Skessuhorn - 22.07.2020, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 22. JúlÍ 2020 23
Guðjón Þórðarson hefur verið ráð-
inn nýr þjálfari Víkings Ólafsvík.
Hann tekur við starfinu af Jóni Páli
Pálmasyni sem var vikið frá störf-
um í síðustu viku. Guðjón tók
formlega við liðinu eftir leik Ólafs-
víkinga gegn Aftureldingu á föstu-
daginn, en Brynjar Kristmundsson
stýrði liðinu í þeim leik sem reynd-
ar fór illa fyrir Víking sem tapaði
3-1 á heimavelli.
Guðjón Þórðarson er Skaga-
maður að uppruna og þaulreyndur
þjálfari. Hann hefur m.a. þjálfað lið
ÍA, KA, KR, Stoke, Crewe, Notts
County og Grindavík ásamt því
að hafa þjálfað íslenska karlalands-
liðið. Hér á landi hefur Guðjón
ekki þjálfað síðan 2012 þegar hann
stýrði Grindavík.Síðast var hann
við störf hjá NSI Runavik í Færeyj-
um en hætti með liðið eftir síðasta
tímabil. Í tilkynningu frá Víkingi
kemur fram að Guðjón taki við lið-
inu og stýri því út þetta tímabil.
mm
liðin vika hefur reynst kvenna-
liði ÍA í knattspyrnu erfið en liðið
tapaði báðum viðureignum sínum,
fyrst úti gegn toppliði Keflavíkur
á fimmtudaginn, og núna síðast á
mánudaginn gegn Augnabliki.
leikur ÍA og Augnabliks fór fram
á Akranesvelli þegar sjötta umferð
Íslandsmótsins fór af stað. Það voru
Skagastúlkur sem komust fyrst á
blað þegar Guðrún Karítas Sig-
urðardóttir kom knettinum í mark
gestanna. Ekki komu fleiri mörk í
fyrri hlutanum og Skagakonur með
ágætis eins mark forskot í leikhléi.
Í síðar hálfleik, á innan við tíu
mínútna spilamennsku, náðu Kópa-
vogsstúlkur að jafna metin. Það var
Þórhildur Þórhallsdóttir sem sendi
boltann yfir marklínu Skagakvenna
og jafnaði. Heimstúlkur voru ekki
lengi að svara því einungis tveim-
ur mínútum síðar kom Fríða Hall-
dórsdóttir þeim gulklæddu yfir á
nýjan leik og staðan allt í einu orð-
in 2-1. lokamínúturnar voru fjör-
ugar. Þórhildur Þórhallsdóttir í
Augnabliki reyndist hetja liðsins en
hún jafnaði metin þegar tvær mín-
útur voru eftir af venjulegum leik-
tíma. Hún var svo aftur á ferðinni
á fyrstu mínútu uppbótartíma og
landaði sigrinum í blálokin. 3-2
fyrir Augnabliki var niðurstaðan.
Með tveimur töpum í röð í vik-
unni, fyrst gegn Keflavík og næst
gegn Augnabliki, hefur ÍA dott-
ið niður um tvö sæti og situr nú
í sjöunda sæti með einungis sex
stig þegar sex umferðir eru bún-
ar. Augnablik er í sætinu fyrir ofan
með sjö stig.
Næsti leikur ÍA er gegn Fjölni
28. júlí í Grafarvoginum og hefst
leikurinn kl. 19:15.
glh/ Ljósm. sas
Skagamenn máttu sækja knöttinn
sex sinnum í netið þegar þeir heim-
sóttu Víking R. í Pepsi Max deild
karla á sunnudagskvöld. Staðan var
2-1 í hálfleik og leikurinn galopinn,
en í þeim síðari tóku heimamenn
öll völd á vellinum og sigruðu að
lokum 6-2.
Fyrst dró til tíðinda á 23. mínútu
leiksins þegar Víkingur fékk víta-
spyrnu eftir að Aron Kristófer lár-
usson braut á Davíð Erni Atlasyni
í teignum. Óttar Magnús Karls-
son fór á punktinn og skoraði með
föstu lágu skoti í hornið vinstra
megin. Árni Snær Ólafsson hafði
hönd á boltanum en hafði ekki er-
indi sem erfiði. Á 37. bættu heima-
menn öðru marki við. Kári Árnason
skallaði boltann inn á markteit eft-
ir hornspyrnu. Þar reis Davíð Örn
hæst í teignum og skallaði boltann
í netið. Varnarmenn Víkings sköll-
uðu hornspyrnu út í teiginn. Þar
féll boltinn fyrir Stefán Teit Þórð-
arson sem hamraði hann í þverslá
og inn. Staðan í hálfleik var 2-1 og
leikurinn galopinn.
Víkingar gerðu að kalla út um
leikinn með tveimur mörkum
snemma í síðari hálfleik. Nikolaj
Hansen skoraði það fyrra með lag-
legri vippu á 51. minútu eftir góða
sendingu frá Atla Barkarsyni. Að-
eins mínútu síðar sendu Víking-
ar boltann upp völlinn. Árni Snær
kom langt út úr markinu en hitti
ekki boltann svo hann féll fyrir Er-
ling Agnarsson sem fór framhjá
Marcusi Johansen og lagði hann í
autt markið. Staðan orðin 4-1 fyrir
Víking. En Skagamenn voru ekki af
baki dottnir og minnkuðu muninn
í 4-2 á 59. mínútu leiksins. Brynj-
ar Snær Pálsson sendi boltann inn
í teiginn á Hlyn Sævar Jónsson sem
var einn og óvaldaður í teignum
og setti boltann í netið með fyrstu
snertingu sinni eftir að hafa komið
inn á sem varamaður.
Skagamönnum tókst þó ekki að
minnka muninn í leiknum frekar,
þvert á móti áttu heimamenn eftir
að auka forskot sitt. Ágúst Eðvald
Hlynsson kom Víkingi í 5-2 á 66.
mínútu með góðu skoti af vítateigs-
línunni eftir sendingu frá Nikolaj
Hansen. Ágúst skoraði síðan annað
mark sitt og sjötta mark Víkings á
79. mínútu þegar boltinn féll fyrir
hann á fjærstöng eftir skot í varnar-
mann. Það var síðasta mark leiksins,
sem lauk með 6-2 sigri Víkings.
Skagamenn sitja í 7. sæti deildar-
innar með tíu stig eftir sjö leiki, jafn
mörg og Stjarnan í sætinu fyrir og
FH-ingar í sætinu fyrir neðan, en
hafa leikið fleiri leiki. Næst reima
Skagamenn á sig skóna annað
kvöld, fimmtudaginn 23. júlí, þegar
þeir fá Stjörnumenn í heimsókn á
Akranes. kgk/ Ljósm. úr safni/ gbh.
Víkingur Ó. mátti sætta sig við tap
gegn Aftureldingu, 1-3, þegar lið-
in mættust í 1. deild karla í knatt-
spyrnu á föstudagskvöld. leikið
var á Ólafsvíkurvelli. Brynjar Krist-
mundsson stýrði liðinu í leiknum
en Guðjón Þórðarson, nýráðinn
þjálfari Ólafsvíkinga, fylgdist með
úr stúkunni. Hann mun síðan stýra
liðinu frá og með næsta leik.
En aftur að leik föstudagsins. Það
voru gestirnir úr Mosfellsbæ sem
komust yfir strax á 5. mínútu leiks-
ins eftir laglegt þríhyrningaspil sem
lauk með því að Kári Steinn Hlíf-
arsson lagði boltann á Jason Daða
Svanþórsson sem skoraði. Eftir
að hafa fengið smá skell í upphafi
komust Ólafsvíkingar betur inn í
leikinn eftir því sem leið á. Bæði lið
fengu tækifæri til að skora en allt
kom fyrir ekki, allt þar til hálftími
var liðinn. Þá bættu gestirnir öðru
marki við. Mikill usli skapaðist í
vítateig Víkings eftir hornspyrnu.
Að lokum skoppaði boltinn út úr
teignum vinstra megin, fyrir fætur
Kristjáns Atla Marteinssonar sem
þrumaði honum í hornið fjær. Aft-
urelding leiddi þannig með tveim-
ur mörkum gegn engu þegar flaut-
að var til hálfleiks.
Jafnræði var með liðunum í upp-
hafi síðari hálfleiks, en eftir því sem
leið á tóku Ólafsvíkingar stjórnina.
Þeir héldu boltanum vel en gekk
erfiðlega að að skapa sér ákjósanleg
marktækifæri. Það var ekki fyrr en
undir lok leiks að Víkingur komst á
blað. Vítaspyrna var dæmd á Aftur-
eldingu og fyrirliðinn Emir Dokara
fór á punktinn. Hann var ekkert að
tvínóna við hlutina heldur þrumaði
boltanum í slána og inn. En gest-
irnir áttu lokaorðið og innsigluðu
1-3 sigur sinn þegar komið var fram
í uppbótartíma. Brynjar Atli Braga-
son varði með tilþrifum eftir usla í
vítateig Víkings, en boltinn barst á
Valgeir Árna Svansson sem potaði
boltanum yfir línuna.
Víkingur Ó. situr sem stendur
í 9. sæti deildarinnar með sex stig
eftir sex leiki, jafn mörg og leikn-
ir F. í sætinu fyrir neðan en þremur
stigum á eftir liðunum fyrir ofan.
Næsti leikur Ólafsvíkinga er úti-
leikur gegn leikni R. í kvöld, mið-
vikudaginn 22. júlí.
kgk
Skagamenn fengu
skell á Víkingsvelli
Alls voru 17 hornspyrnur teknar í leiknum. Þar af tók ÍA 14.
Erfið vika að baki hjá Skagakonum
Spilað var í mígandi rigningu í Keflavík.
Guðjón var að sjálfsögðu mættur til að fylgjast með gengi Víkings í leiknum gegn
Aftureldingu á föstudaginn. Í kjölfar leiksins tók Guðjón við þjálfun liðsins. Guð-
jóni á hægri hönd er Pétur Steinar Jóhannsson og Ólafur Rögnvaldsson á vinstri.
Ljósm. af.
Guðjón Þórðarson nýr
þjálfari Víkings Ó.
Daníel Snorri Guðlaugsson í baráttu við varnarmann Aftureldingar. Ljósm. af.
Töpuðu á heimavelli