Skessuhorn - 22.07.2020, Side 14
MIÐVIKUDAGUR 22. JúlÍ 202014
„Garðaþjónustan Sigur-garðar
annast nýsköpun og viðhald á allri
almennri garðavinnu frá grænu
yfir í grátt.“ Þannig lýsa eigend-
urnir, þeir Sindri Arnfjörð Sigur-
garðarsson og Arnór Guðmunds-
son á laufskálum II í Borgarfirði,
fyrirtæki þeirra á Facebook síðu
fyrirtækisins. Síðastliðinn laugar-
dag var stór dagur hjá þeim. Þrjá-
tíu ár frá stofnun Sigur-garða og
samtímis var vígð ný 663 fermetra
skemma á laufskálum. Vinum,
viðskiptafélögum, samstarfsfélög-
um, nágrönnum og ekki síst nú-
verandi og fyrrum starfsmönnum
var boðið til grillveislu í og við
nýju skemmuna. Fjölmenni mætti
og gerði sér glaðan dag.
Sindri Arnfjörð segir bjart yfir
starfseminni. Verkefnastaða sé
góð og hafi raunar verið mörg
liðin ár. Starfsmenn á launaskrá
eru 17 í sumar og verkefni víða
um vestan- og sunnanvert landið.
Sindri segir að frá upphafi hafi 87
starfsmenn komið við sögu hjá
fyrirtækinu; harðduglegt fólk sem
gjarnan sé hjá honum að stíga sín
fyrstu spor á vinnumarkaði. „Í
rekstri eins og þeim sem við erum
með skiptir öllu máli að veljist til
starfa gott fólk sem er tilbúið að
taka leiðsögn og starfa sjálfstætt.
Við höfum verið heppin og það
er ánægjulegt að fjölmargir af fyr-
rum starfsmönnum okkar sáu sér
fært að koma. Þetta er því hátíðs-
dagur,“ sagði Sindri þegar blaða-
maður Skessuhorns leit við í af-
mælið.
mm
Sigur-garðar er
þrítugt fyrirtæki
og enn í sókn
Ása Erlingsdóttir og Sindri Arnfjörð heima í garði á Laufskálum II. Á bakvið þau er planta sem nefnist hengi-reynir, en fleiri
hengiplöntur er þar að finna, m.a. hengi-gullregn.
Nokkrir af starfsmönnum Sigur-garða stilltu sér upp til myndatöku. Léttleikinn er
gjarnan í fyrirrúmi.
Í afmælinu var vígð ný 663 fermetra skemma á Lauf-
skálum.
Gestir komu færandi hendi með gjafir. Unnsteinn Elíasson
hleðslumeistari kom með umslag, en það var bundið við
stein; „svo það fyki síður,“ sagði hann og rétti Sindra gjöfina.
Meðfylgjandi myndir sýna nokkur af þeim verkefnum sem starfsfólk Sigur-Garða hafa sinnt að undanförnu.
Hér eru starfsmenn að planta sígrænum plöntum og setja mulning yfir beðið við
Borgir í Stafholtstungum.
Frágangur við sumarhús sem stendur
við Vörðuás í Munaðarnesi. Verkið
unnu þær Fanney Guðjónsdóttir og
Vigdís Helga Kristjánsdóttir.
Lokafrágangur á stígum og þöku -
l ögn við þrjár lóðir við Stekkjarhól í
Munaðarnesi.
Nýlega luku Sigur-garðar við stórt
verkefni í Sundlaug Borgarness. Alls
var lögð 500 m2 hellulögn og rúmlega
200 m í sögun á hellum og 70% af því
bogalínur eða hringir.
Nýlega var lokið við hreinsun á
malarbeðum og plöntun sumarblóma
á lóð Norðuráls á Grundartanga, en
Sigur-garðar hefur annast lóðavinnu
síðustu árin.
Samsetning stéttar og sólpalls.
Verkið vann Kristján Guðmundsson úr
Borgarnesi fyrir Sigur-garða.Nýlega var lokið við hellulögn og frágang í Skallagrímsgarði í Borgarnesi. Stígagerð við sumarhús í Svignaskarði.
Unnið við reisingu á nýju skemmunni
á Laufskálum II í nóvember síðast-
liðnum. Eiríkur J Ingólfsson ehf. sá um
að reisa húsið sem nú er tilbúið.