Bændablaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 35

Bændablaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2020 35 UTAN ÚR HEIMI Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 ZETOR VARAHLUTIR Hamrahlíð 17 Hús Blindrafélagsins Sími • 552-2002 ÓDÝR Margskipt gleraugu Verð 39.900 kr Margskipt gler frá Essilor (afgreiðslutími +/- tvær vikur) Gleraugu með glampa og rispuvörn Sérsmíðum samdægurs í styrk +/- 6,0 með cyl. til 2,0 19.900 kr. Margskipt gleraugu Margskipt gler frá Essilor (afgreiðslutími +/- tv r vikur) 39.900 kr. gleraugu umgjörð og gler HUGVIT Í VERKI ÞARFNAST TJAKKURINN VIÐHALDS NÝSMÍÐI OG VIÐGERÐIR Vönduð og góð þjónusta VHE • Me l ab rau t 27 • Ha fna r f j ö r ðu r • H raun 5 Reyða r f i r ð i S ím i 575 9700 • Fax 575 9701 • www.vhe . i s • sa l a@vhe . i s Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020 eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is Skipholt 50b, 105 Reykjavík Vegna aukinnar eftirspurnar óskum við eftir bújörðum á söluskrá VANTAR ÞIG SEÐLA/KORTAVESKI? Sendum frítt! Netverslun - www.drangey.is Kr. 11.200 Kr. 8.900 Kr. 7.400 Kr. 5.900 -20% -20% Fredrik Bäckstrand í Övermark í Finnlandi: Endurvakti einfaldan svaladrykk og notar aldagamla uppskrift Fredrik Bäckstrand í Övermark í Finnlandi ákvað fyrir nokkrum árum að endurvekja framleiðslu á handgerðu límonaði eftir alda- gamalli uppskrift og viðbrögðin létu ekki á sér standa. Nú eru bragðtegundirnar orðnar tíu talsins og hefur hann ásamt konu sinni, Micahelu, opnað samkomu- og sölustað á gömlum veitingastað í bænum sem þau gerðu upp. Það var fyrir rúmum hundrað árum sem Oskar Eriksson byrjaði að framleiða límonaði og aðra sæta drykki undir merkjum Övermark Läskedrycksfabrik í Övermark í Finnlandi. Sjötíu og sjö árum síðar kviknaði áhugi Fredrik á að hefja framleiðslu á límonaði eftir að hafa séð mynd af flösku með fallegum miða úr upprunalegu verksmiðjunni. Á þessum tíma hafði fjöldinn allur af gömlum límónaðimiðum fundist í veggjum á húsi sem verið var að gera upp, miðar frá Övermark Läskedrycksfabrik, sem notaðir höfðu verið til einangrunar. Byrjaði með Sodastream- tæki í eldhúsinu „Gamla nostalgíuhjartað í mér sló mjög ört og mér fannst ég þurfa að endurvekja þessa gömlu framleiðslu eftir að hafa séð myndina á samfélagsmiðlum. Ég hafði samband við son Oskars, sem er á tíræðisaldri, sem gaf mér grænt ljós á að nota nafn hins gamla fyrirtækis og ég fékk alla gömlu flöskumiðana með mér ásamt upprunalegri uppskrift að límónaði,“ segir Fredrik og bætir við: „Þannig að ég dreif mig heim og byrjaði á tilraunastarfsemi heima í eldhúsi með Sodastream-tækið mitt þar sem ég fann fullkomna blöndu af kolsýru og hugmyndaflugi. Ég gerði fyrstu framleiðsluna fyrir sölu í kringum jólin árið 2017 en þá náði ég að selja um 200 flöskur með granateplabragði. Í grunnuppskriftinni var bæði sítrónusýra og sykur sem ég held mig við en kolsýran á þessum tíma var mýkri og mildari heldur en við þekkjum í dag. Þess vegna notast ég við kolsýru sem notuð er í bjór sem er búinn að gerjast. Þá fáum við ferskt sýrustig sem framkallar bragðið enn betur.“ Hráefni úr nágrenninu Nú eru bragðtegundirnar orðnar tíu talsins og er Fredrik stöðugt að þróa nýjar bragðtegundir í límónaðið. „Við höfum minna geymsluþol en flestir drykkir af svipaðri tegund því við setjum engin litar-, bragð- eða rotvarnarefni í þá. Það eina sem við bætum við er sítrónusýran og sykur ásamt örlitlu salti í lok framleiðsluferilsins. Við leggjum aðaláherslu á að nota hráefni hér úr nágrenninu eins og ber og ávexti, blöð af trjám og svo framvegis. Það er í raun hvað náttúran getur boðið okkur á hverjum tímapunkti sem við nýtum í límónaðidrykkina,“ segir Fredrik sem rekur verksmiðjuna með konu sinni, Michaelu, en nýverið keyptu þau húsnæði gamals veitingastaðar í bænum sem þau hafa gert upp og selja nú sínar eigin vörur þaðan ásamt því að vera dugleg að sækja bænda- og matarmarkaði í nágrenni við sig. /ehg – Landsbygdens Folk Eftir að hafa séð gömlum og fallegum miða af límónaðiflösku deilt á samfélagsmiðlum ákvað Fredrik Bäckstrand í Övermark í Finnlandi að endurvekja límónaðiframleiðslu í heimabæ sínum. Myndir / Úr einkasafni Fredrik Bäckstrand.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.