Skessuhorn - 22.07.2020, Page 7
Hvernig væri að njóta dagsins í Dölunum?
Vínlandssetur var opnað 5. júlí síðastliðinn og er nýr og
spennandi áfangastaður í Búðardal. Setrið er staðsett
niðri við höfnina í Búðardal í einu af elstu húsum bæjarins.
Uppi á loftinu er metnaðarfull sögusýning, en niðri
notalegur veitingastaður þar sem hægt er að fá sér góða
súpu eða ka og bakkelsi.
Heimsókn á sögusýninguna í Vínlandssetri er skemmtileg
blanda af skemmtun og fræðslu, sagan lifnar við og við
kynnumst helstu persónum sem tengjast landafundum
Norrænna manna í vestri. Þar koma við sögu Eiríkur
rauði, Leifur heppni sonur hans og ekki síður Guðríður
Þorbjarnardóttir og maður hennar Þor nnur Karlsefni.
Sýningunni hefur verið sérlega vel tekið og fólk á öllum
aldri hefur látið vel af henni, allt frá börnum til
sérfræðinga í Íslendingasögum.
Í Dölunum er líka tilvalið að skella sér í sund á Laugum
í Sælingsdal, líta við í tilgátubænum á Eiríksstöðum,
heimsækja dýragarðinn í Hólum eða heimsækja
Rjómabúið á Erpsstöðum, svo dæmi séu tekin.
Athugið einnig að Vínlandssetrið er í samvinnu við
Landnámssetur Íslands í Borgarnesi og boðið er upp
á miða á góðu verði á báðar sýningar Landnáms-
setursins og sýningu Vínandsseturs.
Vínlandssetrið Leifsbúð
Búðarbraut 1
370 Búðardal
info@vinlandssetur.is
www.vinlandssetur.is
sími 434 1441
Við kynnum skemmtilega dagsferð
í Dalina, örstutt að skreppa!
- sjáumst!