Skessuhorn - 22.07.2020, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 22. JúlÍ 20206
Þrír grunaðir
um lambsdrápið
SNÆFELLSNES: lögregla
hefur þrjá aðila grunaða um
að hafa drepið og úrbeinað sex
vikna gamalt lamb á Snæfells-
nesi fyrr í mánuðinum. Greint
var frá málinu í Skessuhorni
í síðustu viku. Eftir að það
gerðist hafði ábúandi á Snæ-
fellsnesi samband við lögreglu
og tilkynnti að hann hefði
komið að þremur mönnum
á landareign sinni, þar sem
einn þeirra gerði sig líklegan
til að ganga örna sinna. Vís-
aði hann mönnunum burtu en
varð þess síðan var að svo virt-
ist sem þeir hefðu farið inn í
bílskúr hans og þar ofan í mat-
arkistu. Ábúandi á öðrum bæ
á Snæfellsnesi tilkynnti seinna
að farið hefði verið inn heima
hjá honum þegar heimilisfólk
var fjarverandi. Engu var stol-
ið en hundunum hafði ver-
ið hleypt út og eldhúsið not-
að. Húsráðandi taldi að þarna
hefði verið fleiri en einn mað-
ur á ferðinni. Mennirnir hafa
ekki fundist en lögreglan á
Vesturlandi hefur látið boð út
ganga til allra lögregluemb-
ætta landsins að vera vakandi
fyrir atvikum sem þessum, því
hún telur að þarna hafi verið á
ferðinni sömu menn og drápu
landið. -kgk
Fíkniefnafram-
leiðsla stöðvuð
BORGARBYGGÐ: lögregla
gerði húsleit í húsi í Borgar-
firði að morgni þriðjudags-
ins 14. júlí síðastliðins, vegna
gruns um framleiðslu fíkni-
efna. Að sögn lögreglu fund-
ust þar ýmis merki um virka
ræktun í húsinu, s.s. afskorn-
ingar af kannabisplöntum,
spennar fyrir ræktunarlampa,
þurrktjöld, áburðarbrús-
ar, tölvur og ýmislegt fleira.
Allt var haldlagt í þágu rann-
sóknar, að sögn lögreglu. Þrír
menn eru grunaðir að hafa
staðið að ræktuninni. Málið er
til rannsóknar hjá rannsóknar-
deild lögreglunnar á Vestur-
landi en enn hefur ekki tek-
ist að hafa hendur í hári þre-
menninganna grunuðu. -kgk
At í
Neyðarlínunni
VESTURLAND: Síðastiðinn
fimmtudag hafði manneskja
samband við Neyðarlínuna
og greindi frá því á ensku að
stjúpfaðir hennar væri vopn-
aður byssu og hefði hleypt af
skotum. Þegar málið var at-
hugað kom í ljós að tilkynning
hennar átti ekki við nein rök
að styðjast. Við rannsóknina
kom enn fremur í ljós að þessi
sama manneskja hafði hringt
13 sinnum áður í Neyðar-
línuna og er íslensk, en þótt-
ist vera enskumælandi þegar
hún hafði samband á fimmtu-
dag. Að sögn lögreglu er mál-
ið bókað sem símaat í Neyð-
arlínu og litið alvarlegum aug-
um. Viðkomandi gæti átt yfir
höfði sér sekt.
-kgk
Störf óháð
staðsetningu
AKRANES: Á fundi bæjarráðs
Akraness 9. júlí síðastliðinn var
fjallað um bókun sem byggðar-
ráð Skagafjarðar gerði þá ný-
verið um opinber störf á lands-
byggðinni. Bæjarráð bókaði eft-
irfarandi: „Bæjarráð Akraness
tekur undir með byggðarráði
sveitarfélagsins Skagafjarðar
þar sem þau fagna ákvörðun fé-
lags- og barnamálaráðherra um
fjölgun starfa á landsbyggðinni.
Bæjarráð leggur mikla áherslu
á að þegar ný störf verða til hjá
ráðuneytum og stofnunum þess
að þá verði þau auglýst sem störf
án staðsetningar enda gerir nú-
tímasamskiptatækni það kleift
að vinna hin ýmsu störf hvar
sem er. Þessu tengt má nefna
að á Akranesi var nýverið opn-
að samvinnusetur við Bárugötu
sem gerir fyrirtækjum og opin-
berum aðilum það mögulegt að
starfsmenn þeirra geti starfað
nær heimili og fjölskyldu,“ segir
í bókuninni.
-mm
Ríkisborgurum
fjölgaði
LANDIÐ: Alls voru 50.701
erlendir ríkisborgarar búsett-
ir hér á landi 1. júlí síðastliðinn
og fjölgaði þeim um 1.354 frá
1. desember 2019. Á sama tíma
fjölgaði íslenskum ríkisborgur-
um sem eru búsettir hér á landi
um 1.171 samkvæmt skráningu
Þjóðskrár Íslands. Pólskir ríkis-
borgarar sem eru búsettir hér á
landi eru nú 20.904 og fjölgaði
á ofannefndu tímabili um 230
einstaklinga. Næst mest fjölgun
var meðal rúmenskra ríkisborg-
ara eða um 178. Í tölum Þjóð-
skrár kemur einnig fram að fólk
af 166 þjóðernum hefur haft
búsetu hér á landi á tímabilinu
desember 2019 til júlí 2020.
-mm
Guðmunda Ólafsdóttir hefur ver-
ið ráðin framkvæmdastjóri Íþrótta-
bandalags Akraness í stað Hildar Kar-
enar Aðalsteinsdóttur sem hverfur til
annarra starfa. Guðmunda kemur til
starfa frá Íþróttafélagi Reykjavíkur
þar sem hún var verkefnastjóri / fram-
kvæmdastjóri tímabundið en áður
starfaði hún sem fjármálastjóri hjá
Iðnvélum og sem framkvæmdastjóri
Next á Íslandi. Guðmunda hefur lok-
ið MBA gráðu frá Háskóla Íslands á
sviði nýsköpunar og stjórnunar.
Í tilkynningu frá ÍA segir að Guð-
munda þekki vel til íþróttastarfs en
hún hefur komið að íþróttastarfi á
mörgum sviðum í hartnær tuttugu ár,
setið í aðalstjórn KR, stýrt verkefni
um eflingu kvennastarfs innan KR
og stýrt vinnu við umsókn til ÍSÍ um
fyrirmyndafélag. lokaverkefni Guð-
mundu í MBA náminu var stefnumót-
un KR í heild fyrir árin 2019-2024.
„Nýr framkvæmdastjóri tekur
formlega til starfa 10. ágúst og um
leið og stjórn ÍA þakkar Hildi Karen
kærlega fyrir ómetanleg störf í þágu
félagsins og óskar henni velfarnaðar
á nýjum vettvangi, bjóðum við nýjan
framkvæmdastjóra hjartanlega vel-
kominn til starfa hjá ÍA,“ segir í til-
kynningu.
mm
Jarðskjálfti að stærð 5,0 á Rich-
terkvarða varð við Fagradalsfjall á
Reykjanesi kl. 23:36 á sunnudags-
kvöld. Fannst hann mjög víða á
suðvestanverðu landinu; á Reykja-
nesi og höfuðborgarsvæðinu, Akra-
nesi og einnig í Borgarnesi. Í kjöl-
far skjálftans mældust margir eftir-
skjálftar. Sá stærsti þeirra var 4,6 að
stærð, sem mældist korteri fyrir sex
á mánudagsmorgun og skömmu
fyrir hálf sjö mældist annar upp á
4,3 að stærð, að því er fram kemur á
Facebook-síðu Veðurstofu Íslands.
Alls höfðu 19 skjálftar stærri en 5,0
á Richterkvarða mælst við Fagra-
dalsfjall frá fyrsta skjálftanum og til
hádegis á mánudag.
kgk
Jarðskjálftar á Reykjanesi
Guðmunda verður nýr
framkvæmdastjóri ÍA
Guðmunda og Marella Steinsdóttir formaður stjórnar ÍA.