Skessuhorn - 22.07.2020, Page 22
MIÐVIKUDAGUR 22. JúlÍ 202022
Í gær..?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Freyja Ísfold Guðmundardóttir
„Fór til Reykjavíkur í Flyover
Iceland.“
Sigurður Mikael Jóhannsson
„Fór í flugtak.“
Hrafnhildur Amalía Jóhanns-
dóttir
„Fór á langasand að moka sand
og grjóti.“
Matthildur Kristín Hólmfríð-
ardóttir
„Fór í Flyover Iceland og á
langasand.“
Aga- og útskurðarnefnd KSÍ birti
á fimmtudaginn úrskurð sinn sinn
vegna rasískra ummæla leikmanns
Skallagríms gegn leikmanni Ber-
serkja. Féllu þau 10. júlí þegar lið-
in áttust við í 4. deild karla. Sam-
kvæmt úrskurðinum fær Atli Stein-
ar Ingason, leikmaður Skalla-
gríms, fimm leikja bann sem tek-
ur gildi strax auk þess sem hann
verður í banni frá leikvelli Skalla-
gríms í Borgarnesi á meðan leik-
bannið varir. Þá fær knattspyrnu-
deild Skallagríms sekt að upphæð
100.000 krónur sem skal greiða til
KSÍ vegna atviksins.
Atvikið átti sér stað eins og
fyrr segir í leik Skallagríms og
Berserkja þegar liðin mættust á
Skallagrímsvelli í Borgarnesi 10. júlí.
Kom upp það atvik að Atli Steinar
kallaði ókvæðisorðum að Gunnari
Jökli John á grundvelli hörundslitar
hans snemma í síðari hálfleik. Slíkt
verður ekki liðið innan vallar sem
utan var aganefndin samdóma um.
Stjórn Skallagríms ákvað í
kjölfarið að leikmaðurinn muni
ekki spila meira með liðinu í
sumar. Í yfirlýsingu frá félaginu
síðastliðinn föstudag segir: “Stjórn
knattspyrnudeildar Skallagríms
tók fyrir úrskurð aganefndar KSÍ
vegna máls Atla Steinars Ingasonar
leikmanns liðsins, á fundi sínum
fyrr í dag. Eftir að hafa farið
yfir úrskurðinn, þar sem Atli er
dæmdur í fimm leikja bann, er
það niðurstaða stjórnar að Atli
muni ekki spila meira með liði
meistaraflokks Skallagríms á þessu
keppnistímabili. Þessi ákvörðun
er tekin í samráði við þjálfara
liðsins. Stjórn Knattspyrnudeildar
Skallagríms harmar umrætt atvik
og ítrekar að félagið mun ekki líða
að leikmenn þess viðhafi framkomu
sem feli í sér kynþáttafordóma, eða
mismunun af nokkru tagi.”
glh
Borgnesingar í Skallagrími þurftu
að sætta sig við tap gegn Ham-
arsmönnum þegar liðin mættust
í toppslag C riðils fjórðu deildar
karla í knattspyrnu á miðvikudag-
inn í Hveragerði.
Það voru heimamenn úr Hvera-
gerði sem skoruðu fyrsta mark
leiksins. Það kom á 26. mínútu
þegar Bjarki Rúnar Jónínuson skil-
aði knettinum inn fyrir mark þeirra
gulklæddu. Tíu mínútum síðar varð
Skallagrímsmaðurinn Birgir Theo-
dór Ásmundsson fyrir því óláni að
skora sjálfsmark sem jók forystu
Hamars og leiddu Hvergerðingar
með tveimur mörkum í leikhléi.
Í síðari hálfleik bætti Hamar við
þriðja markinu á 59. mínútu. Þar
var að verki Ingþór Björgvinsson
og staðan orðin heldur svört fyrir
Borgnesinga á þessum tímapunkti.
loks þegar um stundarfjórðungur
lifði af leik náði Magnús Helgi Sig-
urðsson að koma þeim gulklæddu
á blað og minnkaði muninn í tvö
mörk. Arnar Eiríksson bætti svo
við öðru marki Borgnesinga á ann-
arri mínútu uppbótartíma og allt í
einu var eins marks munur á liðun-
um. Jón Bjarni Sigurðsson slökkti
svo í allri von Borgnesinga til að
sækja sér stig úr viðureigninni þeg-
ar hann bætti við fjórða marki sinna
manna áður en flautað var til leiks-
loka. Niðurstaðan 4-2 fyrir Hamar.
Með sigrinum voru Hamars-
menn einir á toppi C riðils með
15 stig og Skallagrímsmenn í öðru
sæti með 12 stig. Borgnesingar áttu
í gærkvöldi heimaleik gegn Ísbirn-
inum, en leikurinn var ekki hafinn
þegar Skessuhorn fór í prentun.
glh
Snæfellingar fóru enga skemmti-
reisu til Stokkseyrar síðastliðið
föstudagskvöld, þegar þeir mættu
liði heimamanna í 4. deild karla í
knattspyrnu. Skemmst er frá því að
segja að Stokkseyringar burstuðu
lið Hólmara og sigruðu með sjö
mörkum gegn engu.
Jón Jöull Þráinsson kom heima-
mönnum yfir á 14. mínútu leiks-
ins og Þórhallur Aron Másson
bætti öðru marki þeirra við fjór-
um mínútum síðar. Hjalti Jóhann-
esson skoraði þriðja mark Stokks-
eyringa úr vítaspyrnu á 25 mínútu
og tveimur mínútum síðar var hann
aftur á ferðinni - og aftur úr víta-
spyrnu. Það var síðan Andri Einars-
son sem skoraði síðasta mark fyrri
hálfleiksins á 32. mínútu og staðan
5-0 í hléinu.
Síðari hálfleikur var ekki nema
þriggja mínútna gamall þegar lár-
us Hrafn Hallsson kom Stokkseyr-
ingum í 6-0. Hann var síðan aftur
á ferðinni á 54. mínútu leiksins og
heimamenn komnir í 7-0. Fleiri
mörk voru ekki skoruð og urðu það
því lokatölur leiksins.
Snæfellingar hafa ekki riðið feit-
um hesti frá keppni í 4. deildinni
það sem af er sumri. liðið situr í 7.
og neðsta sæti B riðils með aðeins
eitt stig eftir fimm leiki, rétt eins og
Álafoss í sætinu fyrir ofan. Næsti
leikur Snæfells er heimaleikur gegn
Birninum nætkomandi laugardag,
25. júlí. kgk
Káramenn unnu stórsigur á Víði,
5-0, þegar liðin mættust í 2. deild
karla í knattspyrnu á föstudags-
kvöld. leikið var í Akraneshöllinni.
Strax á 11. mínútu áttu Káramenn
laglega sókn upp vinstri kantinn
sem endaði með því að brotið var
á Andra Júlíussyni í vítateignum, í
þann mund sem hann var að komast
í upplagt marktækifæri. Andri fór
sjálfur á punktinn og skoraði fyrsta
mark leiksins. Marinó Hilmar
Ásgeirsson kom Kára í 2-0 með góðu
skoti í hornið fjær eftir fyrirgjöf frá
hægri á 35. mínútu. Skömmu áður
en flautað var til hálfleiks fengu
gestirnir vítaspyrnu, eftir að hendi
var dæmd á varnarmann Kára.
Pepelu Vidal fór á punktinn en
Dino Hodzic sá við honum. Var það
þriðja vítaspyrnan sem Dino ver í
síðustu tveimur leikjum liðsins.
Eggert Kári Karlsson skoraði
þriðja mark Kára á 56. mínútu
með skoti af stuttu færi eftir
snarpa sókn. Á 79. mínútu fengu
Káramenn hornspyrnu og boltinn
barst á fjærstöng þar sem Sverrir
Mar Smárason var mættur til að
pota honum yfir línuna. Það var
síðan Oliver Darri Bergmann
sem innsiglaði 5-0 sigur Kára í
uppbótartíma eftir frábæra móttöku
í vítateig gestanna.
Kári situr í 7. sæti deildarinnar
með átta stig eftir sex leiki,
tveimur stigum á eftir næstu liðum
en með eins stigs forskot á ÍR í
sætinu fyrir neðan. Næsti leikur
Kári gegn Dalvík/Reyni í kvöld,
miðvikudaginn 22. júlí. Sá leikur fer
fram í Akraneshöllinni.
kgk/ Ljósm.
Knattspyrnufélag Kára.
Frá leik Snæfellinga fyrr í sumar. Ljósm. sá.
Snæfellingar burstaðir
Knattspyrnu-
deildinni gert að
greiða sekt og
vísar leikmanni frá Skallagrímur tapaði
í toppslagnum
Stórsigur Kára