Bændablaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2020 47
8,82 fyrir hæfileika; 9,0 fyrir tölt,
skeið, samstarfsvilja og fegurð í
reið og 9,5 fyrir brokk. Þá er einnig
áhugavert að nefna hryssuna sem
var í fjórða sæti í þessum flokki en
það er klárhryssan Svarta Perla frá
Álfhólum, ræktandi hennar er Sara
Ástþórsdóttir en eigandi er Millfarm
Corp ehf. Hún er undan Eldhuga
frá Álfhólum og Dimmuborg frá
Álfhólum. Svarta Perla er eitt eftir-
tektarverðasta hross sem kom fram í
ár en hún hlaut 9,5 fyrir tölt, brokk,
hægt stökk, samstarfvilja og fegurð
í reið. Þá hlaut hún einnig 9,5 fyrir
samræmi en hún er afar fínleg, þurr-
byggð og framhá. Svarta Perla er
einstök hvað léttleika varðar og býr
yfir miklu fjaðurmagni og flinkheit-
um á gangi, næm, létt og spilandi
viljug og er í raun eins og dunandi
djasslag á fjórum fjaðrandi fótum.
289 hryssur komu til
dóms í elsta flokki
Í elsta flokki hryssna, 7 vetra og
eldri, komu 289 hryssur til dóms
eða um 28% sýndra hrossa.
Með þriðju hæstu einkunn ársins,
8,60, var Auður frá Varmalandi
í Sæmundarhlíð. Ræktendur
og eigendur hennar eru Birna
Sigurbjörnsdóttir og Sigurgeir
Þorsteinsson. Auður er undan
Auði frá Lundum II og Flugu frá
Varmalandi. Auður er glæsilega
og vel gerð hryssa með 8,83 fyrir
sköpulag, þar sem hæst ber 9,0
fyrir háls, herðar og bóga, samræmi
og hófa og 9,5 fyrir bak og lend.
Auður er alhliða hryssa með 8,48
fyrir hæfileika; 8,5 fyrir tölt, 9,0
fyrir skeið, samstarfsvilja og fegurð
í reið. Jafnar með 8,73 í aðaleinkunn
eru þær Hremmsa frá Álftagerði
III og Fold frá Flagbjarnarholti.
Hremmsa er undan Eldi frá
Torfunesi og Gjálp frá Álftagerði IV.
Ræktendur eru Arngrímur Geirsson
og Gígja Sigurbjörnsdóttir en Gígja
er eigandi hryssunnar. Hremmsa
er myndarleg og öflug alhliða
hryssa með 8,43 fyrir sköpulag.
Reist, framhá og fótahá. Þá er hún
gæðingur á gangi með 8,89 fyrir
hæfileika þar sem hæst ber 9,0 yfir
tölt, samstarfsvilja og fegurð í reið,
8,5 fyrir skeið og 9,5 fyrir brokk.
Eldur frá Torfunesi hefur verið að
skila góðum afkvæmum til dóms á
síðastliðnum árum, skrokkmjúkum
og traustum í lund og virðist vera
að gefa afar góða reiðhesta og svo
afrekshross í bland.
Einnig með 8,73 í aðaleinkunn
var á árinu Fold frá Flagbjarnarholti
en hún stóð ofar á Landssýningunni
þar sem hún var hærri fyrir
hæfileika. Fold er undan Ómi frá
Kvistum og Gyðju Baldursdóttur frá
Lækjarbotnum, af afreks- og skeið-
línu í móðurlegg. Fold er fínleg og
prúð hryssa með afar sterka yfirlínu
í baki. Þá er hún flink á gangi, létt-
stíg og hágeng með 9,0 fyrir tölt, 8,5
fyrir brokk og 9,5 fyrir skeið enda
frábær á þeirri gangtegund. Þá er
hún afar viljug og þjál með 9,5 fyrir
samstarfsvilja.
Með hæstu einkunn ársins í elsta
flokki hryssna er Harpa Sjöfn frá
Hvolsvelli en hún var sýnd á síð-
sumarssýningu á Hólum. Ræktendur
hennar eru Helga Friðgeirsdóttir og
Ásmundur Þórisson og eigendur
eru Anja Egger-Meier og Bjarni
Jónasson. Harpa Sjöfn er undan
Mjölni frá Hlemmiskeiði 3 og Orku
frá Hvolsvelli. Harpa er með 8,70
fyrir sköpulag; 9,0 fyrir háls, herð-
ar og bóga, samræmi og hófa, enda
reist, sterkbyggð og bolfalleg. Þá
er hún fjölhæfur alhliða gæðingur,
skrefmikil og ganghrein með 8,95
fyrir hæfileika.
31 hestur í flokki
fjögurra vetra stóðhesta
Í flokki fjögurra vetra stóðhesta voru
sýndir 31 hestar eða um 4% sýndra
hrossa.
Með þriðju hæstu einkunn ársins
er Árvakur frá Auðsholtshjáleigu en
hann var sýndur á miðsumarssýn-
ingu á Hellu og hlaut 8,26 í aðal-
einkunn. Ræktendur eru Kristbjörg
Eyvindsdóttir og Gunnar Arnarson
og eigandi er Gunnar Arnarson
ehf. Árvakur er undan Álfarni frá
Syðri-Gegnishólum og Rímu frá
Auðsholtshjáleigu. Árvakur er
stólpagripur sem á framtíðina fyrir
sér, myndarlegur og skrefmikill.
Hann hlaut 8,34 fyrir sköpulag þar
sem hæst ber 9,0 fyrir bak og lend og
8,5 yfir samræmi, fótagerð og hófa.
Þá er hann afar efnilegur alhliða
hestur og hlaut fyrir hæfileika 8,22.
Með aðra hæstu einkunn ársins
var Skyggnir frá Skipaskaga en hann
hlaut 8,35 í aðaleinkunn. Ræktendur
hans eru Sigurveig Stefánsdóttir
og Jón Árnason en eigandi er
Skipaskagi ehf. Skyggnir er undan
Skýr frá Skálakoti og Skynjun
Þóroddsdóttur frá Skipaskaga.
Skyggnir er glæsilega gerður hestur
með 8,56 fyrir sköpulag en hann
hlaut 9,0 fyrir háls, herðar og bóga,
samræmi og fótagerð. Skyggnir er
efnilegur alhliða hestur með 8,23
fyrir hæfileika en hann hlaut 9,0
fyrir samstarfsvilja og 8,5 fyrir tölt,
skeið og fegurð í reið.
Með hæstu einkunn ársins í flokki
fjögurra vetra stóðhesta og efstur
á Landssýningunni var Róbert frá
Kirkjufelli, með 8,45 í aðaleinkunn.
Ræktandi hans er Bryndís Mjöll
Gunnarsdóttir og hún er einnig eig-
andi ásamt Skipaskaga ehf. Róbert
er undan Skýr frá Skálakoti og
Gjólu Gustsdóttur frá Skipaskaga.
Róbert hlaut 8,54 fyrir sköpulag en
hæst hlaut hann 9,0 fyrir samræmi,
fótagerð og réttleika en einnig hlaut
hann 8,5 fyrir háls, herðar og bóga.
Þá fékk hann 8,39 fyrir hæfileika þar
sem hæst ber 9,0 fyrir samstarfsvilja
og 8,5 fyrir tölt, skeið, hægt stökk,
fet og fegurð í reið og er Róbert
efni í myndarlegan, skrefmikinn,
ganghreinan og þjálan alhliða hest.
99 hestar í fullnaðardóm í
flokki fimm vetra stóðhesta
Í flokki fimm vetra stóðhesta komu
fram 99 hestar í fullnaðardóm eða
10% sýndra hrossa.
Með þriðju hæstu einkunn
ársins var Sindri frá Hjarðartúni
með 8,58 í aðaleinkunn. Ræktandi
er Óskar Eyjólfsson og eigendur
eru Einhyrningur ehf, Bjarni Elvar
Pétursson og Kristín Heimisdóttir.
Sindri er undan Stála frá Kjarri og
Dögun frá Hjarðartúni en hún er
undan heiðursverðlaunahryssunni
Dögg frá Breiðholti. Sindri er ágæt-
lega gerður í sköpulagi með 8,0 fyrir
háls, herðar og bóga og 8,5 fyrir bak
og lend og samræmi. Þá er Sindri
frábær alhliða gæðingur með 8,75
fyrir hæfileika; hágengur, fímur og
rúmur, með 9,0 fyrir tölt og hægt
tölt sem er afar verðmætt. Einnig
er hann með 9,0 fyrir skeið, sam-
starfsvilja og fegurð í reið.
Með aðra hæstu ársins var Hilmir
frá Árbæjarhjáleigu II, undan Spuna
frá Vesturkoti og Eldingu frá
Árbæjarhjáleigu II og er hann því
bróðir Jarls frá sama bæ. Ræktandi
er Marjolijn Tiepen og eigandi er
Katrin Taylor-Sheehan. Hilmir er
mjúkvaxinn og sterkbyggður með
8,50 fyrir byggingu þar sem hæst
ber 9,0 fyrir fótagerð. Hilmir er afar
fjölhæfur og jafnvígur alhliða hestur
með 9,0 fyrir tölt, hægt stökk, sam-
starfsvilja og fegurð í reið; skref-
mikill, mjúkur og hágengur, með
einkar trausta lund.
Hæstu einkunn í þessum flokki
hlaut Leynir frá Garðshorni á
Þelamörk en hann hlaut 8,77 í
aðaleinkunn. Ræktendur hans
eru Agnar Þór Magnússon og
Birna Tryggvadóttir og eigandi
er Sporthestar ehf, Leynir er
undan Höfðingja frá Garðshorni á
Þelamörk og Grósku frá sama bæ.
Leynir hlaut 8,58 fyrir sköpulag,
með 9,0 fyrir háls, herðar og bóga
og bak og lend, enda með afar hátt
settan, hvelfdan og reistan háls og
sterka yfirlínu. Leynir hlaut fyrir
hæfileika 8,88, afar viljugur og
samstarfsfús, rúmur og teygju-
mikill í ganglagi, með 9,0 fyrir
tölt, brokk og skeið og 9,5 fyrir
samstarfsvilja.
84 hestar í flokki 6 vetra stóðhesta
Í flokki 6 vetra stóðhesta voru sýndir
84 hestar í fullnaðardóm eða um 8%
sýndra hrossa.
Með þriðju hæstu einkunn
ársins var Tumi frá Jarðbrú með
8,61 í aðaleinkunn. Tumi er undan
Trymbli frá Stóra-Ási og Gleði frá
Svarfhóli, ræktandi og eigandi er
Þröstur Karlsson. Tumi hlaut fyrir
sköpulag 8,56 en hann er með afar
sterka yfirlínu í hálsi og baki og
hálsinn er reistur og rétt lagaður.
Fyrir hæfileika hlaut Tumi 8,63 þar
sem hæst ber 9,0 fyrir tölt og brokk,
samstarfsvilja og fegurð í reið; enda
hágengur og léttstígur og einkar takt-
viss og öruggur á brokki.
Með aðra hæstu einkunn ársins
var Eldjárn frá Skipaskaga með 8,72.
Ræktandi hans er Jón Árnason og
eigandi er Skipaskagi ehf. Eldjárn
er undan Jarli frá Árbæjarhjáleigu
II og Glímu frá Kaldbak. Eldjárn er
stórmyndarlegur, sterkbyggður og
prúður hestur enda með 9,0 samræmi
og hófa, 9,5 fyrir fótagerð, 10 fyrir
prúðleika og 8,5 fyrir frambyggingu.
Fyrir hæfileika hlaut Eldjárn 8,71;
mjúkur og takthreinn á tölt, ferð-
mikill og öruggur á skeiði, viljugur
með afar trausta lund og fasmikla
framgöngu.
Með hæstu einkunn ársins í þessu
flokki var svo Viðar frá Skör með
8,89 í aðaleinkunn. Ræktandi hans
er Karl Áki Sigurðsson og eigend-
ur eru Flemming Fast og Gitte
Fast Lambertsen. Viðar er undan
Hrannari frá Flugumýri II og Vá
frá Auðsholtshjáleigu. Viðar hlaut
fyrir sköpulag 8,76 þar sem hæst
ber 9,0 fyrir bak og lend og 9,5
fyrir samræmi. Þá hlaut Viðar 8,96
fyrir hæfileika þar sem hæst ber 9,5
fyrir brokk og m.a. 9,0 fyrir tölt,
fet, samstarfsvilja og fegurð í reið
enda skrokkmjúkur, skrefmikill og
hágengur og voldugur á brokki.
Sýndir voru 76 hestar
í elsta flokki stóðhesta
Í elsta flokki stóðhesta voru sýndir
76 hestar eða rúmlega 7% sýndra
hrossa.
Með þriðju hæstu einkunn ársins
var Rauðskeggur frá Kjarnholtum I
með 8,87 í aðaleinkunn. Ræktandi og
eigandi hans er Magnús Einarsson.
Rauðskeggur eru undan Kiljan frá
Steinnesi og Heru frá Kjarnholtum.
Rauðskeggur er þekktur gæðingur
og fór í ár í sinn hæsta dóm. Fyrir
sköpulag hlaut hann 8,76; með
reistan, hátt settan og hvelfdan háls,
framhár og fótahár með sterka yfir-
línu. Fyrir hæfileika hlaut hann 8,92,
þar sem hæst ber 9,5 fyrir skeið og
samstarfsvilja og 9,0 fyrir tölt, hægt
tölt, greitt stökk og fegurð í reið.
Með aðra hæstu einkunn ársins
var Sólon frá Þúfum en hann er undan
Trymbli frá Stóra-Ási og Kommu
frá Hóli við Dalvík, ræktendur eru
Gísli Gíslason og Mette Mannseth.
Sólon er með 8,51 fyrir sköpulag;
með reistan og mjúkan háls, hátt
frambak og myndarlegur á velli. Þá
er Sólon með afar fallega framgöngu
undir manni, nýtir hálsinn afar vel,
reistur og hvelfdur með léttar og háar
hreyfingar. Hann hlaut 9,5 fyrir tölt,
9,0 fyrir brokk, skeið og fegurð í
reið og 10 fyrir samstarfsvilja enda
sameinar hann mikinn vilja, næmni
og yfirvegun.
Með hæstu einkunn ársins í elsta
flokki stóðhesta í ár var Álfaklettur
frá Syðri-Gegnishólum með 8,94 í
aðaleinkunn sem var hæsta aðal-
einkunn sem kynbótahross hlaut á
árinu. Ræktandi og eigandi hans er
Olil Amble. Álfaklettur er undan
Stála frá Kjarri og hinni mögnuðu
Álfadísi frá Selfossi. Álfaklettur
hlaut fyrir sköpulag 8,82 enda
afar fríður á höfuð, með reistan,
hvelfdan og fínlegan háls, sterka
yfirlínu og einstakt samræmi; fram-
hár, léttbyggður og fótahár. Fyrir
hæfileika hlaut hann 9,01. Þar hefur
hann magnaðar einkunnir, 9,5 fyrir
skeið og samstarfsvilja; afar sam-
starfsfús og viljugur og 9,0 fyrir
tölt, hægt tölt, brokk, greitt stökk
og fegurð í reið. Hann var efstur
á Landssýningunni í elsta flokki
stóðhesta og skartaði þar sínum
miklu og góðu kostum; léttleika,
fimi og fjölhæfni og afar heillandi
framgöngu en fínleikinn, fríðleikinn
og léttleikinn setja punktinn yfir i-ið
þegar kemur að hans miklu reiðhest-
skostum.
Heilbrigðisskoðanir
kynbótahrossa
Heilbrigði kynbótahrossa var skoðað
eins og undanfarin ár, bæði fyrir og
eftir dóm. Allir áverkar sem hrossin
hlutu í dómi voru stigaðir í þrjá
flokka og átti þetta við bæði særindi
í munni og ágrip á fótum.
Fyrsta stigs athugasemdir teljast
ekki vera eiginlegir áverkar en eru
t.d. særindi í munni sem ná ekki í
gegnum slímhúð eða strokur á fótum
sem ná ekki í gegnum húð og eru án
eymsla eða bólgu.
Annars stigs athugasemdir eru
áverkar, s.s. lítil sár í munni eða ágrip
á fótum sem ná þó ekki einum cm.
Þriðja stigs athugasemdir eru
alvarlegir áverkar og á þá lund að
hrossið hlýtur ekki reiðdóm og getur
ekki mætt til yfirlitssýningar. Skráð
voru ágrip á fótum í 12% tilfella sem
er töluvert lægra en undanfarin ár
og hefur aldrei verið lægra en t.d. í
fyrra þá var heildartíðni ágripa 19%.
Megnið af þessu athugasemd-
um eða tæplega 70% voru í flokki
1, tíðni eiginlegra áverka á fótum
(flokkar 2 og 3) var því um 4%, þar
sem áverkar af þriðja stigi fundust
bara á einu hrossi. Þetta er lægra en
í fyrra en þá var tíðni þeirra 5%.
Þá voru skráð særindi eða blóð
í munni í 3,5% tilfella og var í nær
öllum tilfellum um 1. stigs sær-
indi að ræða. Það má því segja að
staðan á þessum málum sé góð þar
sem tíðni eiginlegra áverka er lág
og hefur sem fyrr segir aldrei verið
lægri. Það verða þó allir sem koma
að sýningunum að vera á tánum í
þessum efnum.
Undirbúningur og sýningar kyn-
bótahrossa hafa að sjálfsögðu verið
að batna og orðið hestvænni með
árunum. Þá má leiða að því líkum að
þessi góða niðurstaða í ár sá að hluta
til nýjum dómskala og vægistuðlum
að þakka þar sem meiri áhersla er
lögð á yfirvegun, janvægi og gæði
á hægum gangi.
Starfsfólk og staðarhaldarar
Að lokum er rétt og ljúft að þakka
öllu starfsfólki sýninganna fyrir vel
unnin störf á árinu eins og vant er.
Þetta er vel þjálfaður og sam-
hentur hópur starfsfólks sem kemur
að sýningunum á hverju ári. Þá tóku
nýir dómarar til starfa í ár en það
voru þau Elisabeth Marie Trost og
Gísli Guðjónsson, þau eru boðin
hjartanlega velkomin í hópinn en þau
eru afar efnileg í þessu starfi; vel
menntuð á þessu sviði og áhugasöm.
Einnig vil ég þakka gott samstarf við
staðarhaldara á hverjum stað en alls
staðar er verkefninu tekið af áhuga
og metnaði og reynt að hafa alla þætti
sýninganna sem besta. Þá vil ég að
þakka sýnendum, ræktendum og
eigendum hrossanna fyrir skemmti-
lega viðkynningu og gott samstarf
á árinu.
Skýr frá Skálakoti hlaut heiðurverðlaun fyrir afkvæmi á árinu og Sleipnis
bikarinn.
Álfaklettur frá SyðriGegnishólum var hæsta dæmda kynbótahross ársins.
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Sæti og varahlutir í
- Lyftara
- Vinnuvélar
- Vörubíla
- Báta