur á vinnustaðnum og maður
finnur fyrir miklu þakklæti að hlut-
irnir séu komnir í gang aftur,“ segir
Guðveig lind að endingu.
glh
Guðveig Lind Eyglóardóttir, aðstoðarhótelstjóri Hótel Hamars.
Bjóða upp á námskeið í notkun sjókayaka