Bændablaðið - 03.12.2020, Síða 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2020 35
UTAN ÚR HEIMI
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
ZETOR
VARAHLUTIR
Hamrahlíð 17
Hús Blindrafélagsins
Sími • 552-2002
ÓDÝR
Margskipt gleraugu
Verð 39.900 kr
Margskipt gler frá Essilor (afgreiðslutími +/- tvær vikur)
Gleraugu með glampa og rispuvörn
Sérsmíðum samdægurs í
styrk +/- 6,0 með cyl. til 2,0
19.900 kr.
Margskipt gleraugu
Margskipt gler frá Essilor
(afgreiðslutími +/- tv r vikur)
39.900 kr.
gleraugu
umgjörð og gler
HUGVIT Í VERKI
ÞARFNAST TJAKKURINN
VIÐHALDS
NÝSMÍÐI OG VIÐGERÐIR
Vönduð og góð þjónusta
VHE • Me l ab rau t 27 • Ha fna r f j ö r ðu r • H raun 5 Reyða r f i r ð i
S ím i 575 9700 • Fax 575 9701 • www.vhe . i s • sa l a@vhe . i s
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá
VANTAR ÞIG SEÐLA/KORTAVESKI?
Sendum frítt!
Netverslun - www.drangey.is
Kr. 11.200
Kr. 8.900
Kr. 7.400
Kr. 5.900
-20%
-20%
Fredrik Bäckstrand í Övermark í Finnlandi:
Endurvakti einfaldan svaladrykk
og notar aldagamla uppskrift
Fredrik Bäckstrand í Övermark
í Finnlandi ákvað fyrir nokkrum
árum að endurvekja framleiðslu
á handgerðu límonaði eftir alda-
gamalli uppskrift og viðbrögðin
létu ekki á sér standa. Nú eru
bragðtegundirnar orðnar tíu
talsins og hefur hann ásamt konu
sinni, Micahelu, opnað samkomu-
og sölustað á gömlum veitingastað
í bænum sem þau gerðu upp.
Það var fyrir rúmum hundrað
árum sem Oskar Eriksson byrjaði
að framleiða límonaði og aðra sæta
drykki undir merkjum Övermark
Läskedrycksfabrik í Övermark í
Finnlandi. Sjötíu og sjö árum síðar
kviknaði áhugi Fredrik á að hefja
framleiðslu á límonaði eftir að hafa
séð mynd af flösku með fallegum
miða úr upprunalegu verksmiðjunni.
Á þessum tíma hafði fjöldinn allur
af gömlum límónaðimiðum fundist
í veggjum á húsi sem verið var
að gera upp, miðar frá Övermark
Läskedrycksfabrik, sem notaðir
höfðu verið til einangrunar.
Byrjaði með Sodastream-
tæki í eldhúsinu
„Gamla nostalgíuhjartað í mér sló
mjög ört og mér fannst ég þurfa að
endurvekja þessa gömlu framleiðslu
eftir að hafa séð myndina á
samfélagsmiðlum. Ég hafði samband
við son Oskars, sem er á tíræðisaldri,
sem gaf mér grænt ljós á að nota nafn
hins gamla fyrirtækis og ég fékk alla
gömlu flöskumiðana með mér ásamt
upprunalegri uppskrift að límónaði,“
segir Fredrik og bætir við:
„Þannig að ég dreif mig heim og
byrjaði á tilraunastarfsemi heima í
eldhúsi með Sodastream-tækið mitt
þar sem ég fann fullkomna blöndu
af kolsýru og hugmyndaflugi. Ég
gerði fyrstu framleiðsluna fyrir sölu
í kringum jólin árið 2017 en þá náði
ég að selja um 200 flöskur með
granateplabragði. Í grunnuppskriftinni
var bæði sítrónusýra og sykur sem ég
held mig við en kolsýran á þessum
tíma var mýkri og mildari heldur en
við þekkjum í dag. Þess vegna notast
ég við kolsýru sem notuð er í bjór
sem er búinn að gerjast. Þá fáum við
ferskt sýrustig sem framkallar bragðið
enn betur.“
Hráefni úr nágrenninu
Nú eru bragðtegundirnar orðnar tíu
talsins og er Fredrik stöðugt að þróa
nýjar bragðtegundir í límónaðið.
„Við höfum minna geymsluþol
en flestir drykkir af svipaðri tegund
því við setjum engin litar-, bragð-
eða rotvarnarefni í þá. Það eina
sem við bætum við er sítrónusýran
og sykur ásamt örlitlu salti í lok
framleiðsluferilsins. Við leggjum
aðaláherslu á að nota hráefni hér úr
nágrenninu eins og ber og ávexti, blöð
af trjám og svo framvegis. Það er í
raun hvað náttúran getur boðið okkur
á hverjum tímapunkti sem við nýtum
í límónaðidrykkina,“ segir Fredrik
sem rekur verksmiðjuna með konu
sinni, Michaelu, en nýverið keyptu
þau húsnæði gamals veitingastaðar í
bænum sem þau hafa gert upp og selja
nú sínar eigin vörur þaðan ásamt því
að vera dugleg að sækja bænda- og
matarmarkaði í nágrenni við sig.
/ehg – Landsbygdens Folk
Eftir að hafa séð gömlum og fallegum miða af límónaðiflösku deilt á samfélagsmiðlum ákvað Fredrik Bäckstrand
í Övermark í Finnlandi að endurvekja límónaðiframleiðslu í heimabæ sínum. Myndir / Úr einkasafni
Fredrik Bäckstrand.