Skessuhorn - 22.07.2020, Side 16
MIÐVIKUDAGUR 22. JúlÍ 202016
Í liðinni viku hófust tilraunaveiðar í
smáum stíl í Andakílsá í Borgarfirði
eftir þriggja ára hlé. Ekkert hefur
verið veitt í ánni eftir að ríflega 20
þúsund rúmmetrum af aur úr inn-
takslóni Andakílsárvirkjunar var
fyrir mistök veitt í ána vorið 2017.
Stjórn Veiðifélags Andakílsár hefur
í samráði við fiskifræðinga og aðra
helstu ráðgjafa sína tekið ákvörðun
um að veitt verði í 60 daga á þessu
sumri á eina stöng í tilraunaskyni.
Einungis vönum laxveiðimönnum
í Andakílsá stóð til boða að sækja
um að veiða í ánni í sumar. Veiðum
þeirra fylgja auk þess kvaðir svo sem
um skrásetningu og upplýsingagjöf,
einungis er leyfilegt að drepa tvo
laxa á dag og úr þeim skal sömu-
leiðis taka sýni til rannsókna. Að
sögn Ragnhildar Helgu Jónsdótt-
ur formanns veiðifélagsins verður
reynslan af þessum tilraunaveiðum í
sumar nýtt til að taka ákvörðun um
næstu skref. Mögulega hefjast veið-
ar næsta sumar og að þá verði hægt
að veiða á tvær stangir líkt og fyrir
umhverfisslysið vorið 2017.
Líf að færast í ána
Andakílsá er mjög aðgengileg lax-
veiðiá. Veitt er frá brúnni á þjóð-
veginum og upp að virkjun. Birgir
Guðnason frá Akranesi hefur veitt
í Andakílsá í sextíu ár, byrjaði sem
smástrákur að fara þangað með
föður sínum og þekkir því hverja
þúfu og hvern stein í ánni. Faðir
hans Guðni Eyjólfsson var reynd-
ur veiðimaður á þessum slóðum,
veiddi þar í hartnær sjö áratugi, síð-
ast þegar hann var 95 ára árið 2011.
Birgi fannst kærkomið að fá að taka
þátt í tilraunaveiðum nú. Sjálf-
ur sagði hann hafa óttast að ekk-
ert yrði hægt að veiði í ánni í ára-
tug eftir slysið. Það kom honum því
skemmtilega á óvart að smálaxinn
var mættur í stórum göngum. Hann
var við veiðar ásamt Hilmari Magn-
ússyni tengdasyni sínum þegar
stjórn veiðifélagsins boðaði blaða-
menn til upplýsingafundar síðast-
liðinn föstudag. Óhætt er að segja
að veiðin hjá þeim Birgi og Hilmari
lofi góðu um að tekist hafi að end-
urheimta lífríki árinnar. Þegar gest-
irnir stoppuðu við árbakkann um
klukkan ellefu um morguninn voru
Birgir og Hilmar að landa níunda
laxinum þá um morguninn. Anda-
kílsá er því full af fiski, að mestu
eins árs lax úr sjó.
Mikil vinna að baki
Ragnhildur Helga Jónsdóttir í Ausu
er formaður stjórnar veiðifélagsins.
Mikið hefur mætt á stjórnarfólki og
öðrum landeigendum frá því vorið
2017. lýsti hún því áfalli sem aur-
hlaupið í ána var 2017. „Öllum varð
strax ljóst að gríðarlegt tjón hafði
átt sér stað. Það fóru yfir 20 þúsund
rúmmetrar af aur niður úr lóninu og
fyllti bókstaflega alla veiðistaði ár-
innar. Í stað hylja í ánni stóðu hval-
bök af aur upp úr á þeim stöðum.
Óhætt er að segja að þetta hafi rústað
ánni og allt lífríki árinnar á þessum
tímapunkti var horfið. Við vorum á
einhvers konar núllpunkti. Seiðin í
ánni voru öll dauð, hún var bókstaf-
lega líflaus. Þegar þetta gerðist var
einungis mánuður í að veiðitímabil-
ið ætti að hefjast. Sem betur fer var
laxinn þetta sumar ekki byrjaður að
ganga úr sjó og upp í ána. Það náð-
ist því þarna um sumarið 2017 að
veiða fisk í klak, ná hrognum og ala
upp seiði og sleppa þeim í sérstakar
sleppitjarnir í ánni. Þannig tókst að
viðhalda þeim góða laxastofni sem
hér á heimkynni sín. Fiskur úr þessu
klaki er því að koma til baka núna
eftir ár í sjó,“ útskýrði Ragnhildur.
Hún segir að því hafi verið ákveðið,
að vel ígrunduðu máli og í samráði
við alla helstu sérfræðinga, að hefja
tilraunaveiðar í sumar í smáum stíl
til að afla frekari upplýsinga. Veið-
unum fylgir kvöð og einungis valdir
menn sem gjörþekkja ána fengnir á
bakkann. Þeir geta borið ástand ár-
innar nú saman við reynslu sína fyrir
umhverfisslysið. „Við förum í einu
og öllu að ráðleggingum Hafró sem
unnið hefur með okkur allar göt-
ur síðan vorið 2017. Sigurður Már
Einarsson fiskifræðingur hefur ver-
ið vakinn og sofinn yfir þessu með
okkur. Nú verður því veitt á eina
stöng í 60 daga og takmörk sett á
hversu marga laxa má drepa. Ör-
merktir fiskar verða rannsakaðir og
veiðimenn þurfa að skila skýrslum
um veiðistaði og annað sem þeir
verða áskynja. Hugsanlega kemur í
ljós að moka þurfi meira af efni upp
úr ánni á einhverjum stöðum til að
endurheimta veiðistaði, en fram-
hald veiðanna verður ákveðið út frá
þeirri reynslu sem nú fæst.“
Endanlegt tjón liggur
ekki fyrir
Ragnhildur Helga segir að Orka
náttúrunnar, eigandi virkjunarinn-
ar, hafi verið í góðu samstarfi við
veiðifélagið eftir umhverfisslysið og
lagt sig í líma við að bæta fyrir þann
skaða sem búið var að valda. „Fyr-
irtækið hefur lagt til sérfræðinga og
gert allt sem í þess valdi stendur til
að bæta fyrir tjónið.“ Hún upplýsti
að ON hafi greitt landeigendum
fyrir tapaðan veiðirétt undanfarinna
þriggja ára en hins vegar eigi eftir
að meta endanlegt tjón. „Við vit-
um til dæmis ekki enn hvernig orð-
spor árinnar verður eftir umhverf-
isslys af þessari stærðargráðu og allt
umtalið sem þessu hefur fylgt. Það
á eftir að koma í ljós og væntanlega
verður okkur bætt það fjárhagslega
tjón sem veiðifélagið varð fyrir. Áin
hefur breyst mikið eftir þetta og
enn eru veiðistaðir sem ekki hef-
ur náðst að endurheimta. En engu
að síður er þetta allt á réttri leið og
ástæða til bjartsýni. Smálaxinn er í
það minnsta að skila sér úr sjó og
vonandi munu þessar tilraunaveið-
ar næstu tvo mánuði leiða það af sér
að við getum hafið veiðar að nýju
eins og þær voru síðast sumarið
2016. Væntanlega mun þá Stang-
veiðifélag Reykjavíkur geta tekið
við ánni að nýju,“ sagði Ragnhild-
ur.
mm
Þykkt lag af límkenndum leir var hvarvetna í botni árinnar og upp á bakka hennar
eftir umhverfisslysið og áin var gjörsamlega lífvana. Við árbakkann sást að vatn
hafði hækkað um rúmlega hálfan metra þegar leirnum var hleypt niður.
Tilraunaveiðar í Andakílsá lofa góðu
Smálax úr upprunalega stofni árinnar er farinn að skila sér úr hafi
Birgir Guðnason og Hilmar Magnússon eru hér að landa níunda laxinum á fimmtudagsmorgninum. Þeim var öllum sleppt að
nýju.
Kristján Már Unnarsson fréttamaður á Stöð2 spjallaði við Birgi á árbakkanum.
Mikið hefur mætt á stjórn Veiðifélags Andakílsár síðustu árin. Hér eru þau á pall-
inum við veiðihúsið f.v: Dagný Sigurðardóttir á Innri-Skeljabrekku, Ragnhildur
Helga Jónsdóttir í Ausu og Jóhannes Guðjónsson í Efri-Hrepp.
Þessi mynd var tekin vorið 2017
skömmu eftir að aurhlaupið í ána
varð. Hér má sjá hvernig áin gróf sig
niður í botn miðlunarlónsins ofan
við virkjunina og leirinn var að falla
úr bakkanum. Jóhannes Guðjónsson
stendur uppi á bakkanum.
Ljósm. Guðrún Guðmundsdóttir.