Bændablaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 202012
FRÉTTIR
Frá byggakrinum í Bjálmholti í Holtum.
Eimverk sækir um vernd fyrir íslenskt viskí:
Ræktar bygg á 30 hekturum
til framleiðslunnar
– Komið með nokkuð traustan markað í Þýskalandi
Hjá Matvælastofnun er nú
til umfjöllunar umsókn frá
Brugghúsinu Eimverki um að
afurðaheitið „Íslenskt viskí“ verði
skráð sem verndað afurðaheiti á
Íslandi á grundvelli uppruna.
Eimverk sækir eitt um þessa
vernd en umsóknin var þó unnin í
samstarfi við viskíframleiðendurna
Thoran distillery og Reykjavík
distillery. Eimverk bruggar viskí
úr 120 tonnum af íslensku byggi
árlega og er með eigin ræktun.
Eva María Sigurbjörnsdóttir er
framleiðslustjóri hjá Eimverki. Hún
segir að þau vilji að það viskí sem
er stimplað íslenskt sé sannarlega
framleitt á Íslandi.
„Við höfðum evrópsku og
skosku löggjöfina til hliðsjónar.
Stærsta krafan í umsókninni er að
við viskíframleiðsluna fari mesking,
gerjun, eiming og öldrun fram á
Íslandi,“ segir Eva.
„Við vissum að Thoran distillery
og Reykjavík distillery stefna að því
að framleiða „Íslenskt viskí“ og því
ákváðum við að hafa samráð við þau
brugghús í umsóknarferlinu.“
Sex mismunandi
einmöltungs-tegundir
Eimverk var stofnað 2011 og
verksmiðjan standsett 2013, fyrstu
vörur komu á markaðinn 2014.
„Í dag framleiðum við 15
missmunandi vörur í fjórum flokkum;
viskí, gin, brennivín og baiiju.
Flóki er íslenskur einmöltungur
(single malt) og kemur núna í sex
mismunadi útgáfum; standard, tað-
reyktur (byggið taðreykt), úr sérrí-
tunnu, úr bjórtunnu sem við fáum í
gegnum samstarf við önnur íslensk
brugghús og birkilegið. Síðan kemur
reglulega út blár miði sem er eitthvað
alveg sérstakt,“ segir Eva.
Að sögn Evu notar Eimverk ein-
göngu íslenskt hráefni, íslenskan
spíra, íslenskt bygg og íslenskt vatn.
Þau eru með eigin ræktun á um 30
hekturum – á þremur ólíkum land-
svæðum.
„Við ákváðum að dreifa rækt-
uninni á þrjá staði á Suðurlandi, til
að auka líkurnar á því að við fáum
viðunandi uppskeru ár hvert. Þannig
að við erum með ræktun á okkar
landi í Bjálmholti í Holtum, auk
þess sem við leigjum akra á Læk og
í Gunnarsholti. Þarna eru mjög mis-
munandi jarðvegsgerðir sem henta
ólíku tíðarfari,“ segir Eva, sem sjálf
er með háskólapróf í líffræði.
„Við höfum að mestu staðið
ein í ræktuninni og aflað okkur
fróðleiks, en leitað okkur ráð-
gjafar hjá sérfræðingum eins og
Jónatan Hermannssyni og Björgvini
Harðarsyni þegar við höfum þurft á
því að halda,“ bætir hún við.
Um 100 tonna árleg byggþörf
Í fyrra var uppskeran með besta
móti úr byggræktun Eimverks,
eða um 125 tonn. Í ár var hún
ekki nema um helmingur þess.
„Við notum um 100 tonn árlega
sem þýðir að við þurfum að kaupa
íslenskt bygg eftir þetta sumar og
við höfum átt í viðskiptum við
bændurna á Þorvaldseyri og einnig
Sandhóli.“
Um 90 prósent af vískísölu
Eimverks fer úr landi – að lang-
mestu leyti til Þýskalands. Eva
segir að það sé gleðilegt að finna
að framleiðsla þeirra sé æ betur að
festa sig í sessi meðal ákveðinna
viðskiptamannahópa þar.
Umsóknin frá Eimverki er sú
þriðja sem berst Matvælastofnun
um vernd afurðaheita. Áður
hafa umsóknir fyrir afurðaheitin
„Íslensk lopapeysa“ og „Íslenskt
lambakjöt“ verið samþykktar.
Nokkur fjöldi evrópskra
afurða heita nýtur verndar á
Íslandi samkvæmt alþjóðasamn-
ingum. Hugmyndin er að íslensk
vernduð afurðaheiti fái einnig
vernd innan Evrópusambandsins,
en dráttur hefur verið á því að
inn leiða það ákvæði í íslenska
löggjöf.
„Mér finnst bara að stjórnkerfið
verði að koma þessu í lag, maður
verður bara að geta treyst því að það
verði gert sem fyrst, svo ekki verði
hægt að selja til dæmis lélega erlenda
vískíframleiðslu sem íslenskt viskí,“
segir Eva að lokum. /smh
Vörulína Eimverks. Sex tegundir af maltviskíi, brennivín, gin og baiiju.
Eva María Sigurbjörnsdóttir er fram
leiðslustjóri hjá Brugghúsinu Eim
verki.
Viðskiptahraðallinn Til sjávar og sveita:
Níu frumkvöðlaverkefni kynnt
á uppskeruhátíð
Níu frumkvöðlaverkefni við-
skiptahraðalsins Til sjávar og
sveita voru kynnt á uppskeruhá-
tíð í beinni útsendingu í gegnum
vef verkefnisins á föstudaginn. Af
verkefnunum níu voru sex mat-
vælaverkefni, eitt snýst um fram-
leiðslu á heilsuvörulínu, annað um
framleiðslu á niðurbrjótanlegum
vörum í stað plasts og svo var
kynnt stafræn þjálfunardagbók
fyrir hesta.
Viðskiptahraðlinum er ætlað að
hraða ferlinu frá því að hugmynd
kviknar og þar til vara er komin á
markað. Hann býður upp á vettvang
til vöruþróunar fyrir verkefni sem
snúa að hátækni í matvælaiðnaði,
nýjum lausnum í landbúnaði og
haftengdum iðnaði. Lagt er upp
með betri nýtingu hráefna þar sem
sjálfbærni og nýsköpun eru höfð
að leiðarljósi. Þetta er í annað sinn
sem hraðallinn fer fram, en unnið er
að verkefnunum í tíu vikur áður en
kemur að uppskeruhátíðinni.
Umsjón með verkefninu er
í höndum Icelandic Startups í
samstarfi við Íslenska sjávar-
klasann. Bakhjarlar verkefnisins
eru Matarauður Íslands, Nettó,
Landbúnaðar klasinn og atvinnu-
vega-og nýsköpunarráðuneytið.
Verkefnið er einnig unnið í samstarfi
við Matís og Eldstæðið.
Verkefnin sem kynnt voru á
föstudaginn eru eftirfarandi, með
lýsingum á þeim sem er að finna
inni á vef Til sjávar og sveita
(tilsjavarogsveita.is):
Broddur:
Broddur framleiðir Heilsuskot úr
broddmjólk mjólkurkúa, sem er
fyrsta mjólkin sem kýrin fram-
leiðir. Hver kýr framleiðir um 20
lítra af slíkri mjólk. Broddmjólk
er næringarrík fæða sem hefur
jákvæð heilsufarsleg áhrif.
Broddmjólk inniheldur örveru-
eyðandi og græðandi þætti og er
uppfull af efnum sem viðhalda
heilbrigðum meltingarveg. Miklu
magni broddmjólkur er fargað
í dag.
Þau Birna G. Ásbjörnsdóttir
og Guðmundur Ármann kynntu
verkefnið sem þau standa saman
á bak við.
Jöklavin:
Jökla er fyrsti íslenski rjóma-
líkjörinn sem er framleiddur að
megninu til úr innlendum hrá-
efnum. Hráefni sem annars væri
hent eru nýtt í framleiðslu. Pétur
Pétursson er frumkvöðullinn en
hann er sérlegur áhugamaður um
vinnslu á mjólk og landbúnað
á Íslandi. Pétur er í teymi með
Sigríði Sigurðardóttur viðskipta-
fræðingi.
Sauðagull:
Sauðagull vinnur matarafurðir úr
íslenskri sauðamjólk. Ann-Marie
Schlutz kynnti verkefnið en þau
Gunnar Gunnarsson, maður
hennar, eiga og reka fyrirtæk-
ið sem framleiðir sauðaosta og
konfekt. Sauðamjólkin kemur frá
Egilsstaðabúinu í Fljótsdal, sem
Gunnar Jónsson rekur, en þar eru
um 350–400 ær.
Eylíf:
Ólöf Rún Tryggvadóttir er stofn-
andi Eylífar sem framleiðir
heilsuvörulínu sem samanstendur
af hreinum íslenskum hráefnum
sem framleidd eru á Íslandi með
sjálfbærum hætti. Meðal hráefna
sem notuð eru í vörur Eylífar
eru kalkþörungar frá Bíldudal,
smáþörungar frá Reykjanesbæ,
kísill frá Heillisheiðarvirkjun,
íslenskar jurtir, kollagen frá
Sauðárkróki og rækjuskel frá
Siglufirði.
Marea:
Marea notar sjávarþang sem fæst
á Íslandi sem grunnefni í framleiðslu
á niðurbrjótanlegum vörum sem
koma í stað einnota plasts. Julie
Encausse framkvæmdastjóri kynnti
verkefnið, sem er unnið í samstarfi
fjögurra kvenna.
Sælkerar:
Sælkerar rækta mismunandi
tegundir sveppa og míkrógræn-
meti ásamt því að stefna þeir
að því að fara í þróunarvinnu
á byggðarræktun. Emil Már
Magnússon kynnti verkefnið
en með honum í teymi eru þeir
Eskil Daði Eðvarðsson og Steinar
Ernir Knútsson. Er stefnan tekin
á ræktun fjögurra sveppategunda;
Shiitake, Shimeji, Lion's Mane
og Oyster.
HorseDay:
HorseDay er stafræn þjálfunar-
dagbók fyrir hesta, í formi smá-
forrits, sem styðst við æfingasafn
viðurkenndra þjálfunaraðferða
frá Háskólanum á Hólum. Þau
Marta Rut Ólafsdóttir og Oddur
Ólafsson kynntu verkefnið, en
þau eru í teymi með þeim Ólafi
H. Einarssyni, hrossaræktanda
og -þjálfara, og Magnúsi Inga
Óskarssyni tölvunarfræðingi.
Nielsen Restaurant:
Nielsen Restaurant framleiðir
salatolíur úr vannýttum ís-
lenskum villtum jurtum. Þau Kári
Þorsteinsson og Sólveig Edda
Bjarnadóttir reka veitingastaðinn
Nielsen Restaurant á Egilsstöðum
og eru saman í þessu frumkvöðla-
verkefni. Fyrsta varan til að fara á
markað frá þeim er grænolía sem
bragðbætt er með ferskri íslenskri
hvönn.
Vegangerðin:
Vegangerðin framleiðir matvöru,
sem inniheldur engar dýraafurðir,
úr hráefni í nærumhverfi til að
halda niðri kolefnisspori hennar.
Fyrst verður boðið upp á að fá
matarpakka tilbúna til eldunar,
heimsent eða sótt. Því næst
verður farið í að framleiða græna
matvöru til heildsölu, eins og til
dæmis ferskt Tempeh. Kristján
Thors kynnti verkefnið en Atli
Stefán Yngvason er með honum
í teymi. /smh