Skessuhorn - 22.07.2020, Side 8
MIÐVIKUDAGUR 22. JúlÍ 20208
Féll af vinnupalli
BORGARBYGGÐ: Óhapp
varð í Borgarnesi skömmu fyrir
klukkan átta á föstudagskvöld
þegar maður féll af vinnupalli.
Féll hann úr þriggja metra
hæð af pöllunum. Sá sem til-
kynnti óhappið flutti manninn
á heilsugæslustöðina og hafði
samband við lækni. Maðurinn
kenndi sér einskis meins eftir
fallið að sögn lögreglu og hélt
vinnu sinni áfram eftir læknis-
skoðunina, en var hvattur til að
fylgjast vel með eigin ástandi.
-kgk
Föstudagsfok
VESTURLAND: Haustveð-
ur gerði um vestanvert landið
síðastliðinn föstudag og lentu
nokkrir í vandræðum vegna
hvassviðris. Aðfararnótt föstu-
dags var lögreglu tilkynnt að
næturgestir í Sælingsdal í Döl-
um hefðu tapað fortjaldi af
tjaldinu sínu í rokinu. Á föstu-
daginn fóru lögreglumenn að
Garðagrund á Akranesi, en
stærðarinnar trampólín hafði
fokið úr garði í Jörundarholti
og út á götuna. Náðu lögreglu-
menn að losa trampólínið í
sundur og koma því aftur inn
í garðinn þar sem það var fest
niður. Þá fauk einnig trampól-
ín upp úr garði við lindarholt í
Ólafsvík, en náðist að koma því
fyrir og festa niður. -kgk
Eignaspjöll
AKRANES: Haft var samband
við lögreglu um liðna helgi
og greint frá því að þrír pilt-
ar hefður skemmt einingu úti-
bekks og borðs á Merkurtúni á
Akranesi. lögregla fór á stað-
inn og þá tóku tveir piltar til
fótanna en sá þriðji varð eft-
ir. Ræddi lögregla við hann, en
fleiri ungmenni voru á svæð-
inu. Var lögreglu tjáð að ein-
ingin hefði dottið í sundur þeg-
ar verið var að færa hana, en
drengirnir hafi einhverra hluta
vegna ákveðið að brjóta hana
enn frekar í sundur. Haft var
uppi á drengjunum sem hlup-
ust á brott, haft samband við
foreldra alla og greint frá af-
skiptum lögreglu. Barnavernd
voru jafnframt veittar upplýs-
ingar um málið, bæjaryfirvöld
látin vita og einingin fjarlægð.
-kgk
Stútar við stýrið
VESTURLAND: Skömmu
fyrir miðnætti 14. júlí var öku-
maður stöðvaður á Skorradals-
vegi, grunaður um ölvun við
akstur. lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu hafði áður látið
kollega sína á Vesturlandi vita
af ferðum mannsins. Hann var
látinn blása og í kjölfar hand-
tekinn og gert að veita blóð-
sýni. Þá var ökumaður stöðv-
aður, grunaður um ölvunar-
akstur á Akranesi í hádeginu á
sunnudaginn. Hann reyndist
ekki hafa ökuskírteini meðferð-
is og ökuréttindi hans reynd-
ust enn fremur vera útrunnin.
Sama dag var ökumaður stöðv-
aður í Borgarnesi og kærður
fyrir að aka eftir að hafa verið
sviptur ökuréttindum. Bíllinn
var kyrrsettur og tekin skýrsla
af ökumanninum. -kgk
Fastir í á
BORGARBYGGÐ: Franskir
ferðamenn lentu í vanda þegar
þeir festu bíl sinn í á á Arnar-
vatnsvegi síðdegis á sunnudag.
Kallað var eftir aðstoð frá Björg-
unarsveitinni Oki til að komast
til fólksins. Mikilla tungumála-
örðugleika gætti, að sögn lög-
reglu, og þurfti aðstoð túlks til
að halda uppi samskiptum við
fólkið. Fólkinu varð ekki meint
af og lítið tjón varð á bílnum,
sem var orðinn nokkuð blaut-
ur en þó ökuhæfur, að sögn lög-
reglu. -kgk
Fékk hamar í
höfuðið
BORGARBYGGÐ: Slys varð
þegar unnið var að bygginga-
framkvæmdum við hús í Borg-
arbyggð. Einn þeirra sem vann
í húsinu missti hamarinn sinn
skömmu fyrir kl. sjö að kvöldi. Í
sömu andrá og það gerðist gekk
tveggja ára gamalt barn framhjá
og fékk hamarinn í höfuðið.
Barnið hlaut skurð á enni og var
ekið til móts við sjúkralið, sem
flutti barnið ásamt foreldrum til
læknis. -kgk
Bílvelta
Ökumaður á ferð um Borgar-
fjarðarbraut á mánudag velti
bíl sínum skammt frá Seleyrar-
gili. lögregla og sjúkralið fóru
á vettvang. Maðurinn slasaðist
ekki illa í bílveltunni, en hlaut
minniháttar meiðsli eftir atvik-
ið. -kgk/ Ljósm. mkg.
Geyst ekið
Hraðakstur er ennþá áberandi í
umdæmi lögreglunnar á Vest-
urlandi og að sögn lögreglu sjást
enn nokkuð háar tölur. Einn
hlaut þannig 120 þúsund króna
sekt síðastliðinn miðvikudag
er lögreglumenn við almennt
eftirlit mældu hann á 130 km
hraða á klst. á Vesturlandsvegi
við Kúludalsá. Síðdegis á laug-
ardag var ökumaður stöðvaður
á 140 km hraða á klukkustund
í umdæminu og þarf að reiða
fram 150 þús. krónur í sekt.
-kgk
Ekið á búfé
VESTURLAND: Ökumað-
ur tilkynnti að hann hefði ekið
á kind á Snæfellsnesvegi um
tíuleytið á sunnudagsmorgun,
með þeim afleiðingum að kind-
in drapst og bifreiðin skemmd-
ist talsvert. Þessi ökumaður lét
vita, en að sögn lögreglu hef-
ur mikið borið á því í sumar að
ekki sé látið vita þegar ekið er
á búfénað í umdæminu. Fyrr í
vikunni, eða á föstudag, var til-
kynnt um geitur á ferð á Snæ-
fellsnesvegi til móts við lyng-
brekku. Haft var samband við
eiganda þeirra sem nálgaðist
þær. -kgk
Kerru stolið
AKRANES: lögreglu var
greint frá því á mánudag að
kerru hefði verið stolið frá at-
vinnuhúsnæði á Akranesi. Kerr-
an er þriggja metra löng, með
skráningarnúmer og hafði ver-
ið lagt á atvinnulóðinni. Hún
er merkt Trésmiðjunni Akri og
lögregla lýsir eftir henni. Málið
er til rannsóknar . -kgk
Menningar- og markaðsnefnd
Hvalfjarðarsveitar hefur í samstarfi
við Hrafn Art unnið að gerð kynn-
ingarmyndbanda fyrir sveitarfé-
lagið. Fyrra myndbandið var kynn-
ingarmyndband fyrir þá sem eru á
ferðalagi um Hvalfjarðarsveit og
var birt um síðustu mánaðamót.
Nú er búið að birta seinna mynd-
bandið sem er kynningarmyndband
um hvernig sé að búa í Hvalfjarð-
arsveit.
arg
Reykhóladagar verða haldnir hátíð-
legir dagana 24.-26. júlí. Jóhanna
Ösp Einarsdóttir, skipuleggjanda
hátíðarinnar, segir að undirbúning-
ur hafi gengið vel í ár. „Við ætlum
að hafa þetta hógværa hátíð í ár, í
ljósi ástandsins í samfélaginu. Við
höfum fært eins marga viðburði
og við getum út og reynum að
vera eins mikið utandyra og hægt
er,“ segir Jóhanna. Hátíðin hefst
með stuttum reiðtúrum fyrir börn
á föstudeginum og klukkan 18 ætla
Félagasamtökin að afhenda Reyk-
hólahreppi ærslabelg, sem mun án
efa hitta í mark hjá yngstu kyn-
slóðinni og jafnvel þeim eldri líka,
ef þeir þora! Þá verður skemmtileg
dagskrá á föstudagskvöldinu í Báta-
og hlunnindasýningunni sem byrj-
ar með Pub-quiz kl. 19:30 og eftir
það verða Gaddi og Rakel með tón-
listarviðburð.
laugardagurinn byrjar á Rey-
khóladagahlaupinu áður en boðið
verður upp á skemmtilega og fjöl-
breytta dagskrá fyrir alla fjölskyl-
duna. Sem dæmi verður boðið upp
á kjötsúpukeppni á litlu Grund
og hin árlega dráttarvélafimi ver-
ður á sínum stað, þar sem keppen-
dur fara fimlega í gegnum þrauta-
braut á dráttarvélum. Þá verður
læðutog, þar sem hinn frægi bíll,
læðan, verður dregin og að því lo-
knu verður farið í þarabolta áður en
garðpartí með Steinda og Audda
hefst um kvöldið. Á sunnudeginum
verður dagskráin í Króksfjarðarne-
si, þar sem farið keppt verður í kas-
sabílarallí og boðið upp á kaffihlað-
borð í Handverkinu. arg
Kærunefnd jafnréttismála hef-
ur komist að þeirri niðurstöðu að
Þjóðkirkjan hafi brotið gegn jafn-
réttislögum þegar sóknarprestur
var skipaður í Garða- og Saurbæj-
arprestakalli á síðasta ári. Nefnd-
in segir í úrskurði sínum að Þjóð-
kirkjan hafi ekki sýnt fram á að
önnur sjónarmið en kyn umsækj-
enda hafi ráðið úrslitum um hver
var valinn sóknarprestur. Í yfirlýs-
ingu frá Biskupsstofu vegna þess-
arar niðurstöðu segir að Þjóðkirkj-
an muni draga af úrskurði kæru-
nefndar lærdóm og unnið verði að
tillögum um umbætur. Skipað var
í stöðu sóknarprests í fyrra þegar
prestar voru enn embættismenn. Í
úrskurðinum segir að kirkjan hefði
þurft að sýna fram á að önnur sjón-
armið en kynferði hefðu ráðið nið-
urstöðunni. Það hefði kirkjan ekki
gert. Því var niðurstaðan sú að
brotið hefði verið gegn lögum um
jafnan rétt kynjanna.
Það var úrsúla Árnadóttir, sem
nú starfar sem sóknarprestur á
Blönduósi, sem lagði fram kær-
una. Hún var einn umsækjanda um
starf sóknarprests Garða- og Saur-
bæjarprestakalls og kærði þá niður-
stöðu kjörnefndar að velja Þráinn
Haraldsson í stöðu sóknarprests.
Matsnefndin telur úrsúlu búa
yfir meiri starfsreynslu sem prest-
ur innan kirkjunnar en Þráinn og
hefði auk þess meiri menntun. Þá
hefði hún fengið einkunnina 8,9
hjá matsnefnd sem fór yfir mennt-
un og feril umsækjenda en Þráinn
8,2 og annar karlmaður sem sótti
um 9,0. Gagnrýnir hún að meiri-
hluti kjörnefndar væru samstarfs-
fólk Þráins sem verið hafði prest-
ur í prestakallinu í fjögur ár áður
en hann var ráðinn sóknarprestur.
Aðrir umsækjendur mættu hins
vegar ekki hafa samband við kjör-
nefndarmenn í ferlinu.
Kærunefnd jafnréttismála segir í
úrskurði sínum frá 9. júlí að leyni-
leg atkvæðagreiðsla kjörnefndar
hafi gert að verkum að ekki sé hægt
að ráða fram úr hvort byggt hafi
verið á sjónarmiðum um kynferði
þegar prestur var valinn.
úrsúla Árnadóttir segir í samtali
við Skessuhorn að þetta hafi verið
í annað skipti sem hún sækti um
stöðu í prestakallinu, en án árang-
urs. Í febrúar 2020 var ráðið í tvær
stöður presta í Garða- og Saur-
bæjarprestakalli og þá var enn og
aftur gengið framhjá henni. Hún
kveðst aldrei hafa fengið hrein-
skiptin svör um hverju þessi snið-
ganga í hennar garð sætti. „Ég er
tilbúin að funda með Agnesi M Sig-
urðardóttur biskupi í kjölfar þessa
úrskurðar kærunefndar jafnfréttis-
mála, en til þess fundar hefur hins
vegar ekki enn verið boðað. Ég hef
ekki heyrt neitt frá biskupi og Þjóð-
kirkjan hefur ekki gert neina tilraun
til sátta í málinu né hefur reynt að
friða hug minn þrátt fyrir afgerandi
úrskurð þess efnis að brotið hafi
verið á réttindum mínum a.m.k. í
tvígang. En ég fagna afdráttarlaus-
um úrskurði kærunefndarinnar,“
segir úrsúla. mm
Þjóðkirkjan braut
gegn jafnfréttislögum
Skjáskot af kynningarmynd-
bandi um hvernig sé að búa í
Hvalfjarðarsveit.
Kynningarmyndband
fyrir Hvalfjarðarsveit
Jóhanna Ösp Einarsdóttir sér um skipulag hátíðarinnar. Hér er hún á hátíðinni
síðasta sumar. Ljósm. úr safni/kgk
Reykhóladagar eru framundan