Bændablaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 63
Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2020 63
Bændablaðið Næsta blað kemur út 17. desember
Startarar og Alternatorar
- Vinnuvélar
- Ly�arar
- Drá�arvélar
- Bátar
Glerárgata 34b við Hvannavelli • S 461 1092 • asco.is
OKKAR ÆR OG KÝR
— STARTARAR OG ALTERNATORAR —
Smiðjuvegur 30, 200 Kópavogur
jardir.is
GORMUR.IS
öðruvísi gjafavara
GORMUR
öðruvísi gjafavara
GORMUR
Mjög góður bíll, vel með farinn. Árgerð 1/1988, ekinn 126.000 km.
Bensínknúinn, 3.800 cc slagrými, 232 hestöfl, sjálfskiptur, cruise control,
skráður 5 manna. Armpúði, litað gler, rafdrifnar rúður, tveggja svæða
miðstöð, vökvastýri, samlæsingar, loftkæling, rafdrifnir hliðarspeglar, útvarp,
gírskipting í stýri, rafdrifin framsæti, tauáklæði, veltistýri. Nýlega ryðvarinn.
Verð - tilboð. Á góðu verði í beinni sölu. Sími 893-7065
Buick Lesabre til sölu
Vesturhrauni 3, 210 Garðabæ
Austurvegi 69, 800 Selfossi
Sími: 480 0000, www.aflvelar.is
SNJÓBLÁSARAR
Deluxe 24 DLE
Vélarstærð: 254cc
Vinnslubreidd: 61 cm
Vinnsluhæð: 53,3 cm
Blásturslengd: 15,2 m
Afkastageta: Allt að 56,2t á klst
Startari: Rafstart/handstrektur
Gírar: 6 áfram/ 2 aftur
Mótor: Ariens AX, fjórgengis
Vnr.: 539921323
Verð: 410.000 kr. m/vsk
Pro 28 DLE
Vélarstærð: 420cc
Vinnslubreidd: 71,1 cm
Vinnsluhæð: 59,7 cm
Blásturslengd: 18,3 m
Afkastageta: Allt að 71,6t á klst
Startari: Rafstart/handstrektur
Gírar: 6 áfram/ 2 aftur
Mótor: Ariens AX, fjórgengis
Vnr.: 539926339
Verð: 595.000 kr. m/vsk
Classic 24E
Vélarstærð: 208cc
Vinnslubreidd: 61 cm
Vinnsluhæð: 53,3 cm
Blásturslengd: 12,2 m
Afkastageta: Allt að 52,3t á klst
Startari: Rafstart/handstrektur
Gírar: 6 áfram/ 2 aftur
Mótor: Ariens AX, fjórgengis
Vnr.: 539920328
Verð: 269.000 kr. m/vsk
Með nýjum göngu- og hjólastíg flyst umferð gangandi og hjólandi fólks af umferðaþungum og hættulegum vegarkafla í Eyjafirði.
Hjólreiða- og göngustígur er á teikniborðinu hjá Svalbarðsstrandarhreppi:
Umferð gangandi og hjólandi vex ár frá ári
Nýr hjólreiða- og göngustíg-
ur er á teikniborðinu hjá
Svalbarðsstrandarhreppi, en
hann mun í framtíðinni tengj-
ast stígakerfum Akureyrar og
Eyjafjarðarsveitar, ná frá bæj-
armörkum við Akureyri, yfir
Leirubrú og að Garðsvík þar sem
hreppsmörk eru í norðri.
Björg Erlingsdóttir sveitarstjóri
segir að þegar sé búið að vinna til-
lögur að legu stígsins eftir ströndinni.
Hönnunargögn liggi fyrir en eftir sé
að ákveða og fastsetja legu stígsins
og fullhanna hann út frá því. Þá á
eftir að endurskoða fjárhagsáætlanir
og semja við landeigendur.
Vegagerðin hefur óskað eftir
áfangaskiptingu verksins. Þeir
verða þrír, einn liggur frá Leirubrú
við Akureyri að Vaðlaheiðagöngum,
annar frá göngunum og að
Svalbarðseyri og sá þriðji liggur
þaðan og að Garðsvík. Björg segir
ekki ákveðið á hvaða áfanga verði
byrjað en líkur á að nyrsti hlutinn frá
Svalbarðseyri og að Garðsvík verði
síðastur í röðinni.
Hjólandi umferð af þjóðveginum
Björg segir þeim fjölga mjög sem
hjóla sér til heilsubótar.
„Við sjáum kippinn sem kom í
umferð gangandi og hjólandi fólks
þegar stígurinn fram að Hrafnagili
var tekin í notkun og allir íbúar á
svæðinu geta nýtt sér til útivistar.
Við verðum líka vör við vaxandi
umferð hjólreiðamanna ár frá ári.
Með göngu- og hjólastíg fáum við
hjólandi umferð af erfiðum þjóðvegi
og gefum gangandi vegfarendum
tækifæri á að njóta náttúru og
útivistar,“ segir hún. „Fyrst og fremst
eru stígarnir gerðir fyrir heimamenn
og íbúa í nágrannasveitarfélögum en
nýtist augljóslega fyrir aðra gesti og
ferðamenn.“
Stefnt er að því að ganga frá
samn ingum við landeigendur og
Vegagerð fyrir gerð fjárhagsáætlunar
ársins 2022 og að hægt verði að hefja
framkvæmdir á því ári. Björg segir
að í millitíðinni hafi verið unnið að
gönguleiðum innan Svalbarðseyrar,
meðfram stöndinni og nú sé verið
að vinna kort þar sem gestir geti
séð hvar hentugt er að leggja bif-
reiðum, hvar sé að finna borð og
bekki, hversu langar gönguleiðir
séu og hvað markvert ber fyrir auga
á leiðinni.
Fyrr í sumar samþykkti sveitar-
stjórn Hörgársveitar að hefja undir-
búning að göngu- og hjólastíg frá
Lónsbakka við sveitarfélagamörkin
við Akureyri og að Þelamerkurskóla.
Samþykktin var gerð í tilefni af 10 ára
afmæli Hörgársveitar. Hjólreiðafólk
getur því hlakkað til að bruna á
góðum stíg frá Þelamörk og út að
Garðsvík einn góðan veðurdag innan
fárra ára. Þá má geta þess að sumar-
ið 2018 var tekin í notkun 7,5 kíló-
metra langur göngu- og hjólastígur
sem liggur meðfram Eyjafjarðarbraut
vestari frá Hrafnagilshverfi að bæjar-
mörkum Akureyrar og er hann mjög
mikið notaður. /MÞÞ