Skessuhorn - 22.07.2020, Qupperneq 10
MIÐVIKUDAGUR 22. JúlÍ 202010
„Þetta er svo mikið óréttlæti. Þegar
það kostar ekki krónu að leyfa eldri
borgurum að vinna sér til bjargar
og þeim er meinað það. Þegar verið
er að skerða greiðslur Trygginga-
stofnunar á móti lífeyrisgreiðslum;
eða þegar eldri borgarar missa öll
réttindi sín í verkalýðshreyfing-
unni eftir áratuga starf. Þetta er
svo ótrúlegt, að það er ekki hægt að
þegja lengur,“ segir Halldór Gunn-
arsson formaður kjararáðs Félags
eldri borgara í Rangárvallasýslu.
Á landsfundi lEB -landssam-
bands eldri borgara, fyrir skömmu,
las Halldór samþykkt félagsins frá
í júní, þar sem lýst er vantrausti á
stjórn lEB vegna þess að hún hafi
engum árangri náð í hagsmunabar-
áttunni síðustu tíu ár. Ef ekki yrði
breyting þar á, myndi félagið íhuga
að segja sig úr landssambandinu.
Hér á eftir fer endursögn frá-
sagnar af landsfundi lEB fyrir
skömmu, fengin af vef samtakanna;
lifðu núna.
Vildi ekki vera
formaður áfram
Á heimasíðu lEB er fjallað um
kjaramál eldri borgara og greint
frá umræðu á lansfundi samtak-
anna. Nokkrar umræður spunnust
um hægaganginn sem mörgu eldra
fólki hefur þótt ríkjandi síðustu
árin. Þórunn Sveinbjörnsdóttir for-
maður lEB gagnrýndi það einnig
í leiðara nýjasta lEB blaðsins sem
kom út um mánaðamótin, hversu
hægt hefur þokast. Haukur Hall-
dórsson stjórnarmaður í lEB var
formaður nefndarinnar sem vel-
ferðarráðherra skipaði um lífskjör
og aðbúnað aldraðra, en hún skilaði
áliti fyrir einu og hálfu ári og lagði
til að kjör þeirra sem njóta tak-
markaðra réttinda í almannatrygg-
ingakerfinu, m.a.vegna þess að þeir
hafa ekki búið nægilega lengi hér á
landi, yrðu lagfærð. Frumvarp þar
að lútandi var loks lagt fyrir Al-
þingi og samþykkt fyrir þinglok.
Ráðherranefndin hélt áfram störf-
um, en Haukur er ekki lengur for-
maður hennar. „Ég gaf ekki kost á
mér til áframhaldandi formennsku
vegna þess að ég var ósáttur við
starf nefndarinnar,“ segir hann á
vef lEB. „Mér fannst eins og það
væri takmarkaður áhugi hjá stjórn-
völdum að bæta kjör eldri borg-
ara.“ Haukur telur að eldri borg-
arar þurfi sterkara bakland í barátt-
unni. Þar þurfi verkalýðshreyfingin
og opinberir starfsmenn að koma
að málum. „Síðan þurfum við sjálf
að vera sammála um hvað við setj-
um í forgang,“ segir hann og bend-
ir á að sú hafi ekki alltaf verið raun-
in. „Stjórnmálaflokkar óttast ekki
eldri borgara, það er vandinn,“ seg-
ir Þorbjörn Guðmundsson vara-
maður í stjórn lEB.
Framboð ef ekki kemst
hreyfing á málin
En hvað er til ráða þegar stjórn-
málamenn daufheyrast við bænum
eldri borgara? Halldór Gunnarsson
telur að fyrsta atriðið sé að reyna að
ná samstöðu með verkalýðshreyf-
ingunni um að taka upp mál eldri
borgara. Þá þurfi að styrkja lands-
sambandið fjárhagslega og auka
sjálfstæði þess. Eldri borgarar hafi
á sínum tíma ekki viljað vera með
í lottóinu og fái því ekki framlög af
þeim peningum eins og Öryrkja-
bandalagið. „Við verðum að hafa
peninga til að gera það sem þarf og
svo finnst mér sjálfsagt að lands-
sambandið styrki málaferli Gráa
hersins myndarlega. Ef ekki tekst
að koma neinni hreyfingu á mál-
in finnst mér að landssambandið
eigi að hafa forystu um að kosin séu
sjálfstæð kjararáð í félögum lands-
sambandsins, sem vinni í kjarabar-
áttunni og m.a. að framboði eldri
borgara, í flokkum eða með sjálf-
stæðu framboði,“ segir Halldór.
Málstaðurinn
okkar megin
Haukur Halldórsson segist ekki
trúa á digurbarkalegar yfirlýsing-
ar og að menn láti glamra í vopn-
um. „Ég tel málstaðinn vera okkar
megin og dropinn holar steininn,“
segir hann en bætir við að barátt-
an sé snúin. Þannig hafi til dæmis
Tekjusagan, vefurinn sem fjármála-
ráðuneytið setti á netið, ekki gefið
rétta mynd af kjörum eldri borg-
ara og erfitt hafi reynst að leiðrétta
það. Það hafi komið upp hugmynd-
ir um aðgerðir á vegum eldri borg-
ara, svo sem eins og að stöðva um-
ferð um Keflavíkurveginn og fleira
og Grái herinn hafi farið í mál.
Haukur segir að danskir eldri borg-
arar hafi prófað að stofna stjórn-
málaflokk sem bauð fram tvisvar
sinnum. „Það kann að vera leið, ég
ætla ekki að hafna því, alls ekki, en
þá þurfa bæði landssambandið og
félögin að vinna markvisst að því.
Það þarf einnig að ríkja góð sam-
staða um það meðal eldri borgar-
anna sjálfra.“
Eiga eldri borgarar að
stíga fram sem
stjórnmálaafl?
„Það er ljóst að eitthvað meira þarf
til, en bara samtalið við stjórnvöld,
þó það sé sannarlega mikilvægt,“
segir Þorbjörn Guðmundsson.
Hann segir athyglisvert að á Siglu-
firði hefðu eldri borgar tikynnt að
þeir væru tilbúnir í framboð fyrir
síðustu sveitarstjórnarkosningar og
þá hefðu stjórnmálaflokkarnir farið
að tala við þá. Tveir fulltrúar eldri
borgara hefðu komist í bæjarstjórn
fyrir sína flokka og þeir hefðu skap-
að sér þannig stöðu að þeir hefðu
áhrif. Nú væri fullt samráð við þá
um þau mál sem að þeim snúa.
„Þau fóru ekki í sérframboð, held-
ur létu flokkana vita að stuðning-
ur þeirra ylti á að þeim yrði sköp-
uð aðstaða til áhrifa.“ segir Þor-
björn sem segist hafa hugsað alvar-
lega um það að í haust þyrfti lykil-
fólk í eldri borgara hreyfingunni að
hittast og móta sér tiltölulega ein-
falda og skýra stefnu. leggja fram
3-4 lykilmál sem þeir vildu ná fram
og ganga eftir því við flokkana sem
bjóða fram, hvaða afstöðu þeir hafi
til þessara mála. Stilla þurfi flokk-
unum upp fyrir kosningar og eldri
borgarar þurfi að bjóðast til að taka
örugg sæti á framboðslistum sinna
flokka. Eftir kosningar þurfi þeir
að geta unnið saman að því sem
ein heild að tryggja framgang sinna
brýnustu mála. „Mér finnst þetta
tilraunarinnar virði,“ segir Þor-
björn; „hvort eldri borgara hreyf-
ingin eigi að fara að stíga fram sem
hreyfing í stjórnmálum.“ mm
Á vefsíðu Ólafsdals við Gilsfjörð var
fyrir helgi greint frá því helsta sem
er í gangi á svæðinu. Þar segir m.a.
að þessa dagana eru fjórir fornleifa-
fræðingar frá Fornleifastofnun Ís-
lands með bækistöð í Ólafsdal. Þrír
þeirra eru að vinna við að fornleifa-
skrá svæði í Saurbæ sem tengdist
búsetu Sturlu Þórðarsonar sagnarit-
ara á 13. öld með áherslu á Staðar-
hól, þar sem Sturla bjó lengi, en auk
þess aðra bæi í Staðarhólsdal. Einn
fornleifafræðingur er síðan að vinna
að því að „fleyta“ efni úr gólflögum í
landnámsskálanum í Ólafsdal.
Tveir bændur úr Saurbænum, þeir
Arnar í Stórholti og Guðmundur á
Kjarlaksvöllum, hafa að undanförnu
unnið við að moka að og hylja síðan
að mestu með torfþökum áhaldahús
niðri í barðinu sem loftorka reisti
fyrir Minjavernd í fyrra.
Þá segir á heimasíðu Ólafsdals að
gestir séu upp til hópa mjög fróð-
leiksfúsir um sögu staðarins, minja-
vernd og uppbyggingu. Þeir stoppa
að meðaltali 1-2 klukkustundir í
heimsóknum sínum. Margir þeirra
ganga að víkingaaldarminjunum.
Nú eru erlendir ferðamenn farnir
að sjást meira, en þeir koma m.a.
frá Þýskalandi og Póllandi. loks
er sagt frá því að 14 manna hress
hópur; „Jeppahópurinn,“ hafi ver-
ið á ferð í liðinni viku. Það eru að
mestu brottfluttir Húnvetning-
ar sem ferðast hafa saman í um 30
ár. Eins og þekkt er studdu Hún-
vetningar Torfa í Ólafsdal mikið og
höfðu áform um að koma á „fyrir-
myndarbúi,“ kennslubúi eða eins-
konar búnaðarskóla með Torfa þó
ekki hafi orðið af þeim áformum.
Að endingu er greint frá því að
grænmetið lítur vel út og vex hratt
í Ólafsdal.
mm/ Ljósm. Torfi Ólafur
Sverrisson.
Kartöflur voru settar niður í vor í Ólafsdal auk grænmetis. Það hefur dafnað vel í
sumar.
Tíðindi úr Ólafsdal
Jeppahópur burtfluttra Húnvetninga var á ferð í Ólafsdal.
Svipmynd frá Landsfundi LEB. Ljósm. lifdununa.is
Eldri borgarar íhuga að stofna stjórnmálahreyfingu
Utanvegar-
akstur
Haft var samband við Neyð-
arlínu um hálf sjö á mánu-
dagskvöld vegna utanvega-
aksturs í Þjóðgarðinum
Snæfellsjökli. lögregla fór
á staðinn og kom að erlend-
um ferðamönnum á Jökul-
hálsi. Þeir kváðust hafa ekið
þar eftir slóða en ekki kom-
ist upp brattan kafla, lent í
vandræðum og fest sig og
af því hafi orðið akstur utan
vegar. Dráttarbíll var kallað-
ur á vettvang. Að sögn lög-
reglu urðu einhver umhverf-
isspjöll en málið er í ferli.
-kgk
Aflatölur fyrir
Vesturland
11.-17. júlí
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu
Akranes: 18 bátar.
Heildarlöndun: 19.574 kg.
Mestur afli: Ársæll Sigurðs-
son HF-80: 2.534 kg í fjór-
um löndunum.
Arnarstapi: 10 bátar.
Heildarlöndun: 14.310 kg.
Mestur afli: Hrólfur AK-29:
2.610 kg í tveimur róðrum.
Grundarfjörður: 13 bátar.
Heildarlöndun: 51.863 kg.
Mestur afli: Kap II VE-7:
27.977 kg í einni löndun.
Ólafsvík: 33 bátar.
Heildarlöndun: 79.885 kg.
Mestur afli: Bárður SH-81:
24.247 kg í þremur róðrum.
Rif: 24 bátar.
Heildarlöndun: 31.188 kg.
Mestur afli: Særif SH-25:
4.764 kg í einni löndun.
Stykkishólmur: bátar.
Heildarlöndun: 19.456 kg.
Mestur afli: Bryndís
SH-128: 7.292 kg í fjórum
róðrum.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Kap II VE-7 - GRU:
27.977 kg. 13. júlí.
2. Bárður SH-81 - ÓLA:
11.075 kg. 14. júlí.
3. Bárður SH-81 - ÓLA:
7.602 kg. 15. júlí.
4. Bárður SH-81 - ÓLA:
5.570 kg. 13. júlí.
5. Særif SH-25 - RIF: 4.764
kg. 14. júlí.
-kgk