Skessuhorn - 22.07.2020, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 22. JúlÍ 202020
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Vikuna 10.-14. ágúst nk. verður
boðið upp á byrjendanámskeið í
borðtennis í Borgarnesi. Nám-
skeiðið er ætlað börnum og ung-
lingum á aldrinum 10 til 15 ára.
Kennslan verður í höndum Ársól-
ar Clöru Arnardóttur, borðtenn-
iskonu úr KR. Ársól Clara á m.a.
að baki farsælan feril í borðtenn-
is með Borðtennisdeild KR og
landsliðinu. Á námskeiðinu verður
farið í öll grunnatriði borðtennis-
íþróttarinnar og hún kynnt fyrir
þátttakendum. Áhersla er lögð á
leikgleði, framfarir og skemmtun.
Nemendum verður skipt í hópa
eftir aldri þannig að nemendur í
4. og 5. bekk verða klukkan 10 til
12 en nemendur í 6. og 7. bekk frá
kl 13 til kl. 15.
Námskeiðagjald er 6.000 kr.
Nánari upplýsingar um nám-
skeiðið má nálgast hjá umsjónar-
manni námskeiðsins, Ársól Clöru
Arnardóttur, með því að senda
fyrirspurn á netfangið arsol.arn-
ar@gmail.com.
mm
Íslandsmeistaramótið í sundi í 50
metra laug var haldið um síðustu
helgi í laugardalslaug. Alls tóku
146 sundmenn þátt frá 14 félögum.
Sökum Covid-19 var mótið með
örlítið breyttu sniði en venja er.
Þannig var ákveðið að synda all-
ar greinar í beinum úrslitum í stað
undanrása og úrslita, eins og tíðk-
ast hefur undanfarin ár.
Sundfélag Akraness sendi
14 keppendur til þátttöku í
mótinu að þessu ári. Ekki hafa
fleiri keppendur frá Sundfélagi
Akraness náð lágmarki á mótið
undanfarinn áratug, að því er fram
kemur í tilkynningu frá félaginu.
Af þeim voru fimm að taka þátt
í Íslandsmeistaramótinu í fyrsta
sinn. „Sundkrakkarnir áttu mjög
góða helgi og stemningin í hópnum
var mjög góð. Sundfélagið uppskar
fimm silfur og sjö bronsverðlaun.
Persónulegar bætingar voru alls
41 og áttu við topp 8. sæti alls 28
sinnum,“ segir í tilkynningu SA.
Brynhildur Traustadóttir hreppti
silfurverðlaun í 200 m, 400 m og
1500 m skriðsundi og vann til
bronsverðlauna í 800 m skriðsundi.
Býður upp á sumar-
námskeið í borðtennis
í Borgarnesi
Sóttu tólf verðlaun á Íslandsmeistaramótið
Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir
vann til silfurverðlauna í 50 m
flugsundi og 50 m bringusundi.
Voru það hennar fyrstu verðlaun
á Íslandsmeistaramóti. Enrique
Snær llorens Sigurðsson varð
þriðji í 400 m skriðsundi og
200 m og 400 m fjórsundi og
Sindri Andreas Bjarnason vann
sín fyrstu einstaklingsverðlaun á
Íslandsmeistaramóti, brons í 200 m
skriðsundi.
Boðsundsveitir Sundfélags
Akraness áttu einnig góðu gengi að
fagna á mótinu. Í 4x200 m skriðsundi
unnu strákarnir til bronsverðlauna
eftir harða samkeppni við ÍBR. Þeir
Sindri Andreas, Enrique Snær, Atli
Vikar Ingimundarson og Kristján
Magnússon, skipuðu sveitina sem
kom í mark aðeins 0,28 sek. á undan
keppinautunum í fjórða sætinu.
Í 4x100 m skriðsundi hrepptu
stelpurnar bronsið. Sveitina
skipuðu þær Guðbjörg Bjartey,
Brynhildur, Ragnheiður Karen
Ólafsdóttir og Ingibjörg Svava
Magnúsardóttir.
Blönduð boðsundsveit SA
setti nýtt Akranesmet í 4x50 m
skriðsundi á tímanum 1.46,97
sek. Sveitina skipuðu þau Sindri
Andreas, Atli Vikar, Guðbjörg
Bjartey og Brynhildur. Nýja metið
skilaði þeim fjórða sæti í mótinu.
Guðbjarni Sigþórsson setti einnig
Akranesmet í 100 m skriðsundi í
flokki 13-14 ára á tímanum 1.00,15
sek. og bætti þar með met Arnar
Viljars Kjartanssonar frá 2005 um
82 sekúndubrot.
kgk/ Ljósm. Sundfélag Akraness.
Sundkapparnir nutu góðs stuðnings frá áhorfendapöllunum.
Liðsmenn Sundfélags Akraness á mótinu. Aftari röð f.v. Sævar Berg Sigurðsson, Brynhildur Traustadóttir, Atli Vikar
Ingimundarson, Enrique Snær Llorens Siguðrsson, Sindri Andreas Bjarnason, Alex Benjamín Bjarnason og Ragnheiður Karen
Ólafsdóttir. Fyrir framan f.v. Aldís Thea Danielsdóttir Glad, Karen Káradóttir, Ingibjörg Svava Magnúsardóttir, Guðbjörg
Bjartey Guðmundsdóttir, Kristján Magnússon, Guðbjarni Sigþórsson og Einar Margeir Ágústsson.