Bændablaðið - 03.12.2020, Side 1
23. tölublað 2020 ▯ Fimmtudagur 3. desember ▯ Blað nr. 576 ▯ 26. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Gott hljóð í sauðfjárbændum á Urriðaá og á Bergsstöðum í Miðfirði:
Byggja 300 fermetra stálgrindarhús á tveim
bæjum til að auka þægindi við sauðburð
– Eru með metár í fallþunga og bjartsýnir þrátt fyrir lágt afurðaverð
Ólafur Rúnar Ólafsson og
Dagbjört Diljá Einþórsdóttir,
bændur á Urriðaá í Miðfirði,
eru bjartsýn á framtíð sauðfjár-
búskapar. Þau standa í stórræð-
um við útihúsabyggingar þessa
dagana, ásamt nágranna sínum,
Ara G. Guðmundssyni, bónda
á Bergsstöðum, og konu hans,
Elínu Önnu Skúladóttur.
Þótt mikið hafi verið rætt um
slæma afkomu í sauðfjárrækt og
áframhaldandi niðurskurð í grein
inni, þá eru þessir bændur fullir
bjartsýni og eru að stækka sinn
húsakost.
„Það gengur bara ljómandi vel í
sauðfjárbúskapnum,“ sagði Ólafur
í samtali við Bændablaðið. Hann
segir að lífið gangi sinn vanagang,
en lítill sem enginn snjór hafi
verið í haust þar til fyrir helgina,
en talsvert frost hefur þó verið að
undanförnu.
Eru komin með 700 fjár
og að byggja nýtt fjárhús
„Við erum komin með hátt í 700 fjár
og erum núna að byggja nýtt fjár
hús. Við erum að byggja hér á tveim
bæjum, hér hjá okkur og á þarnæsta
bæ við mig á Bergsstöðum hjá Ara
Guðmundssyni. Hann er smiður og
við höfum að mestu verið tveir að
vinna í þessu. Þar er um að ræða
alveg eins hús. Við fórum saman
í þetta verkefni, að reisa tvö 300
fermetra stálgrindarhús sem eru
klædd með yleiningum.“
– Munið þið þá fjölga enn fénu
með tilkomu nýju fjárhúsanna?
„Við fjölgum ekki mikið meira,
en þetta er aðallega hugsað sem
vorhús og til að auka plássið sem
við höfum.“
Þeir félagar voru að vinna við að
klæða húsið á Bergsstöðum í síð
ustu viku en urðu síðan að stoppa
til að bíða af sér veðrið sem gekk
yfir fyrir helgina. Vonuðust þeir til
að geta haldið áfram við að klæða
húsin í þessari viku.
„Svo á eftir að vinna svolítið í
húsunum að innan og er ætlunin að
þetta verði klárt fyrir sauðburðinn
í vor,“ segir Ólafur.
Metár í fallþunga á Urriðaá
og meðalvigt yfir 20 kg
– Hvernig var afkoman eftir sumarið
og hvernig kom haustslátrunin út
hjá ykkur?
„Það var mjög gott og algjört
metár, með fallþunga að meðaltali
yfir 20 kíló. Það mætti svo sem
alltaf fást meira fyrir afurðirnar, en
það er samt ekkert hægt að kvarta.
Þegar maður leggur sig allan fram
við þetta, þá held ég að það sé vel
hægt að hafa eitthvað upp úr þessu.“
Ólafur segir að þau hafi látið
slátra sínu fé í næsta sláturhúsi sem
er á Hvammstanga.
Sauðfjárbændur víðast um land
vinna mikið fyrir utan bú sín og
margir hafa rætt um að það geti
algjörlega skipt sköpum við að halda
rekstri sauðfjárbúa á floti. Sumir eru
í verktakavinnu, við skólaakstur og
snjómokstur og aðrir í kennslu eða
byggingarvinnu. Sú virðist þó ekki
alveg raunin á Urriðaá og sýnir upp
byggingin í búrekstrinum að þar er
greinilega haldið vel á spöðum.
Samt hefur fjölskyldan líka verið
að stækka og þau hjón komin með
tvö börn, stelpu og strák, þriggja og
eins árs.
– Þurfið þið þá ekki mikið að
vinna fyrir utan búið?
„Jú, aðeins, við höfum minkað
það. Dagbjört hefur ekki farið aftur á
vinnumarkaðinn eftir fæðingarorlof
ið. Ég er í ígripavinnu nokkra daga
yfir árið. Búskapurinn hefur gengið
vel og í raun komið okkur verulega
á óvart,“ segir Ólafur.
Bætir burðaraðstöðu
Ari G. Guðmundsson, húsasmiður
og bóndi á Bergsstöðum, og fjöl
skylda hans, er með 620 fjár. Hann
segir að með byggingu á húsinu sé
ekki ætlunin að fjölga fé, heldur að
eins að bæta aðstöðuna.
„Við höfum verið að nýta véla
geymsluna og hlöðu undir sauð
burðinn á vorin, en með tilkomu
á þessu húsi þurfum við þess ekki
lengur,“ segir Ari.
Hann segir að stefnt sé að því
að klára að loka húsunum fyrir jól.
Vissulega megi segja að bygging
fjárhúsa í sveitum teljist til tíðinda
nú til dags þegar sauðfjárbændur séu
líklega frekar að hugsa um að skella
í lás. – „Þetta er náttúrlega bilun,“
segir Ari og hlær.
Metár á Bergsstöðum og
fallþunginn um 20 kíló
Afraksturinn út úr sauðfjárrækt
inni hjá þeim á Bergsstöðum eftir
sumarið var mjög góður líkt og á
Urriðaá.
„Fallþunginn var rétt tæp 20 kíló
að meðaltali hjá okkur og þetta er
algjört metár og ræktunin hefur því
verið að koma vel út. Við kvörtum
svo sem ekkert, en það er auðvitað
galið að skilaverðið til okkar frá
afurðastöð sé ekki nema 500 krónur
á kílóið. Það má alveg segja að það
sé skrítið þegar staðan er orðin sú
hjá mörgum sauðfjárbændum að þeir
séu að fá meira í stuðningsgreiðslur
en þeir fá fyrir afurðir sínar. Það er
eitthvað skakkt við slíkt,“ segir Ari
G. Guðmundsson. /HKr.
Áheitaprjón
á Hvolsvelli
– Allt fyrir góð málefni
Kvenfélagið Eining í Hvolhreppi
stendur nú fyrir áheitaprjónaskap
til styrktar góðum málefnum.
„Þetta er mjög skemmtilegt verk
efni og gefandi, konurnar hamast við
að prjóna og það safnast í sarpinn hjá
okkur,“ segir Margrét Tryggvadóttir,
formaður Kvenfélagsins Einingar.
Fyrir Kvennaathvarf, Konukot,
Frú Ragnheiði og Dagrenningu
„Markmiðið er að ná að prjóna
300 hluti fyrir 1. febrúar 2021.
Allar prjónavörurnar ætlum við
síðan að gefa skjólstæðingum
Kvennaathvarfsins, Konukotsins
og til Frú Ragnheiðar svo eitthvað
sé nefnt. Peningar sem safnast
svo með áheitum verða gefnir
Björgunarsveitinni Dagrenningu
hér á Hvolsvelli.“
Söfnunarreikningur áheita
prjónsins er: 013315000289. Kt:
5406012750. /MHH
Nokkrar konur í Kvenfélaginu Einingu koma reglulega saman á Hvolsvelli til að prjóna vegna söfnunar áheita til styrktar góðum málefnum. Kannski er
erfitt að þekkja þær á myndinni með grímurnar vegna COVID-19 faraldursins, en á bak við grímurnar eru samt, talið frá vinstri: Þórunn Ólafsdóttir, Margrét
Guðjónsdóttir, Brynja Bergsveinsdóttir, Jóhanna Elín Christensen, Rósalind Ragnarsdóttir, Margrét Tryggvadóttir, Guðbjörg Guðmundsdóttir og Sigþrúður
Sigurjónsdóttir. Kvenfélagið Eining var stofnað 1926 og meðlimir eru 37. Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson
Nýbygging í smíðum við Urriðaá.
Myndir / Dagbjört Diljá Einþórsdóttir
Fjárhúsbygging á Bergsstöðum.
Verð á dreifingu rafmagns í dreifbýli
hefur hækkað um 275% frá 2005
4 26
Mýkt lambsullarinnar
skapar ný tækifæri
Bændur og aðrir eiga að geta vaktað
sín eigin lönd í framtíðinni
28
–29