Skessuhorn - 22.07.2020, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 22. JúlÍ 20204
Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 3.590 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 3.100. Rafræn áskrift kostar 2.815 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.595 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Á hjaranum
„Ölduhæð er á bilinu 1,5 - 1,8 metrar,“ sagði skipstjórinn. „Það er bara
með því besta sem gerist á þessum slóðum.“ Nú er ég ekki sjóveikur mað-
ur, en þegar siglt var fyrir Straumnes og báturinn skaust upp og niður eins
og fluga í súpu sem borin er á borð af skjálfhentasta þjóni veraldar, þá
hvarflaði sannarlega að mér að selja upp bæði lungu og lifur, þó ekki væri
nema bara til að stytta mér stundirnar á siglingunni. Þegar stigið var á land
í Hlöðuvík á Hornströndum, þar sem dvalið var næstu daga, þóttist ég
svo vitaskuld ekki hafa fundið fyrir neinu, jafnvel þótt rjóminn hafi komið
þeyttur í fernunum upp úr lest bátsins og eggin hrærð.
Tíminn er afstæður á Hornströndum, en hann er nú svo sem relatífur
víðar hér í Vetrarbrautinni (þetta vita allir sem hafa séð Interstellar, sem er
myndin þar sem Matthew McConaughey fer ekki úr að ofan). Þar er hvorki
sími né rafmagn, ekkert internet. Bara gamla góða langbylgjan, takk fyrir
pent. útvarpstækið, eða radíóapparatið eins og maður fer ósjálfrátt að kalla
það undir þessum kringumstæðum, gengur vitaskuld fyrir batteríum. Því
voru gömlu góðu veðurskeytin það eina sem var hlustað á. Svo var slökkt.
Skeytin eru einstaklega notaleg á að hlýða, róandi lestur eftir kvöldmatinn
og eina tenging okkar við umheiminn þessa daga á Hornströndum. Að
öðru leyti vorum við algerlega utan þjónustusvæðis.
Maður fer sjálfkrafa að fylgjast frekar náið með veðrinu í fríi sem þessu.
Veðurguðirnir, að Ingó undanskildum, ráða því hvað er hægt að skoða
hvern daginn. Þegar skýin lágu lágt yfir víkinni var farið í stuttar göngu-
ferðir og einn daginn ákvað ég að gera bara ekki neitt. Það verk leysti ég
einstaklega vel úr hendi. Eini heiðríki dagurinn var nýttur til að ganga frá
Hlöðuvík á Hælavíkurbjarg og aftur til baka. Gangan var á að giska rúm-
ir 20 km og tók allan daginn. En hún var þess virði. Áður en komið var
að bjarginu hjó ég eftir því að vind andaði rólega á móti okkur. Þá fannst
glögglega hvernig bjargið ilmaði af driti. Þegar komið var á bjargið sást
yfir að Horni á þessum fallega degi. Sátum við dágóða stund á áfangastaðn-
um, tjilluðum í sólinni og fylgdumst með fuglunum í bjarginu. Ég lagðist
á magann, skreið varlega í átt til hafs og gægðist fram af brúninni. Það er
býsna hátt niður, ég get vottað fyrir það. Ég brann líka á eyrunum.
Það er auðvitað klisja að segjast njóta þess að vera svo langt frá amstri
hversdagsins og raun ber vitni þarna norður á Hornströndum, utan síma-
og netsambands, óravegu frá ysinu og þysinu og öllu því. En klisjur eru til
vegna þess að í þeim felst sannleikur. Þetta er rosalega næs. Þarna er frið-
sælla en á nokkrum öðrum stað sem ég hef heimsótt. Þegar komið er fram
á minn aldur (ég er þrítugur) fer maður að kunna að meta slíkt. landslagið
er óskaplega fallegt, jafnvel þó það hafi verið lagskýjað eða þoka megnið af
ferðinni. Það er allt í lagi, skýjahulan sveipar landslagið dulúð en um leið
hlýju, þar sem hún liggur eins og teppi yfir fjallstoppunum.
Ég naut hverrar stundar í þessari stuttu ferð á hjara veraldar. Mig lang-
ar að fara aftur á Hornstrandir ef Njörður, Ægir og Neptúnus lofa. Helst
strax næsta sumar.
Kristján Gauti Karlsson.
Alþingi hefur samþykkt stofnun
Ferðaábyrgðasjóðs í kjölfar heims-
faraldurs kórónuveiru. Sjóðurinn
var settur á fót þar sem ekki hafa
allar ferðaskrifstofur getað staðið
undir lögboðnum endurgreiðslum
á pakkaferðum sem hefur ver-
ið aflýst eða þær verið afbókað-
ar vegna heimsfaraldursins. Hon-
um er ætlað að veita þessum ferða-
skrifstofum lán til að standa skil á
endurgreiðslum til neytenda og
tryggja þannig rétt þeirra auk þess
að aðstoða ferðaskrifstofur í erfiðu
rekstrarumhverfi um þessar mund-
ir. Eftirlitsstofnun EFTA hefur yf-
irfarið og samþykkt þessa ráðstöfun
með tilliti til ríkisstyrkjaregla.
Ferðaskrifstofur munu geta sótt
um lán hjá sjóðnum sem nemur
ógreiddum endurgreiðslukröfum.
lánunum skal eingöngu ráðstafað
til að endurgreiða ferðamönnum
lögboðnar endurgreiðslukröfur á
hendur ferðaskrifstofum. Ferða-
málastofa tekur við og afgreið-
ir lánsumsóknir fyrir hönd Ferða-
ábyrgðasjóðs og hefur eftirlit með
framkvæmd laganna. Í tilkynningu
frá stjórnarráðinu kemur fram að
Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir ráð-
herra ferðamála hafi jafnframt haf-
ið undirbúning þess að leggja af nú-
verandi tryggingakerfi með því að
setja á stofn tryggingasjóð sem til
framtíðar muni sjá um að tryggja
neytendum endurgreiðslur komi
til gjaldþrots eða rekstrarstöðvunar
ferðaskrifstofu.
mm
Samband ungra Framsóknar-
manna, SUF, hefur sent inn um-
sögn vegna breytinga á frumvarpi
til stjórnskipunarlaga nr. 33/1944
um breytingu á stjórnarskrá lýð-
veldisins Íslands. Umsögnin fjallar
um ósk sambandsins um að ákvæði
stjórnarskrár verði breytt þannig
að einstaklingar sem eru á átjánda
ári fái kosningarétt sama ár og þeir
verða 18 ára. Núverandi ákvæði í
stjórnarskrá kveður á um rétt ein-
staklinga til þess að kjósa á og eftir
18 ára afmælisdag. Þetta telur SUF
stuðla að ójafnrétti til eins mikil-
vægasta réttar fólks í lýðræðisríki.
,,Það er ekki lýðræðislegt að neita
ungu fólki um kosningarétt ein-
göngu vegna þess hvenær þau fæð-
ast á árinu. Þeir sem fæðast á sama
ári eru taldir vera jafningjar í aug-
um samfélagsins. Þeir fylgjast að í
gegnum grunnskóla, taka lokapróf
saman og loks útskrifast svo sam-
an. Samt eru þessir „jafningjar“
ekki jafnir þegar kemur að einum
mikilvægasta rétti sem fyrirfinnst í
lýðræðisríki, sjálfum kosningarétt-
inum,“ segir í umsögn þeirra um
frumvarpið.
mm
Töluvert hvassviðri samhliða mik-
illi úrkomu gekk yfir allt norðvest-
anvert landið í lok síðustu viku.
úrkoman var mest og hvassast á
Vestfjörðum og á norðvestanverðu
landinu, en veðursins gætti einnig
á Snæfellsnesi. Á föstudaginn flett-
ist til að mynda malbik af þjóð-
veginum milli afleggjarans niður
á Djúpalónssand og Vatnshellis á
Snæfellsnesi. Meðfylgjandi mynd
tók starfsmaður Snæfellsbæjar sem
benti vegfarendum í færslu á Fa-
cebook síðu bæjarins á að fara var-
lega.
mm
Ferðaábyrgðasjóður tekinn til starfa
Malbik
flettist af
vegarkafla á
útnesinu
Jafningjar ekki jafnir þegar
kemur að kosningum