Skessuhorn - 22.07.2020, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 22. JúlÍ 2020 15
Hreyfistöðvar voru formlega opnað-
ar í Garðalundi þriðjudaginn 7. júlí
síðastliðinn en um er að ræða ell-
efu stöðvar víðsvegar um skógrækt-
arsvæðið með fjölbreyttum æfing-
um sem allir ættu að geta gert. Það
eru sjúkraþjálfararnir Anna Sólveig
Smáradóttir og Helga Sjöfn Jóhann-
esdóttir sem settu saman æfingarnar
í samstarfi við Akraneskaupstað og
Íþróttabandalag Akraness. Blaða-
maður Skessuhorns settist niður í
Garðalundi með Önnu Sólveigu og
ræddi við hana um hreyfistöðvarn-
ar, sjúkraþjálfunina og almennt um
mikilvægi hreyfingar.
Hreyfistöðvarnar eru
fyrir alla
Hreyfistöðvarnar voru upphaflega
hugsaðar til að virkja eldra fólk í
hreyfingu „Við Helga Sjöfn erum
báðar að þjálfa og kenna það sem
heitir Hreyfistjórn. Þar erum við
með fólk á öllum aldri. Á vorin höf-
um við fært tímana út þegar veðr-
ið er gott og síðasta sumar vorum
við mikið hér í skógræktinni. Þá
nýttum við tækifærið að prófa okk-
ur aðeins áfram með þessar æfingar
sem við vorum að setja saman fyr-
ir hreyfistöðvarnar. Þá fundum við
að þetta væri eitthvað sem gæti nýst
fleirum en bara eldra fólki. Okkur
fannst þetta til dæmis sniðugt fyrir
þá sem koma hingað að hlaupa en
eru kannski lítið að taka styrktaræf-
ingar. Það fólk gæti þá nýtt þetta
og tekið smá styrk samhliða hlaup-
unum,“ segir Anna Sólveig og bæt-
ir við að hreyfistöðvarnar eru settar
upp með þeim hætti að hægt sé að
aðlaga allar æfingar að nánast hverj-
um sem er. „Þannig geta allir fundið
æfingar við hæfi. Fjölbreytt hreyfing
gerir manni svo gott.“
Aðspurð segir Anna Sólveig æf-
ingarnar á hreyfistöðvunum vera
nokkuð skotheldar og fólk ætti ekki
að þurfa að hafa áhyggjur af því að
ráða ekki við þær eða fara fram úr
sér. „Ef fólk finnur að það ræður illa
við eitthvað er alltaf hægt að gera æf-
inguna auðveldari. Það er alltaf best
að fara bara rólega af stað og finna
hvað maður getur. Það er hægt að
gera færri endurtekningar, gera æf-
inguna bara einu sinni og ef manni
líður vel er hægt að koma aftur eft-
ir nokkra daga og gera meira. Það
er alltaf best að gefa sér tíma til að
venjast nýjum hreyfingum og byggja
hægt og rólega ofaná það. Ef þú gef-
ur þér tíma og leyfir líkamanum að
aðlagast nýju álagi smám saman er
hægt að byggja sig upp í næsta þrep.
En svo ef fólk er eitthvað óöruggt er
sniðugt að finna einhvern sem þekkir
til og fá aðstoð við að komast af stað.
Gullna reglan er alltaf að byrja bara
hægt,“ segir Anna Sólveig. Fyrir þá
sem eru lengra komnir í hreyfingu
er svo alltaf hægt að finna útfærslu
á æfingunum til að gera þær erfið-
ari. „Það þarf ekki alltaf þyngdir til
að gera góða styrktaræfingu. Það er
margt hægt að gera með eigin lík-
amsþyngd, til dæmis að gera æfing-
ar á öðrum fæti eða taka hnébeygju
og stoppa aðeins í neðstu stöðu. Svo
er alltaf hægt að gera fleiri endur-
tekningar. Það þarf ekki endilega að
fara í líkamsræktarstöð til að gera
styrktaræfingar,“ segir Anna Sólveig
og brosir.
Opnaði eigin
sjúkraþjálfun
Anna Sólveig er fædd og uppal-
in á Akranesi og hefur búið þar
alla tíð, að undanskildum þrem-
ur árum í Danmörku þegar for-
eldrar hennar fóru þangað í nám
og fimm árum þegar hún fór sjálf
í nám til Bandaríkjanna. Hún
er gift Símoni Hreinssyni og er
móðir Gunnars Smára, 14 ára,
auk þess sem hún á þrjá upp-
komna stjúpsyni. Hún er sjúkra-
þjálfari að mennt og hefur starf-
að við það síðan 2004 og hefur nú,
ásamt þremur öðrum sjúkraþjálf-
urum, stofnað eigin stofu á Akra-
nesi; Sjúkraþjálfun Akraness. „Ég
hef komið víða við og safnað að
mér reynslu og þekkingu og mér
fannst þetta góður tímapunktur til
að opna eigin stofu. Ég vann lengi
á Reykjalundi og svo var ég hjá
Hæfi Endurhæfingastöð í Egils-
höll í tvö ár og var þar með í ferl-
inu frá upphafi og lærði margt á
því. Stofnaði Hreyfistjórn sam-
hliða og hef auk þess unnið hjá
Knattspyrnufélagi ÍA síðastlið-
in tíu ár sem sjúkraþjálfari,“ seg-
ir Anna Sólveig og bætir við að
sjúkraþjálfun sé fjölbreytt starf og
nýtir hún fjölbreytnina sjálf enda
með breitt áhugasvið þó forvarn-
ir og lýðheilsa séu mjög ofarlega á
hennar áhugasviði. „Ég var ekkert
að stefna á að fara í eigin rekstur
en rétt fyrir síðustu áramót fór svo
eitthvað af stað. Við vorum fleiri
hér á Akranesi í svipuðum spor-
um og þetta var bara rétti tíminn
fyrir okkur að sameinast og opna
stofu,“ segir Anna Sólveig.
Hreyfistjórn
Sjúkraþjálfun Akraness er til húsa
við Suðurgötu 126 en í sama húsi
hafa þær Anna Sólveig og Helga
Sjöfn verið með Hreyfistjórn, sem
þær stofnuðu árið 2015 en hef-
ur verið til í einhvers konar mynd
frá árinu 2005. „Mér fannst spenn-
andi tækifæri að geta sameinað tvær
af mínum vinnum undir sama þak,“
segir Anna Sólveig. „Okkur lang-
ar að skapa góða upplifun fyrir þá
sem koma til okkar, hvort sem er í
Hreyfistjórn eða sjúkraþjálfun. Við
erum með litla en vel útbúna lík-
amsrækt fyrir þá sem eru hjá okkur í
sjúkraþjálfun og vonandi getum við
svo opnað það fyrir fleirum síðar.
Það eru margir sem vilja geta æft í
rólegu umhverfi með smá stuðningi
og við sjáum möguleika í okkar að-
stöðu til að skapa eitthvað svoleið-
is,“ segir Anna Sólveig og bætir við
að einnig sé hægt að koma til þeirra
í Hreyfistjórn og fá æfingaprógram
til að koma sér af stað í hreyfingu.
Þarft að vera tilbúin að
gera breytingar
Aðspurð segir Anna Sólveig hlut-
verk sjúkraþjálfara fyrst og fremst
vera að hjálpa fólki af stað og fræða
og leiðbeina í átt að betri heilsu eða
færni í því sem skiptir það máli.
„Okkar hugsun er að hafa gott flæði
bæði inn og út af stofunni, að fólk
þurfi ekki að bíða lengi eftir því að
komast að og að fólk fái leiðbeining-
ar og aðstoð sem það getur svo nýtt
sér til að verða sjálfstæðari í sínu
endurhæfingarferli og tekið ábyrgð
á eigin heilsu,“ segir Anna Sólveig
og bætir við að sumir þurfi jafnvel
bara nokkur skipti vegna síns vanda
á meðan aðrir þurfa meira. „Sjúkra-
þjálfun virkar þannig að þegar fólk
kemur til okkar þarf það að vera
tilbúð að gera breytingar því eðli
málsins samkvæmt er eitthvað sem
þarf að breytast hjá því. Ef þú vilt ná
árangri þá verður þú að vera tilbúin
að breyta því sem heldur aftur af þér
og leggja í þá vinnu sem þarf. Hlut-
verk sjúkraþjálfara getur í mörgum
tilfellum verið bara leiðbeinandi og
að gefa fólki tólin og kunnáttuna
sem það þarf til að ná markmiðum
sínum,“ útskýrir hún.
Hreyfistjórn
hentar öllum
Anna Sólveig segir aðspurð að mik-
il heilsuvakning hafi orðið í sam-
félaginu okkar undanfarin ár. Hún
segir þó að enn séu of margir sem
hreyfa sig ekki neitt. „Það er oft
erfitt að komast af stað í hreyfingu,
til dæmis eftir veikindi eða meiðsli.
Fólk veit kannski ekki hvar það
eigi að byrja en þá er um að gera
að leita aðstoðar. Það er svo mikil-
vægt að við hreyfum okkur og allir
geta eitthvað. Það hefur svo mikið
að segja fyrir lífsgæði fólks að hugsa
vel um líkamann sinn,“ segir Anna
Sólveig en hún segir Hreyfistjórn
einmitt henta vel fyrir þá sem eru
að byrja. „Hreyfistjórn er þann-
ig séð bara almenn heilsuefling.
Hugmyndafræðin er að vinna með
hreyfistjórnun í hreyfingum og
gera liðkandi og styrkjandi æfing-
ar sem auka færni fólks í allri hreyf-
ingu. Við leggjum áherslu á líkams-
vitund þannig að fólk læri betur inn
á sig og geti beitt líkamanum þann-
ig að það upplifi að það hafi stjórn á
og ráði vel við hreyfinguna. Þann-
ig nær fólk smám saman að byggja
upp styrk, þrek, jafnvægi og hreyf-
anleika sem skilar sér í betri hreyfi-
færni í því sem hver og einn fæst við
daglega,“ segir hún.
Í Hreyfistjórn er boðið upp á þrjá
mismunandi tíma, FysioFIT sem
eru styrktartímar þar sem unnið
er með lóð eða þyngdir sem mót-
stöðu eða eigin líkamsþyngd, Fysio
Flow (hreyfiflæði) þar sem er unn-
ið er að því að bæta hreyfanleika og
jafnvægi og að lokum Fysio Flex
sem notaðir eru boltar og rúllur í
sjálfsnudd. „Við tökum alltaf góða
slökun í tímunum og leggjum upp
úr rólegu og notalegu umhverfi þar
sem taugakerfið fær þá hvíld sem
það þarfnast inn á milli,“ segir hún.
„Ég hvet alla til að kíkja í Garða-
lund og prófa æfingarnar á hreyfi-
stöðvunum,“ segir Anna Sólveig að
endingu.
arg
„Fjölbreytt hreyfing gerir manni svo gott“
Rætt við sjúkraþjálfarann Önnu Sólveigu Smáradóttur um mikilvægi hreyfingar
Anna Sólveig bendir hér á eitt af upplýsingaskiltunum sem komið hefur verið upp í Garðalundi.
Anna Sólveig sýnir blaðamanni dæmi um æfingar sem fólk getur sjálft gert. Allir eiga að geta fundið æfingar við hæfi.