Bændablaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2020 25
Heyrnarmælingar, ráðgjöf og heyrnartækjaþjónusta
Bókaðu tíma í síma 568 6880 eða á www.heyrnartaekni.is
Vantar þig
heyrnartæki?
Opn S eru ný tegund heyrnartækja frá Oticon sem hjálpa þér að heyra margfalt betur í fjölmenni og klið.
Þú getur fengið Opn S með endurhlaðanlegum rafhlöðum. Heyrnartækni hefur um árabil veitt þjónustu
víðs vegar á landsbyggðinni. Í desember bjóðum við upp á heyrnarmælingar, ráðgjöf og þjónustu á eftirfarandi stöðum:
Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880
Akureyri | Borgarnes | Egilsstaðir | Ísafjörður | Neskaupstaður | Reykjanesbær
Sauðárkókur| Selfoss | Stykkishólmur
Vesturhrauni 3 // 210 Garðabær // 480 0000 // af lvelar. is // sala@aflvelar. is
Austur vegi 69 // 800 Selfoss // 480 0400 // jotunn.is // jotunn@jotunn.is
driflæsing framan og aftan / hátt og lágt drif / rafléttistýri / dráttarkúla / spil / stór dekk / stillanleg fjöðrun
Cobalt 550 max ltd
Kr. 1.469.000
með vsk.
Bifreiðaskráð 1.790.000 m/vsk.
T3b götuskráð
iron 450 max ltd
Kr. 1.298.000
með vsk.
Bifreiðaskráð 1.590.000 m/vsk.
T3b götuskráð
Bændablaðið Auglýsingar 56-30-300
við félagsmenn tengt þeim ver-
kefnum sem við erum að vinna
og svo tengt almennri ráðgjöf og
stuðningi. Í gegnum þau samskipti
koma svo alls kyns hugmyndir og
tækifæri.
Fyrir utan póstlistann, sem er
nýttur til að koma upplýsingum til
félagsmanna, erum við með lokaðan
Facebook-hóp og ólíka Messenger
hópa í kringum tiltekin verkefni, þar
sem samskipti milli félagsmanna
eiga sér stað. Þeir eru einnig í aukn-
um mæli farnir að eiga bein sam-
skipti sín á milli. Það er ómetanlegt
að upplifa hvernig við eflum hvert
annað með samtali, samstarfi og
miðlun upplýsinga sem var einmitt
eitt af meginmarkmiðunum með
stofnun samtakanna.
Við fáum líka reglulega fyr-
irspurnir frá ólíkum aðilum sem
vilja komast í samband við smá-
framleiðendur, til dæmis varðandi
sérstök verkefni og verkefnahópa
sem verið er að mynda, sameigin-
leg tækjakaup og slíkt og höfum þá
getað haft milligöngu um það. Eins
hefur verið töluverður áhugi á að
fá samtökin sem samstarfsaðila á
styrktarumsóknir.
Mikill ávinningur hefur svo
náðst af nánum og góðum sam-
skiptum við aðila eins og Eldstæðið
– sem er atvinnueldhús fyrir matar-
frumkvöðla og smáframleiðendur
– en allir þeirra framleiðendur í dag
eru félagsmenn.
Styðja og efla félagsmenn
Margir félagsmenn SSFM hafa
stigið stór skref í sinni framleiðslu
til að geta nýtt þær söluleiðir sem
fjallað hefur verið um. Í tengslum
við það keyptum við sem dæmi
skjal og leiðbeiningar frá Matís
sem auðveldar fólki að reikna út
næringargildi. Í síðustu viku buðum
við upp á Zoom örnámskeið með
Óla Jóns hjá Jóns markaðsráðgjöf
og einstaklingsmiðaða stafræna
úttekt. Í janúar 2021 kemur svo á
vefinn rafræn gæðahandbók sem
verður aðgengileg félagsmönnum,
en hún er samstarfsverkefni félags-
ins og Vörusmiðjunnar BioPol,
styrkt af Matarauði Íslands.
Regluverk
Við höfum einnig beitt okkur í
málum eins og örsláturhúsamálinu,
en tveir stjórnarmenn sitja í aðgerð-
arhópi bænda því tengdu og verk-
efnastjóri þess situr í ráðgjafaráði.
Þá höfum við líka beitt okkur í
máli sem snýst um það að bændur
sem eru með nokkra fiska í tjörn eða
vatni á sínu landi eru skilgreindir
sem fiskeldisstöð og heyra undir
sama regluverk og stóru sjókvíaeldin
og þurfa að greiða hátt í hálfa milljón
í leyfisgjald. Við höfum bent á að
í Svíþjóð þurfi ekki einu sinni að
sækja um leyfi. Þar stunda fjölmargir
bændur eldi í tjörnum og vötnum
og vinna svo verðmætar handverk-
safurðir úr fisknum.
Þess ber einnig að geta að við
erum á lista yfir umsagnaraðila og
fáum því, þegar við á, beiðnir um að
skila inn umsögn og erum kölluð inn
á fundi sem hafa með okkur að gera,
eins og mótun landbúnaðarstefnu.
Skilningur á mikilvægi
smáframleiðenda
Við lítum björtum augum til fram-
tíðar. Áhugi og eftirspurn eftir
vörum smáframleiðenda eykst stöð-
ugt sem og skilningur fólks á mikil-
vægi þeirra til að tryggja framþróun,
fjölbreytni og fæðuöryggi í landinu,
draga úr kolefnisspori, stuðla að
byggðafestu, fjölga atvinnutæki-
færum og halda á lofti matarhand-
verki sem er hluti af menningararf-
inum okkar og endurspeglar hefðir
og samtíma nýsköpun.
Á listanum eru fjölmörg mál og
tækifæri sem við ætlum okkur að
nýta og tengjast meginmarkmiði
samtakanna sem er að stuðla að öfl-
ugra samstarfi og auknum samtaka-
mætti smáframleiðenda matvæla
um land allt og megin tilganginum
sem er að vinna að hagsmunamálum
smáframleiðenda matvæla á öllum
sviðum, vera málsvari þeirra og
stuðla að framförum í málefnum
sem þá varða.
Oddný Anna Björnsdóttir,
framkvæmdastjóri SSFM,
ssfm.is.
Hundurinn Aska sleppir ekki loppu af Bændablaðinu þegar í það næst. Hann
virðist líka sammála eiganda sínum Þóri Kristinssyni um að Bændablaðið
sé best, en hann sendi blaðinu þessa mynd því til sönnunar.
LÍF&STARF